Færslur: 2007 Ágúst

20.08.2007 16:07

Tásubað i bliðunni

ÞEIR VORU FLOTTIR STRÁKARNIR SEM AÐ LJÓSMYNDARI HITTI I MIÐBÆ AKUREYRAR Á DÖGUNUM OG VORU SNÖGGIR AÐ PÓSA OG FANNST EKKERT  TILTÖKU  MÁL  AÐ STÖKKVA ÚTI GOSBRUNNINN

19.08.2007 23:41

NJÖRÐUR EA 151

Hvað geta menn sagt mér um þennan bát þarna er hann með hrefnubyssunni og greinilega til i slaginn  mig minnir að ég hafi siðast séð hann i kópavogshöfn getur það passað hjá mér

19.08.2007 21:03

KIEL NC 105 Mokfiskar við Grænland

Fiskaði kvótann á tíu dögum við Grænland.
 
Skip moka nú upp vænum þorski við austur Grænland. Togari frá þýsku útgerðarfélagi í eigu Samherja kemur til Hafnarfjarðar í fyrramálið með metafla, 700 tonn af frystum flökum.

Fram kemur í fréttum á ruv.is að íslendingar eigi engan kvóta við austur Grænland en sjómenn segja að þar hafi verið mikil og góð þorskveiði undanfarin 2 ár. Skip frá Evrópusambandinu hafa nú í fyrsta sinn í langan tíma fengið kvóta við Grænland og hafa komist í mokveiði. Þýski togarinn Kiel, sem er óbeint í eigu Samherja, hefur undanfarið veitt þorsk við austur Grænland. Skipstjórinn Brynjólfur Oddsson er eini Íslendingurinn um borð en áhöfnin er þýsk. Á 10 dögum veiddist þar allur þorskkvóti skipsins sem gerði um 700 tonn af frystum flökum.

Brynjólfur skipstjóri segir að þetta sé orðinn besti túr sem um getur á skipinu, fyrir heildaraflann fáist á bilinu 400 til 450 miljónir. Í raun hafi þeir ekki haft undan að frysta aflann, í besta halinu hafi þeir fengið 30 tonn á 15 mínútum.

Góð þorskveiði við austur Grænland vekur athygli þegar dregið er úr þorskveiði hér við land, segir Kristján Vilhelmsson útgerðarstjóri Samherja.
heimild www.123.is/skipamyndir  mynd þorgeir baldursson

19.08.2007 18:59

NJÖRÐUR EA 151

JÆJA HÉRNA KEMUR NYND AF NIRÐI EA 151 HVAÐ VARÐ UM HANN

19.08.2007 14:07

Valbjörn is 13

hérna kemur eitt likanið úr byggðasafninu á isafirði  i viðbót hvað geta menn sagt mér um það

19.08.2007 12:16

Gamall trébátur I Eyjafirði

jæja  spekingar góðir núna reynir á snilli ykkar þessi bátur liggur i fjörunni austamegin i eyjafirði og væri nú gaman að fá upplýsingar frá ykkur um hann svo er grein um gamla árabáta og viðtal við Bjarna Jónsson listmálara i morgunblaðinu i dag og þar fjallar hann meðal annas um þjóðararfinn gömlu tréskipin

18.08.2007 12:32

SURPRISE HU 19

SURPRISE HU 19 Á SIGLINGU Á EYJAFIRÐI I GÆRKVELDI ÞETTA ER SVOLITIÐ SÉRSTAKT NAFN Á SKIPI OG HEFUR ÝMSUM ATHUGASEMDUM VERIÐ SKOTIÐ Á SKIPSTJÓRNARMENN VEGNA ÞESSA

15.08.2007 16:41

PÁLL PÁLSSON IS 402

ÞESSI  BÁTUR VAR LENGI GERÐUR ÚT FRÁ ISAFIRÐI  OG HVAÐ SVO

14.08.2007 21:06

DRÖFN IS 5

SÆLIR SPEKINGAR HVAÐ SEGIÐ ÞIÐ MÉR UM ÞENNAN BÁT SEM AÐ ER Á BYGGÐASAFNINU Á ISAFIRÐI

13.08.2007 23:14

Sigurbjörg ÓF 1 i slipp á Akureyri

Sigurbjörg Óf 1 eitt skipa Ramma h/f var i slipp á Akureyri i dag  og var verið að zinka og gera klárt fyrir botnmálun en sem kunnugt er fékk skipið i skrúfuna þegar það var á veiðum i barentshafi i siðastatúr og tók f/T venus  hf 519 hann i tog útfyrir rússnesku lögsöguna þar sem að skorið var úr skrúfunni og siðan var siglt fyrir eigin vélarafli heim til Islands  þar var svo skipið sett i slipp vegna leka i stefnisröri og mun viðgerð ljúka á morgun

13.08.2007 19:57

Bruggsmiðjan á Árskógssandi

Bruggsmiðjan á Árskógssandi, sem framleiðir bjórinn Kalda, annar engan veginn eftirspurn þrátt fyrir að framleiðslan hafi verið aukin um 80% í maí sl. Agnes Anna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri segir að með þessari aukningu gætu þau annað eftirspurninni en svo hafi ekki verið. ?Við erum að framleiða ríflega 25 þúsund lítra á mánuði núna, en það er hvergi nærri nóg, og verksmiðjan er rekin á fullum afköstum. Við gætum komið fyrir fleiri bruggtönkum án þess að stækka húsnæðið, og við munum skoða það í vetur ef svo fer fram sem horfir.?Starfsmenn voru í upphafi fjórir en eru nú orðnir sjö, m.a. er búið að ráða annan bruggmeistara frá Tékklandi og er hann fluttur á Árskógssand með fjölskyldu sína. Bruggsmiðjan framleiðir bæði ljósan og dökkan Kalda og segir Agnes að báðar gerðirnar njóti mikilla vinsælda. Ekki er nóg með að fólk gleypi við bjórnum. Mikið er um að bæði einstaklingar og hópar komi í Bruggsmiðjuna til að skoða verksmiðjuna, kynna sér framleiðsluna og síðast en ekki síst að fá að smakka. Þá má loks geta þess að innan tíðar verður heimasíða Bruggsmiðjunnar opnuð og slóðin er www.bruggsmidjan.is eða www.kaldi.is. heimild dagur.net mynd þorgeir

12.08.2007 19:46

GUÐBJÖRG 14

Guðbjörg is hvað voru þær margar og hver veit útgerðarsögu þeirra

11.08.2007 19:44

Fiskidagurinn 2007 Dalvik

Það var griðarlega góð stemming á fiskidögum á dalvik þetta árið og hefur hátiðinni vaxið fiskur um hrygg með hverju ári og  i ár er talið að um 30000 manns hafi verið á svæðinu eða komið við og eru mósthaldarar i skýunum með þetta allt saman  fleiri myndir i MYNDAALBÚMI  efst á siðunni 

11.08.2007 01:28

FISKISÚPAN DALVIK 2007

JÆJA NÚ ERU KOMNAR MYNDIR I MYNDAALBÚM AF FISKISÚPUKVÖLDINU 2007 ENDILEGA SKRIFIÐ VIÐ MYNIRNAR NÖFN FÓLKS EF AÐ ÞIÐ VITIÐ UM ÞAU NJÓTIÐ VEL GÓÐIR  HÁLSAR

10.08.2007 17:38

GUÐNÝ IS 266

HVAÐ GETA MENN SAGT MÉR UM ÞENNAN BÁT 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1017
Gestir í dag: 94
Flettingar í gær: 1762
Gestir í gær: 168
Samtals flettingar: 595214
Samtals gestir: 24831
Tölur uppfærðar: 19.4.2024 10:39:52
www.mbl.is