31.03.2009 22:20Sá minnsti - stækkaðurSá minnsti (Hólmaborg) í höfn á Akranesi í nóv. 2008 © símamynd Gunnar Th. 9.nóv. á síðasta hausti birtum við þessa mynd af þessum litla gula báti, sem Gunnar Th. sá á Akranesi og töldum hann vera þann minnsta sem til væri. Síðan höfum við ekkert frétt meira um þann bát þar til fyrir nokkrum dögum að við fengum sendingu sem innihélt eftirfarandi bréf og myndir sem við birtum nú. Sæll þorgeir. Mér var bent á að báturinn minn væri á síðunni þinni í haust og hafði ég gaman af að sjá hann þar. Það er rétt að þetta er terrih 385 sem er 3 metrar og 85 cm og 1,4m á breidd það var einnig rétt getið að hann heitir Hólmaborg. Ég var alltaf í vandræðum með stöðugleikann á þessum bát og reyndi ég margt til að fá hann stöðugann án árangurs svo skömmu eftir að myndin var tekin í haust tók ég bátinn upp og breitti honum aðeins fyrst og fremst til að fá hann stöðugan, en sá mér leik á borði og lengdi hann um 115cm í leiðinni,svo nú er hann orðinn 187 cm breidd og 5m á lengd, nú loksins er hann stöðugur sem klettur. Ég sendi þér hér myndir af honum því ég sé að þið hafið gaman af uppátækjum mínum,eins og ég sjálfur ;o) Kveðja Hinrik Gíslason skipstjóri á Hólmaborginni, Akranesi. Hólmaborgin, sá minnsti eftir stækkun og breitingar Já það eru miklar breitingar á bátnum frá því í haust © myndir Hinrik Gíslason Skrifað af Emil Páli |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1237 Gestir í dag: 26 Flettingar í gær: 557 Gestir í gær: 48 Samtals flettingar: 568464 Samtals gestir: 21574 Tölur uppfærðar: 28.3.2024 14:35:46 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is