15.11.2020 08:55

Líklega hljóðlátasta skip heims

 


                       Skipið er allt hið glæsilegasta. Mynd/Mest Shipyard 2020

Af Vef Fiskifretta 8 nóvember 2020

Guðjón Guðmundsson

 - gugu@fiskifrettir.is

8. nóvember 2020 kl. 13:00

Jákup Sverri, nýtt hafrannsóknaskip Færeyinga.

Nýju rannsóknaskipi Færeyinga, Jákup Sverri, var gefið nafn í síðustu viku í MEST skipasmíðastöðinni í Færeyjum. Samkvæmt viðurkenndum neðansjávarmælingum er skipið líklega það hljóðlátasta í heimi.

Tvö ár í smíðum

Rannsóknaskipið var tvö ár í smíðum. Fyrra árið fór í að ljúka smíði skrokksins í WBS skipasmíðastöðinni í Litháen og síðara árið fór í að ganga að fullu frá skipinu hjá MEST skipasmíðastöðinni í Þórshöfn. Skipið er 54 metrar á lengd og 13,6 á breidd. Það gengur hraðast 15 hnúta. Í því eru 13 eins manns klefar, 6 tveggja manna klefar og sjúkrastofa með tveimur rúmum. Skipið er með sjö þilför og í því er að finna stórt fundarherbergi og líkamsræktarsal.

Jákup Sverri er útbúinn hátæknivæddum búnaði til fisk- og hafrannsókna og jarðskjálftamælinga. Á skipinu er fellikjölur sem nýtist til þess að koma viðkvæmum mælitækjum á þriggja metra dýpi undir skipinu. Í skipinu er vinnsla, rannsóknastofa og sérútbúin rými til vísindarannsókna.

Jákup Sverri er með dísil-rafknúinni aflrás. Hlutverk hennar er ekki einungis að draga úr eldsneytisnotkun skipsins heldur ekki síður úr hljóðum. Rafmótor knýr fimm blaða skrúfuna og það er þess vegna án gírbúnaðar. Afkastageta aflrásarinnar er 2.400 kW sem umreiknað er 3.200 hestöfl. Raforkan er framleidd í tveimur dísilknúnum rafölum af gerðinni Wärtsilä 8L20, sem hvor um sig hefur afkastagetu upp á 1.500 kW.

Auk þess er skipið með rafknúnum vindum þannig að í stað þess að vökvaleiðslna tengjast rafleiðslur vindunum og því engin hætta á leka frá vökvabúnaði.

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 501
Gestir í dag: 109
Flettingar í gær: 618
Gestir í gær: 77
Samtals flettingar: 584712
Samtals gestir: 23342
Tölur uppfærðar: 16.4.2024 23:07:22
www.mbl.is