Færslur: 2009 Júlí

31.07.2009 12:30

Full City á strandstað i Noregi


                                   Full City © Mynd Norska strandgæslan

Sjö menn eru enn um borð í olíuskipinu Full City sem strandaði fyrir utan Langesund í Þelamörk í Noregi í nótt. Í nótt var 16 af 23 manna áhöfn skipsins bjargað. Olía lekur úr skipinu og sjór inn í það. Á staðnum er 5-6 metra ölduhæð og vindur allt að 35 m/s, að sögn fréttavefjar Aftenposten.

Skipið mun hafa orðið vélarvana og strandað í kjölfarið um hálftíma eftir miðnætti að norskum tíma. Haft er eftir Ola Vaage, yfirmanni björgunaraðgerða á staðnum, að þeim líði ekki vel yfir því að vita af sjö mönnum sem vildu vera áfram um borð í skipinu.

Norska strandgæslan sendi tvö skip á strandstaðinn, einnig eru þar þrír dráttarbátar og björgunarþyrla til taks ef ástandið versnar. Mennirnir sem eru enn um borð eru allir við góða heilsu. Skipstjóri olíuskipsins segir að þeir séu um borð til að hindra olíuleka frá skipinu. Um borð voru 1.120 tonn af olíu.

Eitthvað af olíu hefur þegar lekið úr skipinu. Yfirmaður björgunaraðgerða sagði að reynt væri að hindra að olían sem lekur úr skipinu breiðist út. Á staðnum er megn olíuþefur allt að kílómetra frá strandstaðnum.

Full City er skráð í Panama og 167 metra langt. Öll áhöfnin er kínversk. 

Heimild mbl.is

31.07.2009 08:29

Af hvaða báti og hvar?



                                                          Smá getraun
                 Af hvaða báti er þetta stýrishús og hvar er það staðsett nú?


                                 © myndir Jóhann Þórlindsson  2009

31.07.2009 00:20

Frá Akranesi

Eftirfarandi myndir tók Þorgeir Baldursson á Akranesi í maí 2009


                                                       7392. Kári AK 24


                                                 2604. Keilir II AK 4


                                                  6976. Leifi AK 2


                                                 6627. Sæmi AK 13


                                                      6548. Þura AK 79


                     6617. Örnólfur AK 63 © myndir Þorgeir Baldursson í maí 2009

30.07.2009 06:09

Bátur brann í Grófinni




            2477. Vinur GK 96 eftir brunann í nótt © myndir Emil Páll í júlí 2009

Mikill eldur kom upp í sjö tonna Sóma 870 plastbáti, Vin GK 96, þar sem hann lá í smábátahöfninni í Grófinni í Keflavík um kl. 01:00 í nótt.  Lögregla og slökkvilið frá Brunavörnum Suðurnesja voru kölluð til og gekk greiðlega að slökkva eldinn.  Báturinn er mikið skemmdur ef ekki ónýtur eftir og er tjónið verulegt, eins og sést á myndunum sem fylgja hér með.

Ekki er vitað um eldsupptök og er málið í rannsókn, samkvæmt tilkynningu lögreglunnar á Suðurnesjum. 


                         2477. Vinur GK 96 fyrir brunann © mynd Emil Páll 2009

30.07.2009 00:26

FROSTI ÞH 229


                FROSTI ÞH 229 MYNDIR SIGURÐUR H DAVIÐSSON 2009
FRYSTITOGARINN FROSTI ÞH KOM INN TIL AKUREYRAR I DAG EFTIR STUTTAN TÚR AFLAVERÐMÆTIÐ UM 50 MILLJÓNIR ER SKIPI VAR AÐ KOMA HÉRNA INN VARÐ BILUN I STJÓRNBÚNAÐI FRÁ VÉLARRÚMI AÐ BRÚ OG ÞVI ÞURFTI AÐ KALLA TIL DRÁTTARBÁTA
AKUREYRARHAFNAR TIL AРAÐSTOÐA SKIPIÐ AÐ LEGGJAST UPPAÐ EKKI ER VITAÐ Á ÞESSARI STUNDU HVERSU ALLVARLEG BILUNIN ER

30.07.2009 00:10

Bátagrúskarar hittast


  Þessir þrír bátagrúskarar hittust á Sjóminjasafninu Víkinni í Reykjavík sl. miðvikudag f.v. Óskar Franz (franz.123.is), Markús Karl Valsson (krusi.123.is) og Emil Páll Jónsson (thorgeirbald.123.is)

30.07.2009 00:07

Bergur VE 44


      2677. Bergur VE 44 kom við í Njarðvík í vikunni til að taka ís © mynd Emil Páll í júlí 2009

30.07.2009 00:03

Haukaberg SH 20


     1399. Haukaberg SH 20 í Hafnarfjarðarhöfn, sennilega nýkominn úr dokkinni © mynd Emil Páll í júli 2009

30.07.2009 00:00

Fróði II ÁR 38


                       2773. Fróði II ÁR 38 í Reykjavíkurslipp © mynd Emil Páll í júlí 2009

29.07.2009 09:51

Húni 2 á sildarævintýrið


                                        HÚNI 2 © MYND ÞORGEIR BALDURSSON 2009

        © Háfurinn kominn mynd þorgeir baldursson 2009

eins og sjá  má kom háfurinn til Akureyrar i morgun vestan að Drangsnesi og fóru nokkrir vaskir
hollvinir Húna i leiðangur vestur i þeim erindagjörðum i gærdag að öllum likindum er háfurinn
 af Gylfa eða Garðari sem að voru gerðir út frá Akureyri á árum áður Frimann Hauksson netagerðarmeistari mun sjá um lagfæringar á honum og er með aðstöðu i Nótastöðinni ODDA
sem að verður honum innan handar með það sem vantar

Hollvinum Húna II og velunnurum er boðið í siglingu með bátnum næsta sunnudag klukkan 09:00 frá Dalvík til Siglufjarðar.  Þar munu verða tvær siglingar í samvinnu við Síldaminjasafnið og síðan verður sigling til baka eftir kvöldmat.  Tilvalin skemmtiferð og að upplifa Síldarævintýrið.  Ef pláss verður verða nokkrir farmiðar seldir.  Fyrir þessa ferð bráðvantar Húnamenn síldarháf eins og notaður var til að háfa síld úr nótinni.  Þátttöku ber að tilkynna til Steina Pje 699 1950 eða Inga P 862 1237
Heimasiða húna er . www.huni.muna.is


29.07.2009 00:06

Bátarnir í Grandavör

Við Suðurströndina er skemmtilegt bátasafn, þar sem bátar liggja við bryggju í vör sem nefnist Grandavör. Málið er hinsvegar það að höfnin er á þurru landi og því bátarnir líka. Til að forvitnast um hvað hér væri á ferðinni birtum við upplýsingar af vefsíðu fyrirtækisins Grandavor.net, svo og myndir sem Jóhann Þórlindar tók fyrir okkur.

Grandavör er staðsett á landnámsjörðinni Hallgeirsey í Austur - Landeyjum í Rangárþingi eystra. Sigursæll ehf rekur Grandavör sem er fyrst og fremst tjaldsvæði sem  er opið á  tímabilinu  Júní - Sept. Svæðið býður upp á ýmiskonar afþreyingu m.a. fjöruferðir á sérstökum hertrukk. Grandavör er hægt að leiga til einkaafnota s.s. ættarmóta yfir helgi einnig er hægt að taka á móti hópum í fjöruferðir alla daga vikunnar.

Grandavör var vígð við hátíðlega athöfn 24.júlí.2004 að viðstöddu margmenni  á árlegu sumarvinnuhjúamannavinamóti í Púkapytti.

 "Fornar heimildir greina frá því að í Hallgeirsey hafi verið stunduð sjósókn af miklum krafti. Aldrei hvarflaði það að  mönnum að það væri hægt að koma upp bryggju á þessum slóðum.  En nú er öldin önnur og komin bryggja í Hallgeirsey.  Grandavör heitir hún og er á þurru landi og stendur við Púkapytt, í gamla kartöflugarðinum."

Í fyrstu voru tveir bátar við bryggju Auður HF 8 og Hlíf GK 250.



                                                1239. Auður HF 8


                                                    663. Hlíf GK 250

Ári síðar bættist Hafbjörg ÁR 15 í hópinn og fór hún í lýtaaðgerð og frískaðist öll upp.

 
       Hafbjörg ÁR 15 eftir lýtaaðgerðina. Um borð í Hafbjörgu er setustofa og eldhúskrókur

Árið 2006 kom Skúli fógeti fulllestaður í heimahöfn.  Hann er stjórnstöð svæðisins og afdrep
fyrir áhafnir skipanna.


                                               Skúli fógeti


                    Auður og Hafbjörg í Grandavör © myndir Jóhann Þórlindar 2009

28.07.2009 12:08

Einn gamall með strandveiðileyfi

Meðal þeirra tæplegu 400 báta sem nú eru með Strandveiðileyfi er einn sem smíðaður var á Akureyri 1976 og hét fyrst Blíðfari ÓF 70, en heitir nú Seyla KE 12.


                           5713. Seyla KE 12 © mynd Emil Páll í júlí 2009

28.07.2009 11:56

Síðasta heimildin að hverfa


                                                    5433 Sólartindur
Rétt fyrir 1960 voru smíðaðir í Hafnarfirði nokkrir tæplega 5 tonna opnir bátar, sem voru vinningar í happdrætti og voru því kallaðir happadrættisbátarnir. Bátarnir báru í upphafi allir nöfn sem endaði á tindur s.s. Sólartindur, Heklutindur, Klukkutindur o.fl. Í dag eru þessir bátar flestir búnir að týna tölunni, en þó er vitað um einn sem bar einu sinni nafnið Sólartindur. Sést hann hér á myndunum eins og hann lítur út, en búið er að rífa hann mikið, setja á hann annað stýrishús og breyta á ýmsa vegu. Samt virðist flest benda til að hann týni einnig tölunni og þar með hverfur þessi heimild.


                                     © myndir Emil Páll í júlí 2009

28.07.2009 00:21

Kópavogshöfn

Eftirfarandi myndir tók Þorgeir Baldursson í Kópavogshöfn í apríl sl.


                                                             6490. Katrín


                                          7339. Laufey Jörgensdóttir VE 23


                                                         2532. Svana


                                          6476. Svava Gísladóttir BA 220


     6549. Sævaldur VE 360 © myndir Þorgeir Baldursson í Kópavogshöfn í apríl 2009

27.07.2009 11:30

Nóa smiði Gústi P


                                   5463- Gústi P Myndir Þorgeir Baldursson 2009
Gústi P smiðaður á Akureyri 1968 sennilega af Nóa skipasmið báturinn er með Ford Mearmad 65 hp vél  ca 15 ára litið keyrð og er til sölu verð 120.000 með vél en án siglingatækja skelin af bátnum getur fengist gefins nánari uppl veitir IVAR i Gsm 6959312

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1110
Gestir í dag: 20
Flettingar í gær: 2311
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 570648
Samtals gestir: 21605
Tölur uppfærðar: 29.3.2024 10:31:09
www.mbl.is