Færslur: 2009 Apríl

09.04.2009 23:25

Íslandsbersi HF, Magnús Ingimarsson SH og Glaður ÍS

Hér sjáum við Íslandsbersa HF 13, Magnús Ingimarsson SH 301 og Glað ÍS 221 í Hafnarfjarðarhöfn um síðustu helgi.




    2099. Íslandsbersi HF 13, 1850. Magnús Ingimarsson SH 301 og 1922. Glaður ÍS 221 © myndir Þorgeir Baldursson

09.04.2009 23:14

Lundey NS 14 og Faxi RE 9

Hér birtist smá syrpa með bátunum Lundey NS 14 og Faxa RE 9 sem Þorgeir Baldursson tók fyrir rúmri viku í og við Reykjavíkurhöfn.


                                                      Lundey NS 14

         Lundey NS 14 og Faxi RE 9 á ytri-höfninni í Reykjavík © myndir Þorgeir Baldursson

09.04.2009 13:32

Ber vel fullfermi

Nú áðan kom Muggur KE 57, 15 tonna bátur sem byggður var á síðasta ári hjá Sólplasti í Sandgerði með um 16 tonna afla að landi í Sandgerði. Eins og sést á myndinni ber hann aflann vel, en lestin var full, auk þess sem fiskur var í körum á þilfarinu.


             2771. Muggur KE 57, kemur að landi í Sandgerði núna áðan, það er ekki hægt að segja annað en að hann beri nánast fullfermi vel


        Lestin full og fiskur í körum á þilfarinu, annar eiganda Jóhann Jónsson sést á myndinni © myndir Emil Páll

09.04.2009 10:42

Jörundur II RE 299 / Hamar SH 224


                            253. Jörundur II RE 299 © mynd Snorri Snorrason

                           253. Hamar SH 224 © mynd Þorgeir Baldursson 2009

09.04.2009 10:34

Jón Jónsson SH 187 / Fanney HU 83


                              619. Jón Jónsson SH 187 © mynd Snorri Snorrason

                               619. Fanney HU 83 © mynd Þorgeir Baldursson 2009

08.04.2009 23:09

Fréttir af miðunum


      
                          ©myndir þorgeir baldursson 2009
Þeir voru kampakátir félaganir stefán Daniel Ingasson og Tómas Theódórsson
með þessa stóru Löngu sem að kom um borð i kvöld hún var um 2 metrar á lengd
auk þess var hrognasekkurinn um 5 kiló að þyngd og hérna fyrir ofan má sjá Stefán með
sekkinn

08.04.2009 23:03

Ocean Tiger R 38


                  Ocean Tiger R 38 í Hafnarfirði um síðustu helgi © mynd Þorgeir Baldursson

08.04.2009 22:13

Havborg FD 1185 ex Bessi ÍS 410







Færeyski togarinn Havborg FD 1185 ex Havborg FD 1160 ex South island TG 111 ex Bessi ÍS 410 í Hafnarfirði um síðustu helgi © myndir Þorgeir Baldursson

08.04.2009 19:48

Sæljós GK selt frá Sandgerði til Djúpavogs

Stálbáturinn Sæljós GK 185 sem var með heimahöfn í Sandgerði hefur nú verið seldur Ósnesi og Eyfreyjunesi á Djúpavogi og er hann þegar kominn austur. Frá sölunni var sagt á skipasíðu Ragnars Pálssonar og vitnað í heimasíðu Djúpavogs.


                                 1068. Sæljós GK 185 © mynd Emil Páll

08.04.2009 14:43

Minna tjón en haldið var

Nú er ljóst að tjónið af völdum brunans í Oddi á Nesi SI 76 er mun minna en haldið var. Eins og sést á myndinni er yfirbygging bátsins illa brunnin, en þar með er nánast upptalið það sem ónýtt er og mest allt neðan þilja er óbrunnið. Því verður gert við bátinn þó það liggi ekki fyrir hvar það verði gert eða hverjir láta gera það. Þá virðist liggja fyrir að upptök eldsins voru ekki frá logsuðu eins og haldið var heldur eitthvað nálægt eldavélinni, en þar hafði engin logsuða farið fram.


                             Svona lítur báturinn út í dag © mynd Emil Páll

08.04.2009 11:39

Sigurður VE 15




                                   Sigurður VE 15 ©  myndir Þorgeir Baldursson

07.04.2009 22:06

Sólbakur rauf 1000 tonna múrinn



Samkvæmt upplýsingum á aflasíðu Gísla Reynissonar rauf Sólbakur EA ( áður Kaldbakur EA) 1000 tonna múrinn núna í mars.  Er það nokkuð sjaldfjæft að togari komist yfir 1000 tonn, og síðast gerði Ásbjörn RE það fyrir nokkrum árum síðan.
Sólbakur kom inn til Reykjavíkur sl. sunnudag og var strax landað úr honum og fór hann síðan aftur út að kvöldi mánudags, en þann dag tók Þorgeir Baldursson með fylgjandi myndir af togaranum.




          1395. Sólbakur EA 1 í Reykjavíkurhöfn um síðustu helgi © myndir Þorgeir Baldursson

07.04.2009 15:43

Fleiri myndir frá Skinney SF 20

Bræðurnir Andri Snær og Bragi Fannar Þorsteinssynir á Hornafirði sendi okkur tvær myndir til viðbótar sem teknar voru eftir að Skinney SF 20 kom að bryggju í heimahöfn sinni í dag. Önnur sýnir trolldekkið og hin skipstjóra skipsins Margeir Guðmundsson.


                Margeir Guðmundsson skipstjóri í brú skipsins við komuna til Hornafjarðar

                          Trolldekkið © myndir Andri Snær og Bragi Fannar

07.04.2009 10:22

Nýja Skinney komin

Þorsteinn Guðmundsson á Hornafirði tók þessar myndir af Skinney SF 20 er hún var fyrir utan Hornafjörð í morgun og sendum við honum bestu þakkir fyrir.






    2732. Skinney SF 20 fyrir utan heimahöfnina Hornafjörð í morgun © myndir Þorsteinn Guðmundsson

06.04.2009 23:36

Antares VE 18


                      2277. Antares  VE 18 © mynd Þorgeir Baldursson

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 650
Gestir í dag: 68
Flettingar í gær: 561
Gestir í gær: 136
Samtals flettingar: 602645
Samtals gestir: 25360
Tölur uppfærðar: 23.4.2024 19:08:23
www.mbl.is