Færslur: 2020 Nóvember

30.11.2020 14:11

Sigurður Ve 15 með kolmunna

                    Sigurður VE15 með kolmunna til Eyja mynd Óskar pétur Friðriksson 

28.11.2020 20:45

Bliða á Eskifirði

       2929 Aðalsteinn jónsson Su 11 við bryggju á Eskifirði mynd þorgeir Baldursson 2020

27.11.2020 21:32

Kolmunnaveiðar í Færeysku lögsögunni

        2929 Aðalsteinn jónsson Su 11 á  kolmunnaveiðum mynd þorgeir Baldursson 

27.11.2020 21:22

Venus Ns á heimleið með kolmunna

                Venus  Ns 150 á landleið með fullt skip af kolmunna 

27.11.2020 03:44

Varðskipið Týr í brælu

 

                                Varðskipið Týr á siglingu frá Reykjavík mynd þorgeir Baldursson 

26.11.2020 05:10

Lífið í sandgerðisbót

     Dælustöð  Norðurorku og smábátahöfnin mynd þorgeir Baldursson 24 nóvember 2020

           Það þarf að huga að því að lensa bátana mynd þorgeir Baldursson 24 nóvember 2020

                5894 Teista þH58 mynd þorgeir Baldursson 24 nóvember 2020

            Smábátahöfnin á Akureyri  mynd Þorgeir Baldursson 24 nóvember 2020

                        Bótin séð úr lofti með Drónanum mynd þorgeir Baldursson nóvember 2020

25.11.2020 21:33

Brúarfoss kemur til Reykjavíkur

Hið nýja gámaskip Eimskips kom til hafnar í Reykjavík um kl 1945

Og tók Jón Páll Ásgeirsson  meðfylgjandi myndir og sendi mér 

    Brúarfoss kemur til Reykjavíkur í kvöld mynd jón páll Ásgeirsson 25 nóvember 2020

            Brúarfoss kemur til Reykjavíkur í kvöld mynd jón páll Ásgeirsson 25nóvember 2020

24.11.2020 22:56

Loðnan að ganga uppað landinu

                                      Polar Amaroq GR 18-49 Mynd þorgeir Baldursson 

 

„Við fund­um strax loðnu. Hún var dá­lítið blönduð fyrst en fljót­lega var ein­ung­is um að ræða stóra kynþroska loðnu,“ seg­ir Geir Zoëga skip­stjóri á Pol­ar Amar­oq á vef Síld­ar­vinnsl­unn­ar, en græn­lenska upp­sjáv­ar­skipið hélt til loðnu­leit­ar á föstu­dag.

Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi standa fyr­ir leiðangr­in­um sem er far­inn í sam­ráði við Haf­rann­sókna­stofn­un og mun hann taka um viku.

„Það hef­ur semsagt verið loðna á 180 sjó­mílna belti sem við höf­um nú farið yfir og inn á milli hafa verið góðar torf­ur. Loðnan kem­ur að norðan og virðist vera að ganga upp að land­inu í veru­legu magni. Þetta ætti ekki að koma á óvart og er í góðum takti við haust­mæl­ing­una 2019. Ég hef verið bjart­sýnn á loðnu­vertíð í vet­ur og nú hef ég góð rök fyr­ir bjart­sýn­inni. Þetta lít­ur bara af­skap­lega vel út,“ seg­ir Geir.

Í sam­ráði við Hafró

Skömmu fyr­ir há­degi í dag var verið að taka sýni norðaust­ur af Kol­beins­ey. „Þessi leiðang­ur er far­inn í nánu sam­ráði við Haf­rann­sókna­stofn­un en þó er eng­inn full­trúi frá stofn­un­inni um borð. Við tök­um sýni og könn­um þau og fryst­um einnig sýni fyr­ir stofn­un­ina. Haf­rann­sókna­stofn­un fær öll gögn leiðang­urs­ins þannig að allt er gert eins og um hefðbundna vetr­ar­mæl­ingu sé að ræða.“

„Við hóf­um leit­ina norðvest­ur af Straum­nesi en síðan eru farn­ir ákveðnir legg­ir aust­ur með kant­in­um. Það var full ástæða til að leita núna enda hafa borist heil­mikl­ar loðnu­frétt­ir frá tog­ur­um sem hafa verið að veiðum á svæðinu,“ út­skýr­ir skip­stjór­inn.

Tví­sýnt hef­ur verið með loðnu­vertíð vegna síðustu mæl­inga Haf­rann­sókna­stofn­un­ar og hef­ur verið talið að veru­leg­ir ágall­ar séu með mæl­ing­ar henn­ar vegna aðstæðna þegar mæl­ing­ar voru fram­kvæmd­ar.

22.11.2020 23:31

Bátasmiðjan Seigla Hefur Starfsemi i Litháen

Bátasmiðja Seigla hefur hafið framleiðslu á bátum á nýjan leik eftir að bátasmiðja fyrirtækisins brann til til grunna 

fyrir nokkrum árum Sverrir Bergsson Eigandi Seigs hóf framleiðslu  bátanna i Litháen i birjun þessa árs 

og er búinn að smiða 4 báta og hér að neðan má sjá einn þeirra 

 

Bátasmiðjan brann til kaldra kola aðfaranótt 31. maí 2017. Um altjón var að ræða og brann allt sem brunnið gat innanhúss.

Slökkviliðsmenn voru langt fram eftir morgni að störfum á vettvangi.
Allt tiltækt slökkvilið var kallað út þessa nótt og barðist það við eldinn í húsinu sem var um 2.000 fermetrar að stærð.

Þegar mest var voru um 15 slökkviliðsmenn á vettvangi auk lögreglumanna sem lokuðu götum í kring.

Allur tækjakostur slökkviliðsins var einnig nýttur. Tjónið af völdum eldsins hleypur á hund­ruðum milljóna króna.

                                                               Bruninn i Seiglu Mynd Auðunn Nilsen 2017

 

Ship Type

Fishing

Length × Breadth

13 X 4

Speed recorded (Max / Average)

8,80 / 7,70 knots

Flag

Norway (NO) 

Call Sign

LH3462

                                           Kamilla Katrine F-103-m   mynd Justinas Rainys 

                                                  Kamilla Katrine F-103-m Mynd Viktoria Povilauskiene


                                               Kamilla Katrine F-103-m mynd Gena Anfimov 

                                                 Kamilla Katrine F-103-M mynd Gena Anfimov 

                                           Kamilla Katrine F-103-M mynd Gena Anfimov 

22.11.2020 23:00

Kolmunnaskipin á útleið frá Færeyjum eftir brælu

              2900 Beitir Nk 123 á leiðinni á Kolmunnaveiðar við Færeyjar mynd þorgeir Baldursson 

                           Skjámynd úr tölvunni mynd Þorgeir Baldursson 22 nóvember 2020 kl 2300

22.11.2020 09:16

FRYSTIHÚSIÐ Á SEYÐISFIRÐI FULLMANNAÐ

Vinnsla í frystihúsinu á Seyðisfirði. Ljósm. Ómar Bogason

Vinnsla í frystihúsinu á Seyðisfirði. Ljósm. Ómar BogasonVinnsla í frystihúsi Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði hefur gengið vel að undanförnu. Ýmsar jákvæðar breytingar hafa átt sér stað og þá er húsið fullmannað, en heldur erfiðlega gekk að fá fólk til starfa sl. haust. Heimasíðan ræddi við Róbert Inga Tómasson framleiðslustjóra og spurði hvaða breytingar hefðu átt sér stað á starfseminni að undanförnu. „Það er ýmislegt sem veldur því að starfsemin í frystihúsinu hefur gengið vel síðustu mánuði. Í fyrsta lagi ber að nefna bættan vélbúnað. Hér var tekin í notkun flokkunarvél sem eykur afköst við pökkun og einnig hausari. Þessi nýi vélbúnaður er farinn að virka afar vel. Í öðru lagi höfum við verið að þróa breytingar á framleiðslunni sem virðast hafa tekist vel og er þá fyrst og fremst verið að bæta nýtingu hráefnisins. Í þriðja lagi hefur hráefnið sem unnið hefur verið reynst vera afar gott, en togarinn Gullver sér húsinu að mestu fyrir hráefni. Ný krapavél var sett í Gullver sl. sumar og hefur tilkoma hennar aukið gæði hráefnisins til muna og gefið kost á betri nýtingu þess. Í fjórða lagi hefur það gerst að húsið er fullmannað en það gekk erfiðlega að ráða fólk að afloknu sumarfríi. Nú síðustu vikurnar hafa fyrirspurnir um störf hins vegar aukist og er það í samræmi við það atvinnuástand sem ríkir í landinu vegna covid. Mestu máli skiptir þó hvað okkar góða starfsfólk er tilbúið að taka þátt í þeim breytingum sem gerðar hafa verið og vinna í nýju starfsumhverfi. Auðvitað eru allir þreyttir á ástandinu og starfsumhverfið er allt annað en það var fyrir faraldurinn. Núna er starfsfólkinu til dæmis skipt upp í hópa sem umgangast ekki hver annan og búningsklefa og kaffistofu er skipt upp. Það er allt gert til að forðast kórónuveiruna. Á heildina litið hefur þróunin hjá okkur í frystihúsinu verið jákvæð og það er ánægjulegt,“ segir Róbert Ingi.

                                    Löndun úr Gullver NS 12 á Seyðisfirði mynd þorgeir Baldursson 2019

                              1661 Gullver NS 12 fyrir framan frystihúsið mynd þorgeir Baldursson 2019

21.11.2020 23:06

Ný­stofnað fyr­ir­tæki um Horn­stranda­sigl­ing­ar

                                               2779 Ingólfur  Mynd þorgeir Baldursson 

Sjó­ferðir ehf. hafa skrifað und­ir kaup­samn­ing á tveim­ur bát­um og bryggju­húsi Sjó­ferða Haf­steins og Kiddýj­ar.

                          Hafsteinn, kitty,Stigur , og Henný  mynd Aðsend 

Eig­end­ur Sjó­ferða ehf eru þau Stíg­ur Berg Soph­us­son og unn­usta hans Henný Þrast­ar­dótt­ir.

Sjó­ferðir munu halda áfram áætl­un­ar­ferðum á Hornstrand­ir og um Djúp.

Stíg­ur hef­ur unnið hjá Sjó­ferðum Haf­steins og Kiddýj­ar frá ár­inu 2006 þar sem hann byrjaði sem há­seti en árið 2010 varð hann svo skip­stjóri hjá fyr­ir­tæk­inu.

  Hann á sjálf­ur ætt­ir að rekja til Horn­vík­ur og er vel kunn­ug­ur um svæðið að því er seg­ir í til­kynn­ingu.

Bát­arn­ir eru mis­stór­ir, ann­ars veg­ar er Ingólf­ur sem tek­ur 30 farþega. Hann er að auki með krana svo Ingólf­ur nýt­ist auk farþega­flutn­inga í þunga­flutn­inga og vinnu­ferðir.

Stærri bát­ur­inn, oft nefnd Drottn­ing­in, Guðrún Kristjáns, tek­ur allt að 48 farþega.

                                         2409 Guðrún Kristjáns mynd þorgeir Baldursson 

 

Bátar Sjóferða ehf eru í góði standi og báðir búnir tveimur mjög nýlegum vélum sem tryggja öryggi farþegar enn frekar.

Sjóferðir tryggja það að ávallt séu tveir til þrír starfsmenn eru í hverri áhöfn til að stuðla að öryggi farþega.

 

Áætlun fyrirtækisins fyrir Hornstrandir sumarið 2021 er í vinnslu en ljóst er að áætlun hefst 1.júní 2021 og síðasta ferð farin 31.ágúst.

Hægt er að panta báta í sérferðir utan þess tímabils, auk þess sem hægt er að bæta við ferðum fyrir hópa eða auka stoppum í Grunnavík, Sléttu, Flæðareyri og Lónafirði ásamt öðrum stöðum ef um er beðið.

Allar ferðir hefjast á Ísafirði þar sem hægt er að stíga beint um borð en notast þarf við slöngubáta til að ferja fólk og farangur í og úr landi innan friðlandsins.

Fyrir sérferðir er hægt að hafa beint samband við Stíg Berg í síma 866-9650 eða senda póst á sjoferdir@sjoferdir.is

Af www.bb.is 

 

21.11.2020 21:31

Kap Ve 4 Kemur með sild til Eyja

I dag kom Kap Ve 4 með um 600 tonn af sild til Vestmannaeyja  af miðunum útaf Reykjanesi

 Óskar Pétur  fréttaritari siðunnar var á ferðinni við höfnina i  Eyjum og tók meðfylgjandi myndir 

                                1742 Kap Ve 4 mynd Óskar Pétur Friðriksson 21 nóvember 2020

                                              1742 Kap ve 4 mynd Óskar Pétur Friðriksson 2020

                                               1742 Kap ve 4  kemur að bryggju  mynd Óskar Pétur Friðriksson 2020

21.11.2020 13:40

Mokafli þegar veður leyfir

                                                     2184 Vigri RE71 mynd þorgeir Baldursson  

Vigri RE er að nálgast tíu þúsund tonna heildarafla á árinu. Slík afköst á frystiskipi standa og falla með afburða góðri áhöfn, að sögn skipstjóra.

 

„Við erum vestur í kanti vestan við Halann og hér hefur verið mokafli undanfarna þrjá sólarhringa. Nú er veður tekið að versna og það þarf að hafa fyrir hlutunum. Við erum komnir með um 920 tonna afla í túrnum en við eigum að vera komnir í höfn í Reykjavík nk. mánudag.”

„Nú erum við á höttunum eftir ufa og aflinn hér í kantinum hefur verið stórufsi og vottur af ýsu með. Þegar aflabrögðin voru best stjórnaði vinnslugetan alveg ferðinni. Við vorum t.a.m. með rúmlega 70 tonna afla í gær og réðum ekki við meir,” segir Árni en hann segir að þorskurinn virðist halda sig austar en Vigri hafi fengið ágætan þorskafla á Þverálshorni og Strandagrunni á dögunum.Þetta segir Árni Gunnlaugsson, skipstjóri á frystitogaranumVigra RE, í viðtali við heimasíðu Brims en skipið fór í veiðiferðina 21. október. Afla var millilandað í Reykjavík 4. nóvember en síðan hefur skipið verið á sjó.

Að sögn Árna er mikið líf á Vestfjarðamiðum. Víða hafi orðið var við loðnu og fiskurinn hafi nóg að éta.

„Ég er mjög sáttur við árið. Heildaraflinn hjá okkur er að nálgast tíu þúsund tonn. Þetta hefði verið óhugsandi ef ekki kæmi til afburðagóð áhöfn,” segir Árni í viðtalinu.

 

 

21.11.2020 11:00

Bræður Róa til fiskjar

    Páll þorkelsson eigandi Silju EA 55 og Kristján Þorkelsson koma i land i gær20 nóvember    mynd þorgeir Baldursson 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1050
Gestir í dag: 71
Flettingar í gær: 824
Gestir í gær: 70
Samtals flettingar: 603869
Samtals gestir: 25433
Tölur uppfærðar: 24.4.2024 11:58:09
www.mbl.is