22.05.2012 22:18

Tankskipið Sichem Contester á siglingu i Kvöldsól © mynd Þorgeir Baldursson
21.05.2012 17:16

Ar-Tarzh II © mynd Trefjar 2012
Ný Cleopatra 33 afgreidd til Frakklands
Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði nú á dögunum nýjan Cleopatra bát til Le Croisic á vesturströnd Frakklands.
Að útgerðinni stendur Fabrice Charlot sjómaður frá Le Croisic sem jafnframt er skipstjóri á bátnum.
Nýji báturinn hefur hlotið nafnið "Ar-Tarzh II" sem þýðir "Aldan" á mál Bretóna. Báturinn er 11brúttótonn. "Ar-Tarzh II" er af gerðinni Cleopatra 33.
Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT(Iveco)C90 380 tengd ZF286IV gír.
Siglingatæki eru frá Furuno.
Báturinn er útbúinn til línuveiða.
Línubúnaður er frá Able.
Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.
Rými er fyrir 12stk 380lítra kör í einangraðri lest. Í vistarverum er svefnpláss fyrir þrjá auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Að sögn útgerðarinnar mun báturinn verða gerður út frá Le Croisic allt árið, reiknað er með að báturinn hefji veiðar núna í lok mánaðrins. 2-3 menn verða í áhöfn.
Meira www.trefjar.is
17.05.2012 03:17
1360 Kleifarberg RE 7 á reykjaneshrygg i siðustu viku
Tlasverður fjöldi skipa var á veiðum á hryggnum i siðustu viku meirihluti þeirra var undir Rússnesku
flaggi þó voru nokkrir spánverjar norðmenn og tvö islensk kleifarberg RE og Freri RE siðan þá hafa bæst við Arnar HU Helgamaria AK Þór HF og von var á Þerney RE á veiðisvæðið innan skamms
05.05.2012 23:16

2265 - Arnar Hu 1 Mynd þorgeir Baldursson 2012
Merki Arnarins er táknrænt um þær aflaklær sem að stjórna skipinu
Haldið heimleiðis til Skagastrandar © mynd Þorgeir Baldursson 2012
Um kl 20 /30 i kvöld hélt Arnar Hu 1 frystitogari Fiskseafood áleiðis frá Akureyri eftir að hafa verið i slipp Árni Skipstjóri og Stefán Sigurðsson yfirstýrimaður tóku smá myndahring fyrir siðueiganda og kann ég þeim bestu þakkir fyrir skipið er væntanlegt til hafnar á Skagaströnd i fyrramálið
01.05.2012 13:27

Sædis ÞH 305 Á siglingu við Mánárbakka © mynd þorgeir Baldursson 2012
28.04.2012 23:16

Stóri Örn i Prufu túr nú nýverið
Séð frameftir Bátnum
En hann er talsvert stærri en hinn eð 12 metra 4 metra breíður knúin afram
af 2 x 400 hestafla volvo penta díeselvélum, ganghraði 50 mílur +, framleiðandi er technomarine í póllandi, Báturinn er mjög vel útbúinn .
Hann hefur fengið nafnið Stóri Örn.
Kv Himmi.
S ...8462798
Ribsafari var stofnað 10.01.2010. til að bjóða uppá nýja möguleika í útsýnisferðum um Vestmannaeyjar.
Markmiðið er að ferðamenn geti notið þeirrar náttúruperlu sem Heimaey og aðrar eyjar í kring eru.
Eins og nafnið felur í sér erum við með harðbotna slöngubát og getum við tekið 10 farþega í hverri ferð ásamt 2 stjórnendum.
Fyllsta öryggis er gætt og uppfyllum við í öllu reglur og öryggisbúnað sem krafist er af Siglingastofnun Íslands.
Stjórnendur hjá Ribsafari hafa allir tilskilin leyfi til að stjórna bátnum af kröfu Siglingastofnunar Íslands.
Um borð er lífbátur, fullkomin siglingatæki, talstöð og neyðarstöð.
Allir farþegar fá flotbúning og björgunarvesti sem þeir klæðast á meðan á ferð stendur.
Báturinn sem er af gerðinni Techno Marine 10 er 10 metra langur og 3.15 metra breiður hann er knúinn áfram af 315 hp innanborðs dieselvél og ganghraði er 35 mílur.
26.04.2012 23:21

VG fundarherferð á Hótel kea i kvöld © mynd þorgeir
Fyrirspurnir úr salnum voru margar © mynd þorgeir
Málin rædd i bróðerni i lok fundarins © mynd þorgeir
steingrimur skráði niður Athugasemdir © mynd þorgeir 2012
Þingmennirnir Björn Valur Gíslason, Steingrímur J Sigfússon og Liljar Rafney Magnúsdóttir héldu opin stjórnmálafund á Hótel KEA í kvöld. Fundinn sóttu hátt í hundrað manns, að stórum hluta sjómenn enda viðbúið að kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar yrðu þar mikið til umræðu sem varð raunin. Steingrímur fór vel yfir frumvörpin og útskýrði hvað í þeim felst og síðan sátu þingmennirnir fyrir svörum. Reyndir var svo á endanum þannig að allar spurningar úr sal, sem voru fjölmargar snérust um sjávarútvegsmálin frá ýmsum hliðum og ekkert annað komst á dagskrá. Fundurinn var málefnalegur og fundarmenn hreinskiptir í málflutningi sýnum eins og vera ber. Ljóst er að sitt sýnist hverjum og innihald frumvarpann tveggja eins og búast mátti við en vonandi eru þau sá sáttagrunnur í deilunum um stjórn fiskveiða sem Steingrímur segir þau vera. Það mun hinsvegar koma í ljós fljótlega enda á að afgreiða frumvörpin frá þinginu fyrir sumarið.
26.04.2012 17:13

108- Húni 2 EA 740 © Mynd þorgeir Baldursson 2012
Hópurinn ásamt Áhöfn Húna © mynd þorgeir Baldursson 2012
Undanfarna þrjá daga hefur Húni II sigld út á Eyjafjörðin með unga atvinnuleitendur sem sækja námskeið hjá þeim um sjósókn, veiðar og hollustu sjávarfangs. Námskeið þeitta er unnið í samvinnu við vinnumálastofnun. Í dag var Hreiðar Valtýsson fiskifræðingur með og var hann með fræðslu um lífríki sjávar. Húni fékk undanþágu frá þorskveiðibanni, lítið veiddist af þorsk en ný gengin falleg ýsa var uppistaðan í aflanum. Einn Hnúfubakur gladdi þátttakendur í dag með smá sýningu rétt hjá bátnum.fleiri fréttir af um bátinn má sjá á facebook siðu Húna og i bæjarblaðinu vikudegi sem að kom út i dag
26.04.2012 10:42

Sigurpáll ÞH 68 © Mynd þorgeir Baldursson 2012
Eiki Matta ÞH og Sóley ÞH © mynd þorgeir Baldursson 2012
Sóley ÞH 28 Kemur til hafnar © mynd þorgeir Baldursson 2012
Fram ÞH 62 © Mynd þorgeir Baldursson 2012
Skipverjar á Fram Eyþór Viðars og Bjarni Eyjólfs Óðinn i brúnni © mynd þorgeir 2012
Nokkrar svipmyndir af Grásleppubátum frá Húsavik sem að hafa ratað fyrir linsu Ljósmyndarans undanfarna daga i bliðskaparveðri
23.04.2012 21:48

7683-Elin ÞH 7 mynd þorgeir Baldursson 2012
Elin ÞH 7 © mynd þorgeir Baldursson 2012
Tekin smá hringur © mynd þorgeir Baldursson 2012
Elin þH og Lundey i baksýn © mynd þorgeir Baldursson 2012
Og stefnan tekin á Höfnina á Húsavik © mynd þorgeir 2012
Nýr bátur bættist i strandveiðiflota Húsvikinga i dag þegar 7683 Elin ÞH 7 var sjósett báturinn er i eigu Viðars Sigurðssonar og Fjölskyldu mesta lengt er 6,38 og breidd 2,27 hann mælist 2,46 Bt og þaðvar plastverk /gunnars Stefánssonar i Sandgerði sem smiðaði hann Gandhraði i fyrstu prufuferðinni var 27 milur
22.04.2012 15:08

155 - Lundey Ns 14 © Mynd þorgeir Baldursson 2012
Uppsjávarveiðiskipið Lundey NS 14 i eigu HB Granda er á leið til Vopnafjarðar með fullfermi alls tæp 1600 tonn af kolmunna sem að veiddist á veðislóðinni fyrir sunnnan Færeyjar skipið var um einn og hálfan sólahring að veiðum og hafa aflabrögð verið með besta móti siðustu 3-4 daga að sögn Stefáns Geirs Jónssonar skipstjóra talsverður fjöldi uppsjávarveiði skipa sem að hafa Kolmunnakvóta er á veiðslóðinni og hafa frystiskipin Guðmundur Ve,Hákon EA, Vilhelm Ea ,og Aðalsteinn SU verið að landa i Færeyjum Hákon EA hefur landað á Norðfirði skip Sildarvinnslunnar hafa verið að landa kommunna i frystingu til prufu sem að hefur verið úr tveimur siðustu hölunum i lok túrs
19.04.2012 19:29

Húni 2 EA 740 © Mynd þorgeir Baldursson 2012
Stella og Hjörleifur © Mynd Þorgeir Baldursson 2012
Dagskrá
aðalfundar 2012:
Húni II aldrei litið betur út, yst sem innst
Afhending áviðurkenningarskjali Stella Sigurgeirsdóttir fær þakkir fyrir styrk til
minningar um eiginmann hennar,
Tryggva Gunnarsson skipasmíðameistara sem teiknaði Húna og stjórnaði
smíði hans
1. Kosning fundarstjóra.
Mælt með að Þorsteinn Arnórsson verði fundarstjóri ritari verði Ellert
Guðjóns
2. Skýrsla
stjórnar.
Valur Hólm Sigurjónsson fer yfir vinnu í vélarrúmi- raflagnir í lest og vélarrými,
viðhaldslisti
Sigtryggur Gíslason fer yfir tréverk endurnýjun á
lest og stýrishúsi
3. Reikningar
lagðir fram.
Reikningar lagðir fram. Hallur Heimisson
F Formaður kosinn Hjörleifur Einarsson
V Véllbúnaður,
fjarskipta og tæknibúnaður: Valur Hólm Sigurjónsson,
F Friðrik Friðriksson og Birgir
Aðalsteinsson
Viðhald
báts:
Ingi Pétursson, Sigtryggur Gíslason, Árni Antonsson og
Jóhannes Kárason
1.1 Fjöldi
Hollvina Húna II er um 130
Báturinn gegnir lykilhlutverki í að halda
tengslum milli hollvinanna þ.m. hels nefna kaffifundi en þeir hófust á sl ári
um miðjan OKT en voru að sjálfsögðu líka um vorið. Svipaður fjöldi mætri í
hvert skipti eða milli 30 og 50
Þá voru 2 skötuveislur í desember sl fyrir
hollvini og velunnara.
Fjöldi ferða í fyrra voru 66 ( voru 79, 2010) og fjöldi farþega 2028, sem er
fækkun frá 2010 en rétt að benda á að heita má að júlí hafi dottið út í fyrra
vegna siglingar til Færeyja.Útlitð fyrir sumarið er nokkuð gott
19.04.2012 00:41

Sólarupprás við Tjörnes © Mynd þorgeir Baldursson 16 April 2012 kl 0543
18.04.2012 22:11

108-Húni 2 EA 740 © mynd þorgeir Baldrsson 2012
siglt út Eyjafjörð © mynd Þorgeir Baldursson 2012
Komið til baka © mynd þorrgeir Baldursson 2012
1547-Draumur og 108-Húni 2 EA 740 © mynd þorgeir Baldursson 2012
Þegar vora tekur færist lif i hafnir landsins og er fátt eitt skemmtlegra en að sitja á bryggjupolla og fylgjast með vel hirtum og snyrtilegum bátum koma já eða fara einn af þessum bátum er Húni 2 sem að hollvinasamtök Húna hafa séð um en báturinn er i eigu iðnaðarsafnsins á Akureyri
þeir sem að vilja styrkja reksturinn á einn eða annan hátt geta haft samband við
Þorstein Pétursson i netfang steinipje@simnet.is þvi að mart smátt gerir eitt stórt
18.04.2012 13:23

Norska Uppsjávarveiðiskipið Buland © mynd Þorgeir Baldursson 2012
Buland við slippkantinn á Akureyri i morgun © Mynd þorgeir Baldursson 2012
I gærkveldi kom til Akureyrar Norska uppsjávarveiðiskipið Buland skipið mun fara i breytingar hjá slippnum sem að miðast við að það geti dregið troll það er Neptune Ehf sem að kemur að þessum breytingum með aðstoð slippsins á Akureyri að sögn Ágústar Guðmundsonar koma þeir að þessu verkefin eingöngu til að koma þessu af stað og hinsvegar vegna þekkingar sinnar á breytingum á skipum eftir að hafa breytt tveimur togurum i fullkomin rannsóknarskip og voru þau verk unnin hjá slippnum hérna að loknum þessum breytingum mun skipið stunda veiðar við strendur Marokkó við veiðar á Sardinu og leggja upp aflan þar vonaandi innan 4 vikna sagði Ágúst að lokum