Færslur: 2016 Maí

16.05.2016 11:47

Celebrity Eclipce á Akureyri i gær

Skemmtiferðaskipið Celebrity Eclipce kom til Akureyrar i gær i einmunna bliðu 

um Borð voru 2856 Farþegar 1233 i áhöfn samtals 4089 sem að nýttu daginn vel 

flestir farþeganna voru frá Bandarikjunum alls um 1500 og um 800 frá Bretlandi 

Skipið stoppaði frameftir degi og notuð farþegar tækifærið til að skoða sig um i bænum ásamt þvi að allmargir fóru 

Gullnahringinn Goðafoss Mývatn og Dettifoss alls voru um 50 hópferðabilar á ferðinni bæði smáir og stórir 

fyrir utan leigubila sem  að koma að svona vekefni skipið lét úr höfn um kl 19 

        Siglt inn Eyjafjörð i Fallegu veðri mynd þorgeir Baldursson 2016

                              Glæsilegt Skip  Mynd þorgeir Baldursson 2016

               Akureyri skartaði sinu fegursta veðri mynd þorgeir 2016

                    Hafnarstarfmenn röskir að binda mynd þorgeir 2016

         Siðan var streymt uppá bryggju til að vera klárir i rúturnar þorgeir 2016

                   Eða uppi bæ að skoða mannlifið  mynd þorgeir 2016

      Aðrir skoðuðu heimatilbúnarvörur i Strandgötunni þorgeir 2016

                   Gamli og nýji timinn mynd þorgeir Baldursson 2016

14.05.2016 12:12

Hafsúlan Kemur til Akureyrar

Hvalaskoðunnarfyrirtækið Elding kom i gær með Hafsúluna sem að er 170 manna farþegabátur 

og mun hún verða hérna i nokkrar vikur meðan verið er að klára annan bát sem að Elding er með i 

breytingum i skipasmiðasstöð Njarðvikur sá mun fá nafnið Hólmasól einnig komu tveir minni 

bátar svokallaðir RIB sem að eru opnir Gúmibátar sem að taka allt að 12 farþega og gera 

forsvarsmenn Eldingar ráð fyrir þvi að fara fyrstu ferðina á morgun sunnudag 

að sögn Rannveigar Gretarsdóttur fræmkvæmdastjóra Eldingar i stuttu viðtali við Heimasiðuna 

     Hafsúlan ásamt Rib bátnum koma til Akureyrar i gær mynd þorgeir 2016

                Hafsúlan Við komuna til Akureyrar i gær mynd þorgeir 2016

  Rannveig Gretarsdóttir fræmkvst tekur á móti springnum mynd þorgeir 2016

 Kristinn Magnússon og Rannveig Gretarsdóttir mynd þorgeir Baldursson 2016

                       Hafsúlan við Hof Mynd þorgeir Baldursson 2016

        Gretar  Rannveig Vignir og Kristinn mynd þorgeir Baldursson 2016

 

13.05.2016 18:45

Kleifarberg RE 70 heldur i Rússasjó

Kleifarberg RE 70 kom til hafnar á Akureyri að morgni 12 Mai þar sem að landað var úr skipinu 

um 10000 kössum uppistaðan ufsi siðan var skipið gert klárt til þorskveiða i Rússnesku lögsögunni 

og haldið af staðum kl 22 um kvöldið efttir að tekin hafði verið olia og skipið ferðbúið alls tekur 

siglingin um sex sólahringa Skipstjóri i veiðferðinni er Árni Gunnólfsson 

og fyrsti stýrimaður Stefán Sigurðsson 

                            Kleifarberg RE 70 Mynd þorgeir Baldursson 2016

                    Löndun úr Kleifarberginu mynd þorgeir Baldursson 2016

                   Löndun á Akureyri mynd þorgeir Baldursson 2016

   Árni Gunnólfsson Skipstjóri Kleifarberg RE 70 mynd þorgeir Baldursson 2016

 

                Kleifarberg RE  Oliutaka i Krossanesi mynd þorgeir Baldursson 2016

    Stefán SigurðssonStym  og Árni Gunnólfsson skipst mynd þorgeir Baldursson 

12.05.2016 22:18

Hriseyjarferjan Sævar i slipp i dag

Hriseyjarferjan Sævar hefur verið i slipp undanfarna daga og á meðan hefur hvalaskoðunnarbáturinn Máni 

flutt farþega og vistir milli Hriseyjar og Árskóssands en ferjan ætti að verða klár i birjun næstu viku 

i áætlunarferðir fyrir Hriseyinga og aðra ferðamenn 

                 Nýskveruð og allveg að verða klár mynd þorgeir 2016

          Búið að Snurfunsa og allt apð verða klárt mynd þorgeir 2016

 

02.05.2016 17:56

Ambassadorar á Pollinum i dag

        Ambassadorar á Pollinum i Dag   Mynd þorgeir Baldursson 2016

01.05.2016 20:44

Isleifur 11 Visað til hafnar á Seyðisfirði

Isleifur 11 Ve 336 sem að Landhelgisgæslan visaði til hafnar Mynd Ólafur Guðnasson

 

Landhelgisgæslan setti af stað umfangsmikla leit í gærkvöld, föstudag vegna fiskiskips sem hvarf úr ferilvöktunarkerfi.  

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafði fylgst með skipinu en um kl.19.30 hvarf fiskiskipið úr ferilvöktunarkerfi djúpt austur af landinu.

Fjórir menn voru skráðir í áhöfn skipsins sem virtist vera á leið til Noregs.

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar reyndi ítrekað að ná í skipið í gegnum fjarskipti og gervihnattasíma en án árangurs.

Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF var því send austur til að leita að skipinu. Þá var varðskipið Týr sem statt er á austfjörðum sett í viðbragðsstöðu.

Um klukkan eitt í nótt fann áhöfn flugvélar Landhelgisgæslunnar skipið um 140 sjómílur austnorðaustur af Dalatanga.

Skipið var þá á siglingu til Noregs að sögn skipstjóra og amaði ekkert að áhöfninni.

Skipið virðist hins vegar ekki vera útbúið í samræmi við kröfur til skipa sem sigla yfir hafið og gat þess vegna ekki tilkynnt um ferðir sínar í samræmi við lög.

Þá virtist skipið ekki mannað í samræmi við lög og reglugerðir.

Í ljósi alvarleika málsins vísaði Landhelgisgæslan skipinu til Seyðisfjarðar þar sem mál þess verður rannsakað frekar. 

Landhelgisgæslan lítur þau mál  mjög alvarlegum augum þegar um möguleg brot á reglum um vöktun og öryggismál er að ræða. 

Frétt LHG um málið 

                     Isleifur 11 Ve 336 mynd Ólafur Guðnasson 2016

           Isleifur 11Ve 336 kemur til Seyðisfjarðar mynd Ólafur Guðnasson 2016
 

 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 302
Gestir í dag: 28
Flettingar í gær: 546
Gestir í gær: 102
Samtals flettingar: 557034
Samtals gestir: 20871
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 04:31:53
www.mbl.is