03.07.2008 12:35

Magnús SH 11

Ingólfur Þorleifsson, Golli var nýlega með mynd  af Halldóru Jónsdóttur  ÍS-99, sknr. 939 á síðunni sinni. Þar upplýsti ég að bátnum hafði verið fargað 1990, en það eru opinberar skýringar á endalokum bátsins. Nú hefur hinsvegar komið annað í ljós, en Jón Páll var í áhöfn varðskipsins Óðins sem átti eftir að koma síðar við sögu umrædds báts, er hann hét Magnús SH-11, er þeir dróu hann frá Brjánslæk til Bíldudals 12/10 1993. Gefum Jóni Páli orðið: Báturinn var þá allur í niðurníðslu og búinn að liggja þar í fjörunni í einhver ár að sagt var. Það var búið að draga hann úr fjörunni og dælt úr honum sjó að ég held og var hann við bryggjuna þar. Við komum svo og drógum hann inn á Arnarfjörð í nánd við Bíldudal.
Það tók einhver bátur við honum fyrir utan Bíldudal, ég man ekki hver. Hann var síðan að ég heyrði dreginn á land í grennd við Bíldudal og eitthvað hirt úr honum og hann síðan brenndur. Ég held vélin.
Ég sendi mynd með sem ég tók 12. október 1993  fyrir utan Brjánslæk þegar við vorum að gera hann kláran fyrir drátt.

                       939. Magnús SH 11 © mynd Jón Páll Ásgeirsson 1993

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 831
Gestir í dag: 50
Flettingar í gær: 1385
Gestir í gær: 74
Samtals flettingar: 605035
Samtals gestir: 25486
Tölur uppfærðar: 25.4.2024 09:50:13
www.mbl.is