20.08.2010 13:53

Júpiter FD 42


                               Júpiter FD 42 © mynd þorgeir Baldursson i mai 2009

Færeyski togarinn Jupiter tapaði jafnvirði 100 milljóna íslenskra króna vegna aðgerða skoskra sjómanna í Peterhead síðastliðinn miðvikudag, en þeir komu í veg fyrir löndun úr skipinu vegna makríldeilunnar við Færeyinga.

Jupiter átti að landa 1.100 tonnum af makríl í Peterhead til vinnslu að verðmæti 140-160 milljóna íslenskra króna en varð að snúa frá bryggju þegar 50-60 þarlendir sjómenn hindruðu löndun úr því.

Skipið sneri þá aftur til Færeyja og landaði farminum í bræðslu í verksmiðjunni í Fuglafirði fyrir jafnvirði 40-60 milljóna íslenskra króna, að því er segir í norskra sjávarútvegsblaðinu Fiskeribladet/Fiskaren.

Norðmenn hafa sett löndunarbann á makríl úr íslenskum og færeyskum skipum vegna makríldeilunnar og nú hefur ESB fylgt í fótspor þeirra að því er fram kemur í blaðinu.

Færeyingar hafa lengi verið óánægðir með sinn hlut úr makrílstofninum og þar sem engir samningar hafa náðst um nýtingu hans í ár hafa Færeyingar sett sér einhliða 85.000 tonna kvóta eða fjórfalt meiri ársafla en þeim hefur verið úthlutað hingað til. Íslendingar hafa sett sér 130.000 tonna kvóta í ár eins og kunnugt er.



Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1794
Gestir í dag: 24
Flettingar í gær: 2311
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 571332
Samtals gestir: 21609
Tölur uppfærðar: 29.3.2024 14:55:30
www.mbl.is