Færslur: 2019 Júlí

31.07.2019 23:38

Kælisniglar um borð i Kaldbak EA 1

   Snigill settur inná millidekk Kaldbaks EA1  mynd þorgeir Baldurssson 2019

         kælisniglarnir við hlið Kaldbaks EA mynd þorgeir Baldursson 2019

       sniglarnir komnir inná millidekk Mynd þorgeir Baldursson 2019

Uppsetning á vinnslubúnaði í ísfisktogarann Kaldbak er í fullum gangi hjá Slippnum Akureyri og gengur vel. Stór hluti af búnaðinum er kominn um borð í skipið og er verið að stilla hann af og setja upp hluta af tölvustýringu fyrir vinnsludekkið. Hjörvar Kristjánsson, verkefnnastjóri nýsmíða hjá Samherja, segir að það ríki mikil eftirvænting fyrir nýja vinnsludekkinu.

„Við erum mjög spennt fyrir vinnsludekkinu í Kaldbak. Það var lögð mikil áhersla á öfluga blæðingu, þvott og góða kælingu á fisknum og við erum fullviss að gæði afurða úr Kaldbak verði framúrskarandi”.

Áætlað er að uppsetning á vinnsludekki Kaldbaks verði lokið fyrir upphaf nýs fiskveiðiárs og að skipið haldi til veiða strax í kjölfarið.

frett á Heimasiðu slippsins

Myndir Þorgeir Baldursson 

 

31.07.2019 22:53

Nýju Skipin hjá Fisk Seafood i Reykjavikurhöfn

                          2749 Farsæll SH 30  mynd Þiðrik Unason 2019

                       2740 Sigurborg SH 12 Mynd Þiðrik Unason 2019

30.07.2019 22:56

Ættardjásnið Áskell Egilsson

    Halldór, Sævar ,og Egill Áskelssynir  Mynd þorgeir Baldursson 2019

     Bræðurnir um borð i Kela Mynd þorgeir Baldursson 2019

Ekki bara bátur heldur ættardjásn“

Bræðurnir Egill, Halldór Ómar og Sævar Lárus Áskelssynir á Akureyri keyptu fyrir nokkrum misserum tæplega 30 tonna eikarbát. Enginn þeirra hefur réttindi til að sigla honum en með kaupunum heiðruðu þeir minningu föður síns og annarra sem smíðuðu bátinn og fleiri slíka í bátasmiðjunni Vör við Óseyri.

Faðir bræðranna, Áskell Egilsson, var einn stofnenda og eigenda Varar, þar sem smíðaðir voru eikarbátar svo fallegir að bræðurnir fylgdust grannt með þeim lengi þar til langþráður draumur rættist og þeir keyptu einn gömlu Vararbátanna. Upphaflega hét sá Vöttur SU-3, smíðaður 1975, og fyrsta heimahöfn hans var Eskifjörður. Hann var síðast í eigu Ólafs Ármanns Sigurðssonar á Húsavík og notaður við veiðar allt þar til fyrir nokkrum árum að útgerðarmaðurinn fékk sér nýrri bát. Hét þangað til Haförn en nafninu var breytt í Ási þar sem Ólafur notaði Hafarnarnafnið á nýja bátinn. Til stóð að rífa þann gamla en þegar bræðurnir settu sig í samband við Ólaf var hann meira en til í að selja þeim gripinn.

„Við vorum búnir að hugsa mikið um þetta; það hefur lengi blundað í okkur að gaman væri að eignast einn af gömlu Vararbátunum,“ segir Halldór Áskelsson. „Við höfðum alltaf haft mikinn áhuga á eikarbátum, það gerir líklega uppeldið,“ bætir Egill við. „Við höfðum gjarnan þann starfa að hempa nagla; að festa tjöruhamp við hausinn á nöglunum sem voru svo notaðir til að festa eikarborðin.“

Egill segir þá bræður hafa reynt að vera viðstaddir í hvert einasta skipti sem bátur var sjósettur í Vör „og svo var maður mættur niður á bryggju alla daga þegar skólinn var búinn til að fara með í prufusiglingar.“

Halldór, sá kunni knattspyrnumaður á árum áður bætir við: „Þá var slegist um að vera fremst, það var svo spennandi að fá gusur í andlitið.“

Þannig atvikaðist að Halldór var staddur á Húsavík haustið 2015 vegna atvinnu sinnar og fór, eins og svo oft áður, niður á höfn að skoða báta! Þar eru einmitt margir afar glæsilegir eikarbátar, notaðir í hvalaskoðun. „Þar sá ég þennan og ræddi það við Egil strax og ég kom heim að nú væri tækifærið. Við komumst að því hver átti bátinn, Egill hringdi í hann og karlinn sagðist strax vilja selja okkur hann.

„Hann gaf mér upp verð, ég sagði að ef okkur litist á bátinn myndum við kaupa hann á þessu verði. Við fórum svo austur og þú veist hvernig þetta endaði!“

Þeir vilja ekki gefa upp kaupverð en segjast vitaskuld meira en að segja það að fara út í slíka fjárfestingu. „Við erum hins vegar að kaupa miklu meira en bát; fortíðarþráin er svo mikil og þessir bátar eru glæsilegar mublur. Við erum alls ekki bara að kaupa bát heldur ættardjásn.“

Stofnendur og eigendur Varar voru sex skipasmiðir sem starfað höfðu í Slippstöðinni hf. en hættu þar og stofnuðu eigið fyrirtæki. Þeir voru Kári Baldursson, Jón Steinbergsson, Gauti Valdimarsson, Áskell Egilsson sem áður er nefndur og náfrændur hans, Áskell Bjarnason og Hallgrímur Skaptason. Þrír síðarnefndu voru bræðrasynir, ættaðir frá Grenivík.

 

Báturinn var dreginn til Akureyrar og bræðurnar tóku til við ýmsar lagfæringar. Hvalbak hafði verið bætt á bátinn og fyrst verk þeirra var að rífa hann af, því þeir vildu hafa bát sinn eins og hann var upprunalega.  Síðan var skrapað og málað og annað gert sem nauðsyn þótti.

Myndir  Þorgeir Baldursson 

Texti Skapti Hallgrimsson 

               1414 Áskell Egilsson i Hvalaskoðun þann 8 júli 2019

         Björgvin Sigurjónsson skipst mynd þorgeir Baldursson 

        1414 Áskell Egilsson á leið i Hvalaskoðun  mynd þorgeir Baldursson 

 

 

30.07.2019 22:34

Akurey AK 10 Landar á Sauðarkróki

       2890 Akurey AK 10 landar á Sauðarkróki. Mynd þorgeir Baldursson 

 

30.07.2019 09:19

Beitir NK 123 á Makrilveiðum

Það Var létt yfir Skipstjóranum Tómasi  Kárassyni á Beitir NK 123 þegar siglt var á stað i land eftir stuttan túr á 

Makrilveiðum útaf suðausturlandi aflinn góður allls um 725 tonn sem að voru tekin 

i 3 holum og þegar komið var uppundir hvalbak sást til vaðandi Makrils og þá 

brosti skipstjórinn og sagði að þarna væri fin torfa til að kasta á en lét það ógert 

enda kominn með skammtinn fyrir vinnsluna þennan túrinn 

   Tómas Kárasson skipst á Beitir Nk 123 © þorgeir B

                 2900 Beitir Nk 123  mynd þorgeir Baldursson 2019

 

 

30.07.2019 07:49

Jón Kjartansson SU 111

           2949  Jón Kjartansson SU 111 Mynd þoprgeir Baldursson 27 júli 2019

30.07.2019 07:43

Aðalsteinn Jónsson Su 11

      2929 Aðalsteinn Jónsson SU 11 Mynd þorgeir Baldursson 27 Júli 2019

28.07.2019 10:20

Landstim í gærkveldi

    Komið að bryggju á Neskaupsstað í  gærkveldi mynd þorgeir

      Neskaupstaður í Gærkveldi mynd þorgeir Baldursson 27 júli

 

26.07.2019 19:43

Fjöldi fólks á Seyðisfirði

    Rotterdam og Norræna  á Seyðisfirði í vikunni mynd þorgeir 2019

Alls var Rotterdam með 1300 farþega og 600 manna áhöfn og var mikill 

Fjöldi fólks í bænum enda Norræna full af fólki og farartækjum 

    Mikill fólksfjöldi við ferjuhúsið  mynd þorgeir Baldursson 2019

26.07.2019 04:03

Disa Hu 91

          6975 Disa HU 91mynd þorgeir Baldursson 2019

26.07.2019 03:56

Óskar HF 9

           2572 Óskar HF 9 mynd þorgeir Baldursson 2019

25.07.2019 20:34

Seyðisfjörður í dag 25júlí

          Seyðisfjörður í dag 25 jùli 2019 mynd þorgeir Baldursson 

25.07.2019 17:23

Seyðisfjörður í dag Norræna kominn

   

NORRÆNA  kemur til Seyðisfjarðar í morgun mynd þorgeir 25 júlí 2019

 

Mikið um að vera þegar NORRÆNA  kemur mynd þorgeir 25 júlí 2019

24.07.2019 23:42

Landað úr Gullver NS 12 á Seyðisfirði í kvöld

1661 Gullver Ns 12 landar á Seyðisfirði í kvöld mynd þorgeir Baldursson 

    Landað úr Gullver mynd þorgeir Baldursson 24 júlí 2019
   1661 Gullver Ns12 við Frystihús Svn á Seyðisfirði mynd þorgeir 2019

24.07.2019 07:14

Fastsetnigartóg á skemmtiferðaskipi

 Frágangur á fastsetningartógum mynd þorgeir Baldursson 2019

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 754
Gestir í dag: 23
Flettingar í gær: 557
Gestir í gær: 48
Samtals flettingar: 567981
Samtals gestir: 21571
Tölur uppfærðar: 28.3.2024 10:01:14
www.mbl.is