07.02.2015 12:23

Hoffell 2 Su Veiðir loðnu fyrir HB Granda

Skipstjóri verður Magnús Þorvaldsson og 1. stýrimaður Gunnar Gunnarsson

HB Grandi hefur gert samkomulag við Loðnuvinnsluna á Fáskrúðsfirði um að skip Loðnuvinnslunnar, Hoffell II, fari til loðnuveiða.

Skipið mun veiða af heimildum HB Granda og landa aflanum til vinnslu ýmist á Akranesi eða Vopnafirði. Þetta kemur fram á vef HB Granda.

Gert er ráð fyrir Hoffell II verði komið til veiða seinni part næstu viku. Skipstjóri verður Magnús Þorvaldsson og 1. stýrimaður Gunnar Gunnarsson.

Þeir eru báðir gamalreyndir skipstjórar og hafa sinnt skipstjórn fyrir HB Granda árum saman.

Aflamark HB Granda í loðnu er um 72.000 tonn og eru nú um 55.000 tonn óveidd. Þau tonn eru enn í sjó en ekki á bankabók að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar forstjóra HB Granda

og vill hann ekki spá neinu um hverju þessi tonn skili í verðmæti.

                          Hoffell 2 SU  mynd þorgeir Baldursson 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 522
Gestir í dag: 62
Flettingar í gær: 561
Gestir í gær: 136
Samtals flettingar: 602517
Samtals gestir: 25354
Tölur uppfærðar: 23.4.2024 14:43:09
www.mbl.is