17.11.2020 23:30

Uppsjávarveðiskipin halda til Kolmunnaveiða i Færeysku lögsögunni

 

                                     2909 Bjarni Ólafsson AK 70 Mynd þorgeir Baldursson

 
 

Bjarni Ólafsson AK heldur til kolmunnaveiða í færeyskri lögsögu í dag. Í tilefni af því sló heimasíðan á þráðinn til Runólfs Runólfssonar skipstjóra.

„Við munum halda til veiða í dag en oft hefur veiðin í færeysku lögsögunni verið að byrja um þetta leyti.

Færeysk skip hafa að undanförnu verið að fá þarna smáan kolmunna en sá stærri er væntanlega handan við hornið.

Á undanförnum árum hefur veiðin oft verið góð á þessum árstíma en svo var þó ekki í fyrra enda alltaf vitlaust veður.

Við gerum ráð fyrir að leggja stund á þessar veiðar fram að jólum eða á meðan kvóti er til staðar.

Menn eru bara bjartsýnir á veiðarnar. Það er þó fyrirsjáanlegt að veðrið verður slæmt síðustu daga þessarar viku en síðan mun það ganga niður eins og alltaf,“ segir Runólfur.

Af heimasiðu SVN 

                                2881 Venus NS 150 mynd þorgeir Baldursson 2020

Við þetta  má bæta að Vikingur AK og Venus NS er lika á miðunum og siðan munu skip Eskju  vera lögð af stað 

Jón Kjartansson Su 111 fór fyrstur siðan fór Guðrún Þorkelsdóttir Su 211  i kvöld

og siðastur  fer Aðalsteinn Jónsson Su 11 sennilega á Fimmtudagskvöld og er talað um að skipin verði fram að jólum 

                                       2882 Vikingur AK 100 mynd þorgeir Baldursson 2019

                      2944 Guðrún Þorkelsdóttir Su 211 mynd þorgeir Baldursson 2020

                                           2949 Jón Kjartansson Su 111 mynd þorgeir Baldursson 2020

                                    2929 Aðalsteinn Jónsson SU 11 mynd þorgeir Baldursson 2020

 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 805
Gestir í dag: 25
Flettingar í gær: 3321
Gestir í gær: 184
Samtals flettingar: 598323
Samtals gestir: 24946
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 04:52:03
www.mbl.is