13.07.2011 12:34

Kaup Samherja á ÚA samþykkt

                            Kristján Guðmundur og Þorsteinn Már 

Samkeppniseftirlitið hefur fyrir sitt leyti samþykkt kaup Snæfells ehf., dótturfélags Samherja hf., á aflaheimildum, landvinnslu og tveimur skipum Brims hf. Eins og áður hefur komið fram var skrifað undir kaupsamninga þann 1. maí sl. með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Ákveðið hefur verið að nýtt fyrirtæki beri nafnið Útgerðarfélag Akureyringa, ÚA, og mun  Samherji formlega taka við rekstrinum eftir sumarlokanir nú í byrjun ágúst.

ÚA verður rekið sem sérstakt félag innan Samherja. Yfirstjórn félaganna verður sameiginleg og mun Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, stýra útgerð ÚA. Gestur Geirsson, framkvæmdarstjóri landvinnslu Samherja, mun stýra landvinnslu félagsins. Fram hefur komið í fréttum að Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri Brims á Akureyri, hefur verið ráðinn forstjóri Norðurorku.

"Útgerðarfélag Akureyringa á sér langa sögu og góða og skipar sérstakan sess í huga margra heimamanna. Það er að sjálfsögðu ábyrgðarhluti að taka við þessum rekstri en við munum leggja okkur fram um að hann gangi sem best," segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.

Heimild www.samherji.is 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 702
Gestir í dag: 19
Flettingar í gær: 2311
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 570240
Samtals gestir: 21604
Tölur uppfærðar: 29.3.2024 07:59:21
www.mbl.is