17.04.2019 00:18

Bjarni Ólafsson AK 70 á landleið með kolmunna

kolmunnaskipin sem eru að veiðum í færeysku lögsögunni eru að fylla um þessar mundir og eru jafnvel á landleið.

               Runólfur Runólfsson skipst mynd þorgeir Baldursson 2018

                     2903 Margret EA 710 mynd þorgeir Baldursson 2019

Margrét EA er á leið til Seyðisfjarðar með 2.000 tonn og Polar Amaroq er á leið til Skagen í Danmörku einnig með 2.000 tonn.

Heimasíðan ræddi við Runólf Runólfsson skipstjóra á Bjarna Ólafssyni AK og spurði frétta af kolmunnamiðunum.

„Það er í sannleika sagt heldur rólegt yfir veiðunum og veðrið er búið að vera skelfilegt.

Hér er mikill fjöldi skipa að veiðum. Þau eru færeysk, rússnesk og íslensk og þau eru að fá misjafnan afla en toga gjarnan lengur en oft áður.

Að undanförnu hafa íslensku skipin yfirleitt verið að fá 250 til 400 tonn eftir að hafa togað frá 10 og upp í 18 tíma.

Við erum nú með okkar fimmta hol í veiðiferðinni og leggjum væntanlega af stað til Neskaupstaðar að því loknu.

Besta holið hjá okkur var 600 tonn og er það með allra besta móti en lakasta holið gaf einungis 100 tonn,“ segir Runólfur.

              2909 Bjarni Ólafsson AK 70 Mynd þorgeir Baldursson 2018

 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1609
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 557
Gestir í gær: 48
Samtals flettingar: 568836
Samtals gestir: 21574
Tölur uppfærðar: 28.3.2024 16:49:52
www.mbl.is