Færslur: 2009 Ágúst

31.08.2009 21:21

2333-Jóna Eðvalds SF 20


                                 2333-Jóna Eðvalds SF 20 Mynd þorgeir Baldursson
Hérna má sjá Loðnuskipið  Jónu Eðvalds á siglingu á Faxaflóa um aldarmótin en skipið
var i eigu Skinney/Þinganes á Hornafirði hvað varð af þvi

31.08.2009 19:40

Dagfari ÞH 70




                                    1037. Dagfari ÞH 70 © myndir Emil Páll

Hefur borið nöfnin Dagfari ÞH 70, Dagfari GK 70 og Stokksey ÁR 40. Fór síðan í pottinn 2005.

31.08.2009 18:28

Hvar er þetta?


                           HVAR ER ÞETTA? © mynd úr safni Svafars Gestssonar

31.08.2009 16:48

Ný Cleopatra 33 til Frakklands

Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi nú á dögunum nýjan Cleopatra bát til Capbreton, á Suð-vesturströnd Frakklands.  Trúlega er hér um fyrstu nýsmíði frá Íslandi til Frakklands að ræða.
Kaupandi bátsins er Mathieu André sjómaður frá Capbreton.
Báturinn hefur hlotið nafnið Le Dré.  Báturinn mælist 11brúttótonn.  Le Dré er af gerðinni Cleopatra 33.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Cummins 6CTA8.3M 350hp tengd ZF286IV-niðurfærslugír.  Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni Furuno og Simrad.
Báturinn er útbúinn til neta og  línuveiða samtímis.
Búnaður til netaveiða er frá G.M.H. og búnaður línuveiða er frá Able. 
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.
Rými er fyrir 14stk 380lítra kör í lest.  Í bátnum er upphituð stakkageymsla.  Stólar fyrir skipstjóra og háseta eru í brú.  Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Skírnarathöfn undir stjórn Peters Bürchers biskups kaþólsku kirkjunnar á Íslandi fór fram í Hafnarfjarðarhöfn fyrir sjósetningu bátsins.
Báturinn hefur þegar hafið veiðar í Biscay flóanum.


   Ný Cleopatra 33 frá Trefjum hefur verið seld til Frakklands og ber hún nafnið Le Dré © mynd Trefjar

31.08.2009 08:45

Tindur SH 179


                               Tindur SH 179 © Mynd Alfons Finnson um 1990

                                      Tindur SH 179 á toginu ©Mynd Alfons Finnsson um 1990

           Tindur SH á Landleið með fullfermi ©mynd Alfons Finnsson um 1990
Hinn öflugi fréttaritari Morgunblaðsins i Ólafsvik Alfons Finnson sendi mér þessar myndir i gær vegna skota á hann hérna á siðunni þar sem að hann hefur rikt eins og Kóngur i riki sýnu þangað til um helgina þegar tveir Öflugir skipaljósmyndarar mættu á nesið og afmyduðu flesta báta  sem á vegi þeirra urðu  og hérna má sjá Tind SH 179 koma með fullermi af þorski
i land en báturinn var á veiðum með snurvoð

31.08.2009 00:03

Glófaxi VE 300


                  968. Glófaxi VE 300, í Grundarfjarðarhöfn © mynd Emil Páll í ágúst 2009

31.08.2009 00:02

Guðbjörg Steinunn GK 37


              1236. Guðbjörg Steinunn GK 37, í Akraneshöfn © mynd Emil Páll í ágúst 2009

31.08.2009 00:01

Kristbjörg HF 177


                 239. Kristbjörg HF 177, í Ólafsvík © mynd Emil Páll í ágúst 2009

31.08.2009 00:00

Valþór NS 123


                     1081. Valþór NS 123, í Reykjavík © mynd Emil Páll í ágúst 2009

30.08.2009 20:07

Venus HF 519


                  1308. Venus HF 519 © mynd Markús Karl Valsson í mars 2009

Nýlega sögðum við frá því að togarinn Venus HF 519 kom með aflaverðmæti úr Barentshafi, en þá höfðum við ekki við hendina mynd af togaranum. Nú hefur Markús Karl Valsson, sem einnig er með öfluga skipasíðu, lánað okkur mynd af togaranum sem tekin var af honum er hann kom til löndunar með fullfermi úr Barentshafi í lok mars sl. vetur.

30.08.2009 18:51

Getraunin: Hvaðan er þetta?


                               Hvaðan er þetta? © mynd úr safni Svafars Gestssonar

30.08.2009 13:23

Flakið framan við Skipavík


    Giska á að þetta sé 222. Þorgeir GK 73 en sá bátur var keyptur til Stykkishólms 1971 og var ári síðar ekki talinn haffær og síðan tekin af skrá 1979. Fyrir þó nokkuð mörgum árum rak bátinn upp í Landey, beint á móti Skipavík í Stykkishólmi og þar er hann ennþá. Báturinn var smíðaður í Hollandi 1925 © mynd Emil Páll í ágúst 2009 (raunar í gær)

30.08.2009 08:26

Fyrrum íslensk skip í Ghana


   MV. Kristi Sophie ex Glófaxi VE 300 og Rose Marý ex Sæfell ÍS 82 ex Vonin KE 2  í Ghana fyrir nokkrum árum © mynd Svafar Gestsson

30.08.2009 07:14

Bryggjumyndir frá Ólafsvík

Til að standa undir nafni sem metnaðarlaus ókrýndur bryggjukóngur fór síðuritari um Snæfellsnesið í gær og tók urmul af myndum að skipum bæði við bryggju og eins uppi á þurru landi, enda var bræla. Eru þær hér með tileinkaðar viðkomandi manni á Snæfellsnesi sem hefur kosið að koma fram undir nokkrum dulnefnum frekar en að nota sitt eigið og fara mikið á ýmsum síðum, ófögrum orðum um síðuritara og þá ekki bara á þessari og ekki meira um það.
Árangur ferðarinnar mun birtast hér á síðunni, þó ekki allar strax.


                                                     847. Tindur SH 179


                                    1426. Guðmundur Jensson SH 717


                                                      1587. Geisli SH 41


              2274. Sandvík SH 4 © myndir Emil Páll í Ólafsvík í ágúst 2009 (í gær)

30.08.2009 00:00

Frá strandi Epine GY 7 frá Grímsby

Á Djúpalónssandi á Snæfellsnesi er mikið af járni dreift um sandinn. Járn þetta er úr flaki m.a. enska togarans Epine GY 7 sem strandaði austan við Dritvíkurflögur fyrir rétt rúmum 60 árum. Birtum við hér myndir teknar á sandinum og sýna þær hluta af flakinu svo og upplýsingaskilti sem þar er.










  Leifar af flakinu og upplýsingar um strandið á Djúpalónssandi © myndir Emil Páll í ágúst 2009

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1552
Gestir í dag: 77
Flettingar í gær: 3321
Gestir í gær: 184
Samtals flettingar: 599070
Samtals gestir: 24998
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 09:04:29
www.mbl.is