Færslur: 2010 Mars

31.03.2010 19:03

Kynning á starfsemi Samherja á Glerártorgi

Sett hefur verið upp kynning á starfsemi Samherja í máli og myndum á Glerártorgi á Akureyri. Sýningin er áhugaverð fyrir Eyfirðinga sem og aðra gesti þar sem hún lýsir bæði starfseminni innan lands og utan og einnig áhrifum starfseminnar á samfélagið t.d. hér við Eyjafjörð. Sýningin er opin til 19.apríl. Myndir frá sýningarsvæðinu i dag


                          Á GLERÁRTORGI I DAG ©MYND ÞORGEIR BALDURSSON

                                          Talsverð traffik© Mynd þorgeir Baldursson 

       FLOTT SÝNING  © MYND ÞORGEIR BALDURSSON  

31.03.2010 12:11

Góður gangur hjá Samherja


                             2410- Vilhelm Þorsteinsson EA 11 ©Mynd Þorgeir Baldursson
Vilhelm Þorsteinsson EA 11 á siglingu fyrir utan Grindavik með fullfermi af loðnu um 2800 tonn
skipstjóri var Sturla Einarsson Núverandi skipst á Guðmundi VE 29

Fréttir

Velta Samherja 56 milljarðar króna á síðasta ári

miðvikudagur 31.mar.10 09:39
Húsfyllir var á kynningarfundi Samherja á Hótel KEA.
Húsfyllir var á kynningarfundi Samherja á Hótel KEA.
Samherji hf. er með starfsemi víða um heim og fer 70% af starfsemi fyrirtækisins fram erlendis og 30% hér á landi. Velta Samherja nam 56 milljörðum króna á síðasta ári, efnahagur fyrirtækisins er sterkur og það hefur verið rekið með  hagnaði frá upphafi. Samherji gerir út 28 skip, rekur 6 landvinnslur og 5 eldisstöðvar. Skip fyrirtækisins veiða samtals um 400 þúsund tonn af fiski.
 

Þetta var á meðal þess sem fram kom í máli Þorsteins Más Baldvinssonar forstjóra Samherja, á fundi sem haldinn var á Akureyri fyrir helgi. Þar gerði hann m.a. grein fyrir rekstri fyrirtækisins og hvaða áhrif það hefði á samfélagið hér á Eyjafjarðarsvæðinu. Starfsmenn Samherja á Íslandi eru 600 og eru 70% þeirra  búsettir á Eyjafjarðarsvæðinu. Á skrifstofu Samherja á Akureyri starfa 35 manns og sagði Þorsteinn Már að helmingur þeirra starfa sé til komin vegna starfsemi fyrirtækisins erlendis. "Þá höfum við haft eina reglu frá því að við fórum að starfa erlendis, sem er sú að það eru Íslendingar sem stjórna öllum okkar fyrirtækjum og skipum erlendis."

Til að sýna umfang Samherja hér svæðinu, nefndi Þorsteinn Már, að fyrirtækið hefði greitt 74 fyrirtækjum á Akureyri fyrir þjónustu í febrúar sl., samtals 133 milljónir króna. Þá greiddi Samherji 21 fyrirtæki á Dalvík samtals 24 milljónir króna í síðasta mánuði.  Einnig greiddi fyrirtækið 282 milljónir króna í laun. Fyrirtækið keypti þjónustu á Akureyri á síðasta ári fyrir 1.340 milljónir króna af rúmlega 200 fyrirtækjum.  Alls greiddi Samherji 5.000 milljónir króna á síðasta ári til starfsmanna, fyrirtækja og félaga í Eyjafirði. Þar af eru laun 3,2 milljarðar, kaup á vöru og þjónustu 1.730 milljónir og styrkir 70 milljónir króna. "Þannig að við, sem oftast er talað um sem þiggjendur, erum að koma með um 5.000 milljónir króna inn á Eyjafjarðarsvæðið. Fyrirtækið Samherji er því að skapa ýmislegt hér á þessu svæði," sagði Þorsteinn Már.

Hann sagði að Samherji hefði lagt sitt af mörkum til að draga verkefni inn á svæðið í gegnum árin. Fyrirtækið hefur komið að endurskipulagningu og endurreisn fyrirtækja og nefndi sem dæmi Kælismiðjuna Frost og Slippinn Akureyri en Samherji er hluthafi í báðum fyrirtækjunum. Þorsteinn Már sagði að sjávarútvegur við Eyjafjörð væri þýðingarmikil grein og hefði einnig áhrif á aðrar starfsgreinar. Hann sagði að tilfærsla aflaheimilda hefði áhrif á starfsemina í Eyjafirði. Nauðsynlegt væri að búa við stöðugleika, svo hægt væri að ráðast í fjárfestingar, auk þess sem þjóna þyrfti viðskiptavinum með afhendingaröryggi.

"Það eru erfiðir tímar á Íslandi í dag og mikið gengur á. Það er von mín að það sem okkur hefur tekist að byggja upp á Dalvík, með stöðugleika í hráefnisöflun í áratug, verði ekki öllu kastað burt með illa ígrunduðum breytingum á rekstrarumhverfi sjávarútvegsins í landinu. Það er allt of mikið í húfi til þess að við getum leyft okkur slíkt verklag. Sjávarútvegur og fiskvinnsla munu eiga stóran þátt í að skapa okkur gjaldeyri í framtíðinni og vinna þannig þjóðina út úr þeim ólgusjó sem hún siglir í um þessar mundir. Mikilvægasta verkefni Íslendinga næstu mánuði er fyrst og fremst að vinna áfram saman af krafti, dugnaði og þrautseigju," sagði Þorsteinn Már.
 Heimild www.vikudagur.is



30.03.2010 10:27

Nýr skipstjóri á Gandi Ve 171


                            Kristján Einar Gislasson Skipst ©Mynd þorgeir Baldursson 2009

                                            Gandi Ve 171 © Mynd Tryggvi Sigurðsson 2010
Vinnslustöð Vestmannaeyja hefur ráðið skipstjóran Kristján Einar Gislasson skipstjóra á Mars RE 205 sem skipstjóara á Gandi Ve 171 sem að félagið keypti i siðasta mánuði en Mars RE  hefur mú verið lagt aðminstakosti framyfir páska mun þá fara einn túr og siðan verður skipinu lagt timabundið i óákveðin tima

29.03.2010 02:24

Tróndur i Götu FD 175



                                       Tróndur i Götu FD 175 i Tóftum mynd Jón Pálmi Pétursson

                                          Við Bryggju i Færeyjum mynd Jón Pálmi Pétursson

                          Horft fram á Bakkann © mynd Jón Pálmi Pétursson

                                  Flottrollstrommurnar ©Mynd Jón Pálmi Pétursson

                                                Afturskipið ©Mynd Jón Pálmi Pétursson

                                       Brúinn © Mynd Jón Pálmi Pétursson
Þessar myndir af Þrándi i Götu sendi mér Jón Pálmi Pétursson sem að er búsettur i tóftum i færeyjum
i um 20 ár og kann ég honum bestu þakkir fyrir afnotin
Helstu mál skipsins eru eftirfarandi lengd 81,60 M. og breidd 16.62 M.
og það mælist 3527 TONN
i þvi er aðalvél Wartsila 12V 32. 8046 Ha
eigandi skipsins er P/F Hvamm í Götu í Færeyjum
En stálvinna skipsins fór fram í Póllandi fyrir Karstensens Skibsværft A/S. í Skagen í Danmörku.
En stöðin í Skagen er afhendingaraðili skipsins.

















29.03.2010 01:07

Netabætning i denn


                       Netabætning um borð i Sólbak EA 305 © mynd Gauti Hauksson
Þeir voru allvigalegir Þeir Haukur Hauksson og Hilmar Sæmundsson skipverjar á Sólbak EA 305
við bætningu á trollinu en manninn aftan við þekki ég ekki Sólbakur hét eitt sinn C.S.Forester
og var Breskur lanhelgisbrjótur undir stjórn Taylors

28.03.2010 11:53

Lágey þH 265 eftir strandið


                         Lágey þH 265 kominn á þurrt © Mynd Svafar Gestsson

                                      Skrúfan og stýrið  © mynd Svafar Gestsson

                                 Stýrið og skrúfan Kengbogin © Mynd Svafar Gestsson

                                        Hliðarskrúfan © mynd Svafar Gestsson

                                Talsvert sér á botninum © Mynd Svafar Gestsson

                Lágey  ÞH 265 Biður viðgerðar ©mynd Svafar Gestsson 2010
Nokkrar myndir af björgun Lágeyjar i gær Svafar bestu þakkir Fyrir myndasendinguna

28.03.2010 01:09

264- Þórður Jónasson EA 350


                         264- Þórður Jónasson EA 350 © Mynd Þorgeir Baldursson
Hérna má sjá Þórð Jónasson EA 350 á siglingu á Eyjafirði nýkominn úr slipp
 Skipstjórinn Hörður Björnsson tók þá hring fyrir ljósmyndarann skipið heitir i dag Gullhólmi SH 201
og er gert út frá Stykkishólmi skipið er smiðað i Stord Skipssmiðastöðinni i Noregi 1964 og bar fyrstu árin RE 350 árið 1973 var skipið lengt og brúin hækkuð og 1978 var byggt yfir skipið og enn 1986 var skipið lengt aftur og þá er þessum breytingum loksins lokið eftir að Agustsson Ehf kaupir
skipið var það sett á linuveiðar og siðan á rækju og hefur útgerð skipsins verið farsæl eftir þvi sem að best verður komist

27.03.2010 07:16

1395-Kaldbakur EA 301


                            1395- Kaldbakur EA 301 © mynd Þorgeir Baldursson 1994
 Hérna má sjá Kaldbak EA 301 Nú Sólbakur EA 1undir skipstjórn Sveins Hjálmarssonar
en hann var skipst á Kaldbak i 22 ár skipið hefur tekið svolitlum breytingum frá upphaflegri
teikningu ma voru siðurnarhækkaðar upp  byggt yfir lunningar settur Andveltigeymir fyrir framan brú
en á móti hefur gálgi ofan á brú verið fjarlægður skipið hefur reynst eigendum sinum vel i þau 37 ár sem að það hefur verið i útgerðog verið með aflahæðstu skipum flotans mörg undan farin ár

25.03.2010 20:10

Tvö skip sömu útgerðar


                                    Björg Jónsdóttir ÞH 321 ©Mynd þorgeir Baldursson

                                      973- Galti  ÞH 320 © Mynd Þorgeir Baldursson
Hérna má sjá tvö skip sömu útgerðar hver er saga þeirra og hvað varð um þau

25.03.2010 08:15

Eyborgin EA 59 á Hólmavik


                                   Eyborg EA 59 © Jón Halldórsson

                   Kemur i Höfn á Hólmavik seinnipartinn i gær © Mynd Jón Halldórsson

                                     komið til Hafnar © mynd Jón Halldórsson

                                      Við Bryggju á Hólmavik ©Mynd Jón Halldórsson  2010
Þessar myndir tók Jón Halldórsson á Hólmavik og sendi mér til birtingar þegar Eyborg EA 59 kom þangað i gær til Löndunnar en skipið var með um 100 tonn af iðnaðarrækju sem að verður unnin hjá rækjuvinnslu Hólmadrangs skipstjóri Eyborgar er Magnús Kristinn Ásmundsson yfirvélstjóri Sigurður ketill Skúlasson Yfirstýrimaður Ari Albertsson skipið hélt svo strax til veiða að lokinni löndun

23.03.2010 19:40

1937- Björgvin EA 311


                             1937-Björgvin EA 311 © Mynd þorgeir Baldursson 2010


                                  Springurinn settur fastur ©Mynd Þorgeir Baldursson

                       Það var annsi kuldalegt á bryggjunni i dag ©mynd þorgeir Baldursson
Björgvin EA 311 kom til hafnar á Akureyri i dag en hann var að koma úr norsku lögsögunni
aflinn þar var með besta móti skipið var með um 600 tonn og voru um 500 tonn þorskur úr
þeirri norsku en restin var tekin á heimamiðum djúpt austur af landinu
aflaverðmætið er um 175 milljónir og túrinn tók 32 daga höfn i höfn

22.03.2010 20:19

Gamlir Siðutogarajaxlar


JÆJA ÞAÐ ER RÆS NÚ EIGA ALLIR GÖMLU SIÐUTOGARAJAXLARNIR AÐ MÆTA UM BORÐ I HÚNA 2 VIÐ TORFUNESBRYGGJU ÞANN 3 JÚLI 2010 OG EINS OG SEGIR I TEKSTANUM HÉR AÐ OFAN ÞÁ TÖKUM VIÐ MEÐ OKKUR GÓÐA SKAPIÐ OG BRJÓSTBIRTUNA OG VONANDI LÉTTIR HÚN UNDIR FRÁSAGNARGLEÐI MANNA SVO AÐ ÞESSI ARFLEIÐ OKKAR GLEYMIST EKKI FÉLAGAR GERUM ÞENNAN DAG ÓGLEYMANLEGAN FYRIR OKKUR ÖLL

18.03.2010 22:35

Tjaldur SH 270 ný vinnslulina


                             Tjaldur SH 270 ©Mynd þorgeir Baldursson

                         Aðgerðar aðstaðan um borð i Tjaldi © mynd Fiskifréttir

Nýtt vinnslukerfi um borð í Tjaldi SH

Snigiltankar tryggja rétta

og jafna meðhöndlun

Nýtt vinnslukerfi var sett upp í beitningarvélabátnum Tjaldi SH milli jóla og nýárs. Kerfið kemur frá 3X Technology. Búnaðurinn er hannaður fyrir vinnslu á línuveiddum fiski og tryggir að allur fiskur fái rétta og jafna meðhöndlun í gegnum vinnslukerfið.

Snigiltankar sjá um að það hráefni sem fer fyrst inn í þá er það sem kemur fyrst út úr þeim. Hámarksafköst kerfisins eru 1.500 kg á klst. Blóðgunarkar og kælikar hafa bæði stjórnskáp þar sem hægt er að festa inni tiltekna blóðgunar- og kælitíma (snúningshraði snigla).

Kæling alla leið

Mögulegt er að safna allt að 3.500 kg af fiski í kælikarið ef þannig stendur á. Með þessu er tryggt að fiskurinn kælist um leið og búið er að slægja hann og hefur það afgerandi áhrif á endanleg gæði. Kælikarið er tengt við krapaískerfi sem er um borð. Kælitanknum er stýrt með hitamælingum sem ráða innflæði kælimiðils.

Í kerfinu eru færibönd og með þeim stjórnskápur. Einnig er þrískipt meðaflakar og aðstaða til slægingar á þremur stórum slægingarborðum. Snigilkör eru rafdrifin og eru ræst frá einum stað í skipinu.

Blæfallegri fiskur

,,Vinnslulínan sem fyrir var í skipinu var barn síns tíma og fullnægði ekki kröfum okkar í dag. Það var því kominn tími á endurbætur," sagði Hjálmar Kristjánsson framkvæmdastjóri KG fiskverkunar ehf. sem gerir Tjald SH út, í samtali við Fiskifréttir.

,,Mér leist sérstaklega vel á hugmyndina að snigilkarinu. Sá fiskur sem fer fyrstur inn kemur fyrstur út. Með því er hægt stjórna hraða fisksins í gegnum kerfið og kælingu hans mjög nákvæmlega," sagði Hjálmar. Hann bætti því við að vinnuaðstaðan um borð hefði einnig batnað til mikilla muna.

,,Vinnslukerfið hefur verið í notkun í nokkrar vikur og reynslan af því er mjög góð. Við sjáum mun á því að fiskurinn er blæfallegri og við ráðum betur við að stýra hitastiginu í honum," sagði Hjálmar
  Heimild Fiskifréttir Kjartan

18.03.2010 17:04

Eyborg EA 59

                                         EYBORG  EA 59  mynd þorgeir baldursson 


Eyborg EA 59 kom til hafnar á Akureyri i morgun úr fyrstu veðiferð eftir að skipið kom til landsins 
eftir að hafa verið á veiðum erlendis um tima skipið var með rúm eitthundrað tonn af iðnaðarrækju 
 sem að verður landað á Hólmavik i birjun næstu viku alls tók veiðiferðin 25 daga höfn i höfn 
aflabrögð hafa farið batnandi með hækkandi sól og hlýnandi veðri 

14.03.2010 00:08

Rækjuveiðar i Denn

                              Stakfell ÞH og Múlaberg ÓF © mynd Gauti Hauksson
 Hérna má sjá  tvö rækjuskip á  veiðislóð úti fyrir norðurlandi seinnihluta siðustu aldar þegar mikill uppgangur var i þeim veiðiskap nú bregður svo við að skipum sem að stunda þessar veiðar
hefur fjölgað jamt og þétt undanfarna mánuði og hafa aflabrögð verið með þokkalegasta móti

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 147
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 3321
Gestir í gær: 184
Samtals flettingar: 597665
Samtals gestir: 24927
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 00:48:37
www.mbl.is