04.04.2009 23:34

Betra er slæmt umtal en ekkert

Í framhaldi af furðuskrifum sem orðið hafa  á síðu Hafþórs frá hinum ýmsu mönnum um þessa síðu, sé ég að ég verð að segja frá skoðun minni á málunum sem þar voru til umræðu og eins vegna nokkra sem komu inn á þessa síðu í sama tilgangi. Þá skulum við muna að fyrir mér er Slæmt umtal betra en ekkert umtal og því þakka ég fyrir þá auglýsingu sem ég hef fengið að undanförnu á öðrum síðum. Þrátt fyrir neikvæðni sem fylgir hjá sumum þeirra sem gefið hafa þessari síðu og þá sérstaklega mér skot, skulum við muna að gestir síðunnar eru þetta 3-500 á degi hverjum, minnst um helgar, þannig að áhugi fyrir síðunni er þó nokkur og ekki eins og sumir vilja halda fram að minni áhugi sé fyrir síðunni en áður.
En þar sem skotunum er aðallega beint gegn mér, svara ég þessu nú:

Klukkumálið

Á undanförnum dögum hefur klukkan á síðunni verið til vandræða, þ.e. ´hún gefur ekki upp sama tíma og þegar færslan er skrifuð og virðist því sem færslan sé í raun skrifuð klukkutíma fyrr en rétt er.
Tveir bloggarar Hafþór og Guðmundur St. hafa leiðbeint mér hvernig ég ætti að lagfæra þetta, en það hefur ekki dugað. Þakka ég þeim fyrir þeirra tilraun til að bjarga mér. Aðrir hafa látið að því liggja að ég sé að breyta klukkunni, því það sé svo auðvelt.
Málið er hinsvegar það að hér er á ferðinni einhver bilun sem fagmaður þarf að laga á síðunni hjá mér og því er klukkan enn ekki komin í lag. Þetta snýst því ekki um að ég sé að hringla í klukkunni.

Ekki eins síður

Sumir hafa kvartað yfir því að hér séu aðferðir notaðar sem þeim líkar ekki og mun ég því benda á hvað sé á ferðinni varðandi sumar þeirra.
1. Hafliði o.fl. telja að það sé rangt að gefa ekki meiri upplýsingar með hverri mynd en gert er, auk þess sem oft birtist 5-7 myndir hverju sinni.
Svarið við þessu er: Sem betur fer eru síðurnar ekki eins, heldur er ýmislegt sem gerir þær öðruvísi. Ástæðan fyrir því að ég gef ekki meiri upplýsingar eru fjölda óska þess efnis að leyfa gestum síðunnar að geta, í stað þess að mata allt í þá. Hitt með fjöldann, þá er þetta það sem við höfum, en hinir hafa ekki, enda erum við með mikið magn af myndum sem bíða birtingar hverju sinni. Hvort þetta sé rétt aðferð eða röng, skiptir engu máli, þetta er gert á þessari síðu.
2. Myndir teknar af öðrum myndum og gulur kanntur með og að þær séu illa unnar fyrir birtingu. Svarið við þessu er að ég hef ekki haft aðgang að skanna fram að þessu né fótósjopp og verð því að taka myndir með myndavél af öðrum myndum til að geta tekið þær í tölvutæku formi. Gula röndin stafar af sömu ástæðu.

Af hverju eru sumir eitraðir út

Allt frá því fyrir tæpu ári síðan hafa gilt hér eftirfarandi reglur um þá sem skrifa álit hér á síðunni. Þessar reglur birtast nú í þriðja sinn á þessum tíma: Nafnleysi verða  ekki lengur liðin, né gælunöfn sem síðuhaldarar kannast ekki við. Þar sem menn hafa ástundað stundum ljót eða óskiljanleg skrif hér sem komment, áskilja síðuhaldarar sér þann rétt að fjarlægja þau, sem og þeirra er ekki fara eftir reglum síðunnar um nöfn. Eins munum við  fjarlægja þau komment sem eru, ekki okkur síðuhöldurum að skapi eða eru óviðeigandi.  - Til meginþorra þeirra sem skrifa hér komment og merkja þau þannig að við þekkjum viðkomandi viljum við segja að með þessu erum við að leggja stein í götu þeirra sem eru með skítkast, svo hinir sem halda uppi málefnalegri umræðu, eins og flestir gera, geti fengið að vera í friði.

Með bestu kveðju Emil Páll


Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1572
Gestir í dag: 23
Flettingar í gær: 2311
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 571110
Samtals gestir: 21608
Tölur uppfærðar: 29.3.2024 13:25:54
www.mbl.is