Flokkur: blogg

11.02.2010 10:48

Hábergið EA 299 selt úr landi


                                            Háberg EA 299 ©Mynd þorgeir BALDURSSON 2009
Dótturfélag Samherja H/f Hjalteyrin EHF hefur selt til Noregs tog og nótaskipið Háberg EA 299
skipið mun fá nafnið Ostanger og mun skipið verða skráð i Bergen það er fyrirtækið
Ostanger A/s i Torangsvag sem að kaupir skipið og mun það verða afhennt innan tveggja
vikna ástæða sölunnar mun vera þverrandi kvótastaða i uppsjávarveiði sem að ekki sjái fyrir endan á komandi árum

20.01.2009 23:26

Venus HF 519


                         Venus HF 519 © MYND ÞORGEIR BALDURSSON 


                              Íslenskur togari færður til hafnar

Norska strandgæslan færði í gærmorgun íslenskan togara  Venus HF 519 til hafnar í Hammerfest vegna gruns um að veiðidagbók skipsins hefði ekki verið rétt færð. Fram kemur í norska blaðinu Nordlys, að togarinn sé nú farinn frá Hammerfest eftir að skipstjórinn greiddi sekt.

Nordlys segir, að um borð í skipinu hafi verið 50-60 tonn af afla, aðallega þorskur. Skipið hélt úr höfn um klukkan 17:30 í gær eftir að skipstjórinn hafði greitt 15 þúsund norskar krónur í sekt, jafnvirði um 280 þúsund króna og útgerðin 150 þúsund krónur, jafnvirði um 2,8 Milljóna isl eftir heimildarmanni siðunnar er talið að um skekkju hafi verið i smáfiskaskilju sem að skipið var með um borð


 



 













 

 

11.01.2009 10:55

Haraldur Böðvarsson AK 12



                  1435. Haraldur Böðvarsson AK 12 © mynd Tryggvi Sig.

 Stapey SU 120 setti inn mynd eins og hann er i dag sem Fóðurprammi i Berufirði  við
Djúpavogi myndin er tekin 2006 um sumarið

04.01.2009 00:38

Loðnuleit 2009


                           Lundey NS 14 © Mynd Þorgeir Baldursson
Loðnuskipið Lundey NS 14 sem er i eigu Granda hélt til loðnuleitar út frá Reykjavik i dag ásamt
Faxa RE 9 og Árna Friðrikssyni RE 200 einnig fór Börkur NK 122 frá Sildarvinnslunni i Neskaupstað með i þessari leit. Hérna fyrir ofan má sjá Lárus Grimsson skipstjóra á Lundey ásamt Stefán Geir Jónsson 1 stýrimanni og afleysingaskipstjóra sem að fer  með skipið i loðnuleitina að þessu sinni.Skipverjar gáfu sér þó tima fyrir myndatöku en þeir eru flestir frá Húsvik fyrir utan einn sem að er frá Dalvik 

21.12.2008 21:07

Hriseyjan EA 410



                                  © MYND ÞORGEIR BALDURSSON
Hérna kemur mynd af Hriseynni EA 410 ex Arnar HU 1 hvað er vitað um afdrif hans

06.11.2008 12:14

Óli Bjarnason EA 279


                                         © Mynd Þorgeir Baldursson 2008
Hérna má sjá Sóma 990 sem að Óli Óla i  Grimsey er eigandi að og mun ganghraði vera um 36 milur

28.10.2008 01:30

Lisa Maria


                           Lisa Maria ÓF 26  © Mynd Þorgeir Baldursson
 skipstjórinn  Númi  stendur fyrir framan skipið  Hvað geta menn sagt mér um þetta skip
og hvar er það niðurkomið i dag

16.08.2008 14:10

Gamli Sæfari seldur


                                       Sæfari © mynd þorgeir baldursson 2005

Gamli Sæfari til Svíþjóðar?

Hæsta tilboðið í gamla Sæfara, sem þjónaði lengi vel Grímseyingum með farþega- og vöruflutninga, barst frá sænsku fyrirtæki og hljóðaði upp á 630 þúsund evrur, eða rúmar 76 milljónir króna. Ríkiskaup auglýstu eftir tilboðum í ferjuna þann 6. júlí, en lokað var fyrir tilboð í fyrradag.

Guðmundur I. Guðmundsson, yfirlögfræðingur hjá Ríkiskaupum, segir tilboðið standa í tvær vikur. Það sé til athugunar, en meira verði að frétta af málefnum gamla Sæfara í næstu viku. Hann segir að ekki sé gefið upp hversu mörg tilboð bárust í ferjuna fyrr en málið hafi verið gert upp, en segir þau hafa verið þó nokkur Heimild MBL.IS

14.08.2008 00:19

Grand Prinscess


                        © myndir Þorgeir Baldursson 2008
Hún var tignarleg Grand Prinscess þegar að hún lét úr höfn á Akureyri i gærdag um kl 14 en skipið er um 108,000 tonn að stærð um borð i skipinu voru 2750 og i áhöfn voru 1050 og er þetta langstæðsta skemmtiferðaskipið sem að kemur hingað i sumar á mynd no 3 má sjá griðarlega stóran flatskjá og ég gat ekki annað séð en að vel væri búið að farþegunum  aftan á skipinu voru svalir sem að sennilega eru fyrir einkasvitur gestanna annas tala myndirnar sinu máli

23.07.2008 00:12

Slippurinn


                                © MYNDIR ÞORGEIR BALDURSSON 2008
Það var talvert lif á svæði slippsins i gærdag þegar siðuritari átti leið um hafnarsvæðið og voru þar meðal annars skip sem að var lengi vel gert út á rækju bæði hérna heima og erlendis og hét lengi Helga Björg HU en heitir i dag Neptune og mun skipið eiga að vera aðsetur fyrir kafara ásamt ýmssum verkefnum tengdum þvi, svo er Tenor sem að er i eigu Nýsirs og er hann búinn að vera hérna við bryggju um ár og ekkert fararsnið á honum Hamar SH 224 var tekin upp i dráttarbrautina i gærkveldi og Klakki SH 510 var slakað niður úr flothvinni i gærkveldi svo að verkefnastaða fyrirtækisins mun vera góð um þessar mundir

16.07.2008 00:12

Guðni Ólafsson VE 606


                             © Mynd Þorgeir Baldursson
          © myndir Þorgeir Baldursson
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var skipi stórt og glæsilegt en það var ekki lengi i rekstri hérna heima og var selt úr landi eftir skamman tima og heitir i dag  San Aspiring ex. Guðna Ólafssyni VE 606.en þessi útgerð gerir út fjögur skip hin skipin heita.  San Waitaki  San Enterprise og San Discovery en þessi síðarnefndu þrjú skip eru öll systurskip Þerneyjar RE.

12.06.2008 01:24

Hver er báturinn júni 2008


                                © Mynd Smári Steinarsson 2008
Myndin er af hnoðuðum stálbát sem að rak uppi fjöru hvað heitir báturinn og hver er saga hans

 

16.04.2008 07:55

SEIGLA SEGUR 1100 T


                          ©Myndir þorgeir Baldursson 2008
Seigla sjósetti nýverið bát af gerðinni Seigur 1100 T.  Þetta er 3 báturinn sem að fer til Noregs siðan um áramót Hann hefur verið seldur til Noregs. T stendur fyrir breidd bátsins sem er 3,9 metrar og ný gerð af bátum frá Seiglu sem byggðir eru á Seig 1160. Hægt er að afgreiða bátana frá 10-12,7 metra langa þannig að þeir falla í hin ýmsu fiskveiðikerfi hér og landanna í kringum okkur.

Mikil eftirspurn hefur verið eftir bátum frá Seiglu í Noregi og ekki er það síst vegna fellikjalarins sem er staðalbúnaður í öllum stærri fiskibátum frá Seiglu. Báturinn, sem sjósettur var síðastliðinn laugardag, heitir Seien og var hann byggður fyrir útgerð í Noregi í eigu Henry Benum og var hann hér á landi til að taka á móti honum og reynslusigla. Báturinn sem gengur 28 sjómílur er búinn 650 hestafla Volvo penta-vél. Hann er með stærra stýrishúsi en þekkist hér á landi þar sem frændur okkar Norðmenn gera meiri kröfur um aðbúnað vistarvera um borð en minni um pláss á dekki. Heimild MBL  Myndir þorgeir Baldursson

12.04.2008 00:17

Þursaflokkurinn á Græna hattinum


                                                © mynd þorgeir baldursson 2008
Hinn magnaði þursaflokkur kom saman á Græna Hattinum á Akureyri i gærkveldi og flutti þar mörg af sinum bestu lögum húsfyllir var og verða tvennir tónleikar á sama stað i kvöld og fyrir þá sem að hafa gaman af tónlist þursanna hvet ég til að fara og hlusta á þá og njóta vel 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 96
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 1506
Gestir í gær: 141
Samtals flettingar: 605806
Samtals gestir: 25589
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 04:15:58
www.mbl.is