Færslur: 2008 Maí

05.05.2008 18:02

Beta VE 36


                                                   2364 Beta VE 36 © Emil Páll
Er bátnum ekki aðeins brugðið? Myndin er tekin í Sandgerðishöfn í dag.

04.05.2008 21:19

Hver var þessi ?



Hvað segja menn um þennan ?

981 Sigurfari AK 95 er báturinn.

04.05.2008 20:46

Hvað er vitað um þennan?



Hvað er vitað um þennan og hvað varð af honum? Það skal þó upplýst að hann var gerður út víða um land í 24 ár.

400. Þessi bátur var smíðaður í Danmörku 1930 og keyptur hingað til lands níu árum síðar. Frá þeim tíma bar hann nöfnin Gloría ST 21 frá Hólmavík, Fiskaklettur GK 130 frá Hafnarfirði, Farsæll SH 30 frá Grundarfirði, Farsæll GK 8 frá Garði og að lokum Farsæll KE 27 í eigu Páls H. Pálssonar, stofnanda Vísis hf í Grindavík, en hann átti heima í Keflavík. Báturinn sökk út af Stafnesi 19. feb. 1964.

04.05.2008 19:09

Hjálparmenn Þorgeirs eru:

Þá 13 daga sem svonefndir Hjálparmenn Þorgeirs hafa séð um síðu þessa meðan hann er úti á sjó, hefur nokkur spenningur verið um hverjir þeir væru og því verður eftirfarandi nú upplýst.
 
Snemma í vetur fór Þorgeir að bera það upp hvort Emil Páll væri tilbúinn til að sjá um síðuna fyrir sig meðan hann væri úti á sjó, en hann sagðist vilja fá Óskar Franz með sér og ef hann vildi það þá gæti það gengið upp. Féllst Óskar á þetta og fóru leikar því þannig að við tókum við þessu hlutverki. Nafnleysið var frekar svona getraun af okkar hálfu en eitthvað annað, eins og þegar birtar eru myndir af skipum og spurt um þau.
Um framhaldið er óráðið, en við munum þó sinna þessu eftir bestu getu einhvern tíma og Þorgeir kemur inn í þegar hann er í landi.
 
Með kveðju
Emil Páll Jónsson
Óskar Franz Óskarsson

04.05.2008 18:00

Hver var þessi meðan hann var í flota okkar íslendinga ?



Hér kemur mynd af einum sem var í flota íslendinga í sex ár.
Skipið var lengt tveimur árum  áður en hann kom hingað til lands.
Myndin er tekin áður en skipið var lengt.

2253 Elliði GK 445 er skipið.

04.05.2008 11:30

Njarðvíkur - smíði


Þó Njarðvík hafi hér áður fyrr verið þekktari fyrir smíði eika- og/eða stálskipa, tók plastið yfirhöndina þar sem annarsstaðar. Á tímabili voru tvær skipasmíðastöðvar í Njarðvík sem byggðu þilfarsbáta úr plasti, önnur þeirra er nú flutt annað, en hin hætt starfsemi. Svo við förum aftur til ársins 2004 en í mars mánuði á því ári afhentu báðar þessar smiðjur nýja báta sem myndir koma af hér. Annars vegar þá er það Sólplast ehf., fyrirtæki sem nú hefur flutt í Sandgerði og er einmitt þessar vikurnar að ljúka frágangi á nýjum þilfarsbáti þar. Bátur sá sem mynd birtist af hér er Grunnvíkingur HF 163. Hin smiðjan er Mótun ehf. smiðja sem var áður en til Njarðvíkur kom bæði í Hafnarfirði og eins í Kanada. Sú smiðja hefur smíðað alls um 500 báta bæði með og án þilfars og í Njarðvík áður en yfir lauk smíðuðu þeir á 3ja tug þilfarsbáta. Sá bátur frá þeim sem hér birtist mynd af Daðey GK 777 var á þeim tíma fyrsti plastbáturinn á Íslandi sem var yfirbyggður og með beitningavél og því talið algjört tækniundir á þeim tíma.

                                         Daðey GK 777  ©Emil Páll      

                                           Grunnvíkingur HF 163 ©Emil Páll

03.05.2008 08:46

Baldur KE 97




                                          
                                                     311. Baldur KE 97 ©Emil Páll
Fyrsti frambyggði fiskibáturinn á Íslandi var Baldur KE 97 sem smíðaður var í Djupvik í Svíþjóð 1961 eftir teikningu Egils Þorfinnssonar. Eftir um 40 ára útgerð var ákveðið að gera hann að safngrip og var hann því tekin á land í ágúst 2003 og fluttur að smábátahöfninni í Grófinni í Keflavík þar sem hann er varðveittur og til sýnis.

02.05.2008 22:07

1048 Fífill GK 54



Hér kemur mynd af systurskipi Gígju RE 340.

02.05.2008 15:15

Andrea


                                                                  © Emil Páll
Þetta er farþegabáturinn Andrea - 2738 sem skráður er á Akranesi, en eigandi er í Kópavogi. Báturinn var keyptur hingað til lands á síðasta ári og er gerður fyrir 50 farþega. Hér sjáum við bátinn í Njarðvíkurslipp nú á dögunum.

01.05.2008 21:43

1058 Gígja RE 340



Hér kemur einn smíðaður í Noregi 1967.
Hét upphaflega Gígja RE 340. Árið 1970 fær hann nafnið Særún ÍS 9 frá Bolungarvík, seldur til Reykjavíkur 1972 og heitir þar Þorsteinn RE 303. Seldur til Noregs 1976 og fær nafnið Teigland H-18-B. Árið 1981 fær hann nafnið Alfon Junior ???. Árið 1989 heitir hann Viking I T-303-T og síðan Víking I SF-303-V. Endar svo tilveru sína í brotajárni
17.09.2002.



01.05.2008 13:39

2780 Ásgrímur Halldórsson SF 250




Nýtt skip kom til Hornafjarðar í gær miðvikudag,mynd af vef Horn.is.

01.05.2008 00:27

Hoffell

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1149
Gestir í dag: 93
Flettingar í gær: 1385
Gestir í gær: 74
Samtals flettingar: 605353
Samtals gestir: 25529
Tölur uppfærðar: 25.4.2024 13:54:39
www.mbl.is