21.12.2010 12:29

Islandsmet i Aflaverðmæti


                             Vilhelm Þorsteinsson EA 11 © mynd Þorgeir Baldursson 2010

     Vilhelm Þorsteinsson EA 11 kom í land með fullfermi af frystum síldarflökum í gær og lauk þar með síðustu veiðiferð þessa árs. Áhöfnin á Vilhelm Þorsteinssyni er búin að veiða um 50.000 tonn og skilar þjóðarbúinu um 3,3 milljörðum kr. á þessu ári, sem er met í aflaverðmæti.

 

gudmundurthjonsson_thorgeirbald_img_9019Skipstjórinn Guðmundur Þ. Jónsson hafði fleiri ástæður til að fagna en hann varð fimmtugur á sunnudaginn. Veglega var tekið á móti Guðmundi og áhöfn hans er skipið lagði að bryggju á Akureyri í gær, með dýrindis afmælistertum og að sjálfsögðu var afmælissöngurinn sunginn skipstjóranum til heiðurs.

Vilhelm Þorsteinsson veiðir uppsjávarfisk, síld, kolmunna, makríl og loðnu. Skipið er að koma frá veiðum við Norður-Noreg með fullt skip, 570-580 tonn af síldarflökum sem fara á markað í Póllandi og Frakklandi. Það er allt unnið um borð og 90-95% af því fer til manneldis. Í áhöfn eru 24 skipverjar hverju sinni en um 40 sjómenn skiptast á um að vera um borð. Vilhelm heldur aftur af stað 2. janúar á loðnuveiðar.

Heimild www samherji.is

Myndir ÞORGEIR BALDURSSON 2010              Guðmundur kátur með tertuna mynd þorgeir


Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1687
Gestir í dag: 164
Flettingar í gær: 7696
Gestir í gær: 1224
Samtals flettingar: 594122
Samtals gestir: 24733
Tölur uppfærðar: 18.4.2024 22:32:42
www.mbl.is