09.04.2020 17:21

DREIFIBRÉF UM MÖGULEGAR HÆTTUR LED-LJÓSA Á HAFI ÚTI  

-->

                                        DREIFIBRÉF UM MÖGULEGAR HÆTTUR LED-LJÓSA Á HAFI ÚTI

 

                  

                            Áskell ÞH 48 mynd þorgeir Baldursson feb 2020

Á dögunum gaf Samgöngustofu út dreifibréf dreifibréf þar sem fjallað er um hvaða hættur geta stafað af LED-ljósum og búnaði þeirra um borð í skipum og bátum.

Á heimasíðu Samgöngustofu segir að með tilkomu nýrra ljósgjafa (LED perunnar) hafa komið upp vandamál er snúa að því að LED perur og búnaður við þær, geti gefið frá sér rafsegulbylgjur í þeim mæli að þær hafi truflandi áhrif á fjarskiptabúnað og siglingatæki um borð í bátum og skipum. Í versta falli hafa komið upp tilfelli þar sem fjarskiptabúnaður er óstarfhæfur.

Af þessum sökum gerir Samgöngustofa kröfu til hönnuða og útgerða skipa og báta að við val á ljósum af þessari gerð verði horft til þess að LED perur og tilheyrandi búnaður þeirra, uppfylli grunnkröfur hvað varðar rafsegulsamhæfi (Electro Magnetic Compatibility EMC), sbr. reglugerð nr. 303/2018 um rafsegulsamhæfi. Vörur eins og LED-ljósabúnaður á að vera CE-merktur og honum á að fylgja ESB samræmisyfirlýsing (Declaration of Conformity).

Samgöngustofa og skoðunarstofur með skipum og bátum munu athuga á næstunni (eins fljótt og hægt er) sérstaklega hvort LED ljósabúnaður skipa og báta uppfylli grunnkröfur og gera viðeigandi ráðstafanir.

Nánari upplýsingar eru að finna í dreifibréfinu

Audlindin.is

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 2811
Gestir í dag: 136
Flettingar í gær: 3321
Gestir í gær: 184
Samtals flettingar: 600329
Samtals gestir: 25057
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 17:02:55
www.mbl.is