30.10.2008 16:53

Vaktbátur úr Norðursjó brytjaður niður í Njarðvík

Þeir voru margir gamlir sjófarendur sem fylgdust í dag með óvæntri komu skipa til Njarðvíkur. Hér voru á ferðinni vaktbátarnir Valberg VE 10 og Valberg II VE 105 sem voru að koma að talið var úr Norðursjónum þar sem verkefnum þar er lokið í bili (samkvæmt ábendingu Tryggva Sig hér fyrir rneðan voru þeir þó aðeins að koma frá heimahöfn sinni Vestmannaeyjum). Dró Valberg þann eldri Valberg II Njarðvíkur þar sem Hringás um brytja hann niður í Njarðvíkurslipp á næstunni. Eftir að bátarnir voru komnir að bryggju með aðstoð hafnsögubátsins Auðuns, fór Valberg VE 10 til heimahafnar í Vestmannaeyjum þar sem báturinn mun liggja a.m.k. fram yfir áramót. Við þetta tækifæri tók Emil Páll meðfylgjandi myndir.

                                                      1074. Valberg VE 10

    Hafsögubáturinn Auðunn, dró 127. Valberg II VE 105 ex VE 10 síðasta spölinn til hafnar í Njarðvík.

 Þrenningin kemur að bryggju í Njarðvík, f.v. Auðunn, Valberg og Valberg II © myndir Emil Páll

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 860
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 3321
Gestir í gær: 184
Samtals flettingar: 598378
Samtals gestir: 24948
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 05:13:10
www.mbl.is