Færslur: 2019 Janúar

31.01.2019 07:19

Þórsnes SH 109 heldur til veiða

Linu og netabáturinn Þórsnes SH 109 hélt til veiða frá Akureyri seinnipartinni gær 

eftir löndun og smávægilega viðgerð og hérna koma nokkrar myndir sem að voru

teknar við það tækifæri 

                  2936 Þórsnes Sh 109 mynd þorgeir Baldursson 2019

 

     2936 Þórsnes SH 109 mynd þorgeir Baldursson  30 jan 2019

            Haldið til veiða Frá Akureyri mynd þorgeir Baldursson 30jan 2019

31.01.2019 05:56

Sindri VE 60 seldur úr landi

I lok siðustu viku  nánar tiltekið þann 27 janúar var Sindri Ve 60 afhenntur nýjum eigendum 

 1274 Sindri VE 60 farinn á leið til nýrra eigenda í Valencia á Spáni en togarinn lét úr höfn hér í Vestmannaeyjum fyrir rúmmum klukkutíma

Togarinn sem hét nær alla sína tíð Páll Pálsson IS 102 og var mikið aflaskip fyrir vestan.

Þá eru bara 2 Japans togarar eftir í landinu af þeim 10 sem komu nýir hingað til lands árið 1973 og reyndust frábærlega.

það eru Ljósafell SU 70 og Múlaberg SI 22  

             1274 Sindri Ve 60 mynd óskar Pétur Friðriksson 2018

                     1274 Sindri VE 60 mynd Tryggvi Sigurðssson 2018

 

27.01.2019 23:51

Njáll Re 275 á siglingu á Faxaflóa

                       Njáll Re 275 mynd þorgeir Baldursson 

24.01.2019 16:21

Bjarnveig Re 98

                               1944 Bjarnveig Re 98 á Eyjafirði

24.01.2019 03:13

Hvalaskoðun á skjálfanda

Hvalaskoðun á skjálfanda með GG mynd þorgeir Baldursson Akureyri 

23.01.2019 23:56

Lásað í hlera á Bjarna Sæmundssyni RE 30

   

 

Lásað í hlerana um borð í Bjarna Sæmundsson Re 30 þegar skipið var í eyralli 

Á Eyjafirði fyrir skömmu 

23.01.2019 22:18

Traffik á togslóðinni

                Traffik á veiðislóðinni mynd þorgeir Baldursson 

23.01.2019 16:48

Hafborg EA 152

                   Hafborg EA 152 á siglingu á Eyjafirði í dag 

20.01.2019 20:04

Vilhelm Þorsteinsson EA 11

     Vilhelm þorsteinsson EA 11 mynd þorgeir Baldursson 

Í dag hélt Vilhelm Þorsteinsson EA 11 fyrrum flaggskip Samherja úr höfn 

Á Akureyri áleiðis til erlends kaupanda 

 

18.01.2019 11:34

Lárus List Gerir upp gamla Eikarbáta á Akureyri

            Lárus List um borð i Fjólu Mynd Þorgeir Baldursson 2018

            Lárus List um borð i Pétri Þór  mynd þorgeir Baldursson 2018

                           Lárus List mynd þorgeir Baldursson  2018

Lárus H. List gerir upp tvo gamla eikarbáta á Akueyri

Svíður meðferð menningarverðmæta
 Hagleiksmaðurinn og listamaðurinn Lárus H. List á Akureyri stendur fyrir uppgerð á gömlum eikarbát, Pétri Þór frá Bíldudal og ráðgerir að hann verði tilbúinn næsta sumar. Lárus var í hollvinafélagi um endurgerð á Húna II, 130 tonna eikarbát, sem var smíðaður í skipasmíðastöð KEA á Akureyri 1963, og er nú ein helst prýði og aðdráttarafl í höfninni á Akureyri. Lárus segir Íslendinga mjög aftarlega á merinni hvað viðkemur varðveislu gamalla báta og skipa.
GUÐJÓN GUÐMUNDSSON
 gugu@fiskifrettir.is
Til marks um það hversu illa er staðið að varðveislumálum nefnir Lárus að það þurfi til að mynda að greiða hafna- og vitagjöld sem hlaupa á hundruðum þúsunda á hverju ári af fornum bátum sem gegna ekki öðru hlutverki en að vera menningarauki í sjávarútvegsplássum.

Í fóstri
Rekstur Húna II hófst árið 2006 og hefur bátnum verið siglt í kringum landið, til Færeyja og Noregs. Báturinn er í eigu Iðnaðarsafnsins á Akureyri en í fóstri hjá Hollvinafélagi Húna II sem sér alfarið um rekstur og viðhald hans.

Það var í einni ferðinni með Húna II fyrir um það bil sex árum sem komið var við í Bíldudal. Þar sá Lárus 16 metra langan eikarbát í lélegu ástandi við höfnina sem hafði verið úreltur. Honum bauðst að kaupa hann á 500.000 krónur. Báturinn hafði verið smíðaður árið 1977 og verið mestan hluta tímans á Bíldudal. Hann var gerður út á  fiskveiðar.

Lárus segir að báturinn hafi verið í slæmu ásigkomulagi. Hann lét draga hann upp í fjöru þar sem ákveðið var að gera hann sjófæran og draga síðan til Akureyrar til uppgerðar. Í september 2013 var hann dreginn út Arnarfjörðinn og alla leið til Akureyrar þar sem hafist var handa við uppgerðina. Lárus segir að það hafi tekið eitt ár að ná allri málningu af bátnum að utan og innan. Brúin sem var ónýt var fjarlægð og nú er Pétur Þór að breytast í opna skonnortu. Lárus segir að skrokkurinn hafi verið í ágætu ásigkomulagi en nauðsynlegt hafi reynst að endurnýja lunninguna og ýmislegt annað ofanþilja.

Lítill áhugi hér
Aðspurður um hvað vaki fyrir honum með þessu segir Lárus það eingöngu menningarlegan áhuga sem ráði sínum gjörðum. Hann hefur ferðast til annarra Evrópulanda og nefnir að í mörgum borgum sé sérstök aðstaða í dýrustu hverfunum við hafnirnar og mikið haft við til að geta sýnt enduruppgerða eikarbáta sem tengjast atvinnusögu hvers staðar. Um leið séu bátarnir mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Á þessum stöðum sé þannig hlúð að menningararfinum og fyrir vikið verði blómlegt mannlíf við hafnirnar. Hér á landi séu þessu öfugt farið. Lítill áhugi sé á uppgerð gamalla báta og ekkert gert til þess að stuðla að varðveislu þeirra. Þvert á móti sé steinn lagður í götu þeirra fáu sem vilji bjarga menningarverðmætum af þessu toga með álagningu hafnargjalda, vitagjalda og ýmissa annarra gjalda sem íþyngja mjög áhugamönnum á þessu sviði.

Lárus nefnir til marks um þetta sinnuleysi að einu nafntogaðasta fiskiskipi Íslands, Sigurði VE, var leyft að grotna niður í Vestmannaeyjahöfn án þess að tilraun yrði gerð til varðveislu þess. Þó hafði það borið meiri verðmæti á land en flest önnur skip þess tíma. Það var að lokum selt í brotajárn. Lárusi áskotnaðist einnig annar eikarbátur, Fjóla BA, 17 metra langur, að gjöf frá Jóhannesi Haraldssyni fyrir nokkrum árum. Báturinn var meðal annars notaður til að flytja Bíldudals grænar baunir til Reykjavíkur á sínum tíma. Hann var í mjög góðu ástandi og saman liggja bátarnir nú við bryggju í fiskihöfninni á Akureyri og báðir hlotið aðhlynningu m.a. í Slippnum á Akureyri.

Heimild Fiskifrettir.

Guðjón Guðmundsson 

Lárus H. List vill bjarga þeim menningarverðmætum sem felast í gömlum bátum og skipum. Myndir/Þorgeir Baldursson
 

10.01.2019 21:09

Bjarni Bjarnasson skipst er 70 ára i dag

Hinn margrómaði Skipstjóri og útgerðarmaður Bjarni Bjarnsson á stórafmæli i dag 

hann er 70 ára hann hefur lengst af verið kenndur við Súluna EA 300 sem hann

átti og gerði út i samráði við Sverrir Leósson og var eftirsótt að vera i plássi hjá þeim 

enda miklir öðlingar  og fiskaðist alltaf vel á skipið undir stjórn Bjarna 

innilega til hamingju með daginn kæri vinur 

 

 Bjarni Bjarnasson Skipst mynd þorgeir Baldursson 

           Bjarni Bjarnasson og Sverrir Leósson Mynd þorgeir Baldursson 

              1060 Súlan EA 300 á Eyjafirði Mynd þorgeir Baldursson  

10.01.2019 10:29

Slysalaust ár hjá Beitir Nk 123

                   2900 Beitir Nk 123 Mynd þorgeir Baldursson 2018

                Árið 2018 var slysalaust um borð í Beiti NK og er það engin nýlunda. Síldarvinnslan festi kaup á núverandi Beiti árið 2015 og frá þeim tíma hefur ekkert slys orðið þar um borð. Sá Beitir sem var á undan þessum var einnig nánast slysalaus árum saman. Árangurinn hjá Beitismönnum á sviði öryggismála er athyglisverður og eru skipstjórarnir, þeir Sturla Þórðarson og Tómas Kárason, stoltir af honum. Í áhöfn Beitis eru átta manns í hverri veiðiferð.

         Tómas Kárason segir að góður árangur á sviði öryggismála skýrist fyrst og fremst af rótgróinni og samhentri áhöfn ásamt því að öryggisfræðslu sé skipulega sinnt. „Um borð í Beiti ríkir ákveðinn andi hvað öryggismálin varðar. Allir í áhöfninni eru uppteknir af því að öryggisreglum sé fylgt og menn eru sífellt að minna hvern annan á reglurnar. Vinnuaðferðirnar um borð eru rótgrónar og þar þekkja allir sitt hlutverk til hins ítrasta. Það hjálpar líka til að það eru afar litlar breytingar í áhöfninni og hver einasti maður er reynslumikill. Þeir vinnustaðir innan fyrirtækisins sem ná góðum árangri á sviði öryggismála fá ákveðna fjárupphæð í viðurkenningaskyni í lok hvers árs, en ætlast er til að fjármununum sé síðan ráðstafað til góðra málefna. Við höfum fengið slíka upphæð árum saman og við höfum meðal annars látið peningana ganga til björgunarsveitarinnar í Neskaupstað og látið fjölskyldur sem eiga í vanda vegna veikinda njóta þeirra. Áhöfnin er stolt af að geta látið gott af sér leiða með þessum hætti,“ segir Tómas.

                Sturla Þórðarson tekur undir með Tómasi og segir að stefnan sé að tryggja áframhaldandi slysaleysi um borð í Beiti. „Menn eru afar ánægðir með árangurinn og það er mikilvægt að tryggja að engin breyting verði á þessu,“ segir Sturla.

www.svn.is

07.01.2019 12:16

Bátasmiðjan Seigla flytur starfsemina til Litháen

Samkvæmt heimildum hefur verið unnið að þvi undanfarna mánuði að flytja Bátasmiðjuna

Seiglu frá Islandi til Litháen eftir á 2 brunar urðu þar með skömmu millibili og Húsið 

varð gerónýtt og starfseminni sjálfhætt að sögn Sverris Bergssonar eigenda seiglu 

er það allt á áætlun en ekki klárt á þessari stundu hvenar stafsemi hefst þar ytra

 

              ÖYLINER N-65-B með heimahöfn i BODÖ Mynd þorgeir 2016

                         ÖyLYNER N-65-B Mynd Þorgeir Baldursson 2016

07.01.2019 08:00

Fyrsta löndun Gullvers Ns 2019

     1661 Gullver NS12 landar í heimahöfn   fyrsti trú 2019 mynd þorgeir 

Í morgun landaði Gullver Ns 12 fyrsta túrnum á þessu ári   í heimahöfn 

06.01.2019 18:19

Steffan C GR -6-22

     Steffan C Gr-6-22 mynd Héðinn Mari

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 52
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 2311
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 569590
Samtals gestir: 21587
Tölur uppfærðar: 29.3.2024 00:39:05
www.mbl.is