25.05.2020 21:17

Frosti þH aftur tilbúinn i slaginn

          2433 Frosti Þh 229 togar á Papagrunni mynd þorgeir Baldursson 

                 2433 Forsti ÞH á toginu  mynd þorgeir Baldursson 23 mai 2020

Frosti ÞH á Grenivík á veiðar á ný

Að loknum gagngerum viðgerðum og endurbótum sem stóðu yfir í sautján mánuði hóf skuttogarinn Frosti ÞH 229 veiðar á ný í byrjun mars. Frosti er gerður út af samnefndri útgerð á Grenivík. Eins og margir muna kom eldur upp í vélarrúmi skipsins á Halamiðum, norðvestur af Hornströndum, í október 2018.

Tólf voru í áhöfn Frosta þegar kviknaði í skipinu. Einn skipverji hlaut annars stig bruna en aðra sakaði ekki. Varðskipið Týr dró skipið til hafnar í Hafnarfirði. Þorsteinn Harðarson skipstjóri segir að endurnýja hafi þurft nánast allar raflagnir í vélarrúminu. Auk þess þurfti að setja í skipið nýja aðalvél, gír og skrúfu. Þetta voru því umfangsmiklar lagfæringar og endurnýjun sem gera þurfti á skipinu. Þorsteinn segir að allt hafi þetta hlaupið á umtalsvert háum upphæðum og skipið var frá veiðum í sautján mánuði.

Ný vél, skrúfa og gír

„Það er ekki gott að missa skip úr rekstri allan þennan tíma og ekki síður var þetta erfitt fyrir mannskapinn. Sem betur fer komust þeir margir hverjir í önnur pláss og voru þar í afleysingum meðan við vorum stopp. Útgerðin varð að leigja frá kvótann til að halda sér gangandi meðan á þessu stóð. Við náðum líka að færa eitthvað af honum fram á þetta fiskveiðiár.“

Fátt er óhugnanlegra en þegar eldur kemur upp í skipi úti á rúmsjó. Þorsteinn segir að það hafi farið betur en á horfðist og menn sloppið með skrekkinn. Landhelgisgæslan hafi haft sérstaklega á orði að það mætti þakka hárréttum viðbrögðum skipverja.

„Þarna var Slysavarnaskóli sjómanna að sanna gagnsemi sína. Við höfum allir sótt okkur þekkingu og þjálfun þaðan nokkrum sinnum. Þarna læra menn handtökin og það síast inn.“

Sumir segja að skipið sé nú enn betra en það var fyrir eldsvoðann. Þorsteinn segir engan galdur felast í því. Það séu komnir nýir hlutir í stað hluta sem voru orðnir 20 ára gamlir. Frosti er 29 metra langt stálskip smíðað í Kína árið 2000.

Góð veiði fram að þessu

„Við erum suður í Lónsdýpi. Það er lítill gangur í þessu. Við ætluðum að reyna við ufsa og karfa en það hefur ekkert gengið. Ég veit ekki hvenær þolinmæðina þrýtur. Við höngum kannski yfir þessu fram á kvöldið. Við erum búnir að vera hérna fyrir austan í rúma viku og það er ekki hægt að segja að það sé sumarlegt yfir þessu. Það er reyndar gott veður núna en tíðarfarið hefur verið hundleiðinlegt að undanförnu. Þegar við komum hingað austur gerði norðaustanstorm og svo var suðvestanstormur í tvo daga,“ sagði Þorsteinn þegar Fiskifréttir slógu á þráðinn. Þeir voru þá fremur nýlega komnir á miðin en höfðu landað tvö síðustu skiptin á Djúpavogi. Hann sagði að veiðar hefðu gengið mjög vel fram að þessu.

„Það hefur verið mjög góð veiði fram að þessu. Frá því við fórum aftur af stað höfum við verið að landa í Þorlákshöfn og Grindavík. Svo færðum við okkur núna hingað austur fyrir. Fiskverð fór dálítið niður um tíma en landið er að rísa á ný. Við vonum að þetta sé allt á réttri leið aftur,“ segir Þorsteinn.

Frosti hefur verið í föstum viðskiptum við Íslenskt sjávarfang mörg undanfarin ár með þorsk, ufsa og ýsu.

Viðtalið birtist i sjómannadagsblaði fiskifretta þann 4 júni 2020

 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1666
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 557
Gestir í gær: 48
Samtals flettingar: 568893
Samtals gestir: 21574
Tölur uppfærðar: 28.3.2024 17:37:19
www.mbl.is