Færslur: 2024 Maí

19.05.2024 22:30

Bylting í fiskvinnslutækni

          Bjarmi Sigurðgarsson og Ólöf Ýr Atladóttir  stofnendur og eigendur Vélfags mynd þorgeir Baldursson 

Vélfag sýndi byltingarkennda gerð af fiskvinnsluvél á Sjávarútvegi 2022 (Iceland Fishing Expo) í síðustu viku. Tækið sem nefnist Uno er í raun fimm vélar í einni. Það beinhreinsar fisk, hausar, roðflettir, flakar, sker í bita og er með innbyggt gæðaeftirlit. Tækið hefur verið í þróun í tvö ár. Bluewild útgerðin norska hefur keypt tvö tæki þessarar gerðar í hinn byltingarkennda Ecofive togara sem nú er í smíðum.

Uno leysir af hólmi fimm vélar og gjörbyltir hvítfiskvinnslunni eins og hún þekkist í dag. Fisk er raðað inn í vélina sem sér um afganginn. Hún hausar, flakar, beinhreinsar, roðdregur og gallagreinir flakið þegar það er á leið út úr vélinni. Vélin metur hvort þurfi að snyrta flakið eitthvað frekar þegar það kemur út úr henni. Það fer því annað hvort beint í pökkun framhjá snyrtilínunni eða til áframhaldandi vinnslu.

Uno vinnur líka afurðir ofan og neðan við hrygg við dálkbeinið og þær ásamt beingarðinum sem er skorinn úr með vatni eru kjörhráefni í marning úr afurðunum sem væri annars hent eða færu í lægri gæðaflokk. Segja má að fullvinnsla Uno vélarinnar sé algjör því hún sker líka gellur og kinnar úr hausnum.

„Við erum að reyna nýta eins mikið og við getum úr fiskinum í þessari vél og án þess að mannshöndin komi þar nærri,“ segir Andri Fannar Gíslason sjávarútvegsfræðingur sem hefur verið í teymi Vélfags sem þróaði Uno vélina.

Aðlagar sig hverri tegund

Uno vélin vinnur allar helstu bolfisktegundir sem veiddar eru á Íslandsmiðum, þ.e. þorsk, ýsu, ufsa, karfa og alaskaufsa einnig. Með rofa á skjá vélarinnar er hægt að velja á milli tegunda og vélin aðlagar sig sjálfvirkt að hverri tegund fyrir sig. Hún greinir einnig stærð fiska og aðlagar vinnsluna eftir henni.

Kostir Uno vélarinnar eru í fyrsta lagi aukin nýting en líka það að vélin er mannaflssparandi. Hún hentar jafnt til uppsetningar í skipum og minni landvinnslur gætu séð sér hag í svo fyrirferðarlítilli en afkastamikilli vél.

„Flökunarvélarnar sem við höfum framleitt geta flakað allt frá 500 gramma fiski og upp í 8-10 kílógramma fisk. Þessi þáttur flökunarvélarinnar er innbyggður í nýju Uno vélina. Við byggjum því áfram á því góða starfi sem við höfum unnið í þróun á flökunarbúnaði,“ segir Andri Fannar.

Bylting í bolfiskvinnslu

Óhætt er að tala um að Uno vélin sé bylting í bolfiskvinnslu. Það sýndi sig líka í miklum viðbrögðum gesta á sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll í síðustu viku þegar vélin var frumsýnd. Andri segir að áskorunin hafi verið sú að ein vél gæti unnið fisk jafnvel og margar vélar gera núna. Þess vegna þarf vélin að skila meiri nýtingu og jafnmiklum eða meiri hraða en núverandi vinnslulínur. Miðað er við að afkastageta nýju vélarinnar verði á pari við nýjustu gerðir flökunarvéla, þ.e.a.s. að hámarki 40-45 fiskar á mínútu.

„Fyrstu prófanir gefa til kynna að nýtingin sé töluvert meiri. Það liggur í því að vélin sker beingarðinn úr heilum fiski en ekki flökum. Röðunin á beinunum hefur því ekki aflagast í flökuninni og roðdrættinum og vélin nær að skera mun þynnri línu sem leiðir til 2-3% betri nýtingu.“

Einkaleyfi á heimsvísu

Vatnskurðurinn og myndavélaeftirlitið í vélinni byggir á tæknilausnum Vélfags. Vélin kemur í einni stærð og einum pakka. Nú er unnið að öflun einkaleyfis fyrir vélina á heimsvísu sem lýtur að því hvernig fiskurinn er skorinn í vélinni, þ.e.a.s. skurður á heilum fisk en ekki flökum. Ólöf Lárusdóttir, sem er eigandi Vélfags ásamt eiginmanni sínum, Bjarma Sigurgarðarssyni og rússneska sjávarútvegsfyrirtækinu Norebo, segir að markaðssetning á Uno vélinni hefjist á fjórða ársfjórðungi 2023. Verð á vélinni verði gefið út á næsta ári. Hún segir að engu síður verði Uno vélin hagkvæmari lausn en kaup á öllum hefðbundnum fiskvinnsluvélum sem innbyggðar eru í þessa einu vél auk þess sem nýtingin er meiri og sjálfvirknin einnig.

Engu að síður hefur norska útgerðarfélagið Bluewild þegar fest kaup á tveimur Uno vélum sem verða settar um borð í Ecofive, hátæknivæddan verksmiðjutogara sem hlaut nýsköpunarverðlaunin á Norfish sýningunni í Þrándheimi og er nú í smíðum hjá Ulstein í Noregi. Yfirlýst markmið Bluewild er að nýta sem best auðlind hafsins og skipa sér í flokk umhverfisvænstu útgerða.

 

19.05.2024 10:40

Strandveiðikerfið hamli endurnýjun smábátanna

Karri EA 26 heldur nú stöðugri til veiða úr Hrísey með nýjum síðustokkum. Sigurður Baldursson í bátasmíðafyrirtækinu Baldri Halldórssyni á Akureyri segir trillukarla bíða með endurbætur þar til strandveiðikerfið þjóni því markmiði að styðja við brothættar byggðir

Sigurður Baldursson og Almar Björnsson, eigandi Karra EA 26, flytja bátinn til sjósetningar í síðustu viku. FF Mynd/Þorgeir Baldursson

Deila

„Það eru verri og skárri tímar,“ segir Sigurður Baldursson hjá Baldri Halldórssyni ehf. á Akureyri um verkefnastöðuna í bátaviðgerðum.

Fyrirtækið flytur inn allra handa búnað í báta, fyrst og fremst frá Vetus í Hollandi, og segir Sigurður söluna hafa minnkað á þessu ári.

„Trillukarlar eru alltaf að bíða eftir að strandveiðikerfið verði eitthvað lagað,“ segir Sigurður. Menn séu hikandi við að fjárfesta þegar strandveiðunum sé lokið í byrjun júlí án þess að þeir hafi náð ásættanlegri veiði. Sumir flytji á brott og það bitni á afleiddum störfum. „Kerfið er ekki að styrkja brothættar byggðir ef þeir þurfa að fara vestur til veiða og skilja heimabyggð sína eftir tekjulægri en áður.“

Hraðgengur en valtur

Í síðustu viku var strandveiðibáturinn Karri, sem gerður er út frá Hrísey, sjósettur eftir yfirhalningu hjá Sigurði. „Þetta er Mótunarbátur sem er hraðgengur en var valtur og við settum á hann svokallaða síðustokka sem hægja á veltingnum,“ segir hann.

 

Karri EA 26 sjósettur. Mynd/Þorgeir Baldursson

Karri EA 26 sjósettur. Mynd/Þorgeir Baldursson

 

 

Næstu verkefnin segir Sigurður vera hobbíbáta sem ekki hafi strandveiðileyfi. „Við erum að setja nýja Vetus-vél í Færeying og síðan þar á eftir erum við með nokkrar skemmtibáta til viðgerðar,“ segir hann.

Fyrirtækið Baldur Halldórsson ehf. á sér langa sögu.

„Pabbi byrjaði að smíða trébáta á Hlíðarenda 1953. Þetta hefur eiginlega verið starfrækt óslitið síðan. Allt breyttist upp úr 1975 þegar Fiskveiðasjóður hætti að lána til bátakaupa og trébátasmíðar dóu út,“ segir Sigurður. Þá hafi trefjaplastbátar tekið við.

Yfir hundrað bátar síðan 1952

„Pabbi fór að flytja inn skrokka og sá í framhaldi af því þessar vörur frá Vetus sem er risafyrirtæki í Hollandi með allt í báta; vélar og niður í smæstu hluti,“ segir Sigurður.

Það sem var í upphafi aukabúgrein á landlitlum bóndabæ tók fljótlega alveg fyrir búskapinn. Alls voru smíðaðir fimmtíu trébátar hjá Baldri Halldórssyni og síðan þá hafa verið smíðaðir rúmlega fimmtíu plastbátar.

Auk Sigurðar sjálfs er einn annar starfsmaður við bátana og Ingunn systir hans og meðeigandi er á skrifstofunni.

Trefjaplastið  ódrepandi

„Í seinni tíð eru þetta mest breytingar á bátum. Það er verið að lengja báta og flikka upp á þá. Við höfum lengt allar gerðar af bátum, til dæmis Sómabáta og þessa Starlet-báta sem pabbi flutti inn á sínum tíma,“ segir Sigurður. Trefjaplast sé magnað efni.

„Það virðist næstum ódrepandi. Ef skrokkurinn hefur verið vel gerður á sínum tíma er endalaust hægt að að laga bátana.“

Athygli vekur að reksturinn er enn á sama stað og í upphafi, við Hlíðarfjallsveg í um 160 metra hæð yfir sjávarmáli.

„Ég hef stundum sagt þegar verið er að tala um hnattræna hlýnun og hækkun sjávar að þá sé kannski bara vissara að vera hér,“ segir Sigurður Baldursson.

Fiskifrettir.is

 

19.05.2024 10:32

Þórður á Grenivík hafði afskrifað grásleppuna

Þórður Ólafsson á Elínu Þh 82 frá Grenivík segir grásleppuveiði hafa gengið vel á Eyjafjarðarsvæðinu síðustu þrjú árin. Hann segir strandveiðikerfið mannfjandsamlegt.

Þórður Ólafsson landar grásleppu á Dalvík á dögunum. Mynd/Þorgeir Baldursson

Deila

„Þetta er ekki alveg búið en þetta er orðið harðsótt, það er bara fjaran eftir,“ segir Þórður Ólafsson, sem gerir út Elínu ÞH 82 á grásleppu frá Grenivík.

„Þetta byrjaði rólega en veiðin hefur gengið sæmilega og er búin að vera mjög góð síðustu þrjú árin og betri en við eigum að venjast á þessu Eyjafjarðarsvæði,“ segir Þórður. Oft komi skarpir toppar fyrir austan í Bakkaflóanum og í Húnaflóanum og Breiðafirðinum. Hann haldi að á Vestfjörðum sé enn meiri grásleppa en fyrir norðan.

Þórður lagði fyrst net sín 13. apríl og á því nóg eftir af þeim 55 dögum sem veiða má og ætlar að halda áfram enn um sinn. „En ég verð aldrei þessa 55 daga,“ tekur hann fram.

Ný von með sölu á ferskum hrognum

„Ég hélt fyrir tuttugu árum að grásleppuveiðar myndu brátt heyra sögunni til,“ segir Þórður spurður um markaðsstöðuna. Það hafi síðan orðið stór breyting með því að selja hrognin fersk.  „Ef ekki þarf að salta öll hrognin er komin ný von með þetta,“ segir hann.

Sorglegt sé hins var að markaðir fyrir búkinn hafi lokast í Kína. „Mér skilst þó núna að menn séu að losna við þetta kostnaðarlaust. Þó að þetta geri ekki annað en að borga frystingu og flutning kalla ég það góðar fréttir á meðan það tekst. Það gerir ekki annað en að vinda upp á sig og enda með því að verða markaðsvara.“

Vill kerfi með virðingu

Er grásleppunni sleppir tekur strandveiðin við hjá Þórði. „Ég fer á strandveiðina ef það verður ekki búið að loka,“ segir Grenvíkingurinn. Það fari í skapið á honum þegar talað sé um mokveiði á strandveiðunum.

„Ég hef viðbjóð á þessu fyrirkomulagi. Þetta er búið til af mannvonsku,“ segir Þórður. Margar leiðir séu til að bæta kerfið.

„Ef það á að leyfa þetta á annað borð, af hverju er það ekki gert með virðingu og jákvæðni?“ spyr Þórður.

„Ef þetta væru bara þessir 48 dagar þá þarf engar aðrar takmarkanir. Ef menn vilja binda sig við einhvern pott sem má veiða þá væri líka hægt að setja lokadag um það hvenær menn geta sótt um strandveiðileyfi á hverju vori og skipta magninu hreinlega upp á milli bátanna.“

fiskifrettir.is 

18.05.2024 16:32

Hoffell SU 80

                              3035 Hoffell SU 80 i Slippnum á Akureyri mynd þorgeir Baldursson  2024 

14.05.2024 23:00

1512 Jón Kjartansson Su 111

Nú seinnipart dags lagði Grettir sterki með Jón Kjartansson su 111 ex Hólmaborg su 11 og Eldborg HF 13 

Frá Reyðarfirði á leiðis til Danmerkur en þangað hefur skipið verið selt i niðurrif það var fréttaritari siðunnar 

á Austfjörðum Guðlaugur Björn Birgisson sem að tók þessar frábæru drónamyndir þegar skipin héldu úr höfn 

og siðan koma nokkar úr safni siðueiganda kv þorgeir Baldursson 

                         Grettir sterki og 1512 Jón Kjartansson su 111 mynd Guðlaugur Björn Birgisson 14 mai 2024

              Grettir sterki leggur af stað með 1512  Jón Kjartansson Su 111 mynd Guðlaugur Björn Birgisson 2024 

                    Grettir Sterki og jón Kjartansson su 111 á Reyðarfirði mynd Guðlaugur Björn Birgisson 2024 

                    1512 Jón Kjartansson SU 111 Mynd þorgeir Baldursson 

                               1512 Jón Kjartansson su 111 mynd þorgeir Baldursson 2023 

  1512 Hólmaborg su 11 á siglingu við skarðsfjöru 20 /11 2005 mynd þorgeir 

13.05.2024 22:23

Snorri i Hvalaskoðun á Akureyri

                            950 Snorri Ea Hvalaskoðunnarbátur mynd þorgeir Baldursson 

12.05.2024 20:48

Sigurður Ve 15 á Eyjafirði i kvöld

   Guðmundur þ Jónsson  stýrimaður  Og Hörður Guðmundsson skipst á Sigurði Ve 15 mynd þorgeir Baldursson 

 

i kvöld sigldi inn Eyjafjörð Sigurður Ve 15 i siðasta skipti undir skipstjórn Harðar Guðmundssonar

þar sem að Hörður  hefur ákveðir að stiga frá borði og koma i land eftir mjög mörg ár til sjós 

við skipstjórn á Sigurði Ve af Herði tekur Jóhannes Danner sem að var siðast á Jónu Edvalds SF 200

                        2883 Sigurður Ve 15 á siglingu á Eyjafirði i kvöld mynd þorgeir Baldursson 

                        2883 Sigurður Ve 15 á siglingu á Eyjafirði i kvöld mynd þorgeir Baldursson 

12.05.2024 15:50

Gullberg VE 292 kominn i lit Vinnslustöðvarinnar

                                                     2730 Gullberg VE 292 Mynd Þorgeir Baldursson 2024 

 

09.05.2024 23:33

Selir i Eyjafirði

                                                  Selir að flatmaga á Leirunni mynd þorgeir Baldursson 

                                         ljósmyndarinn vakti einhverja athygli selanna mynd þorgeir Baldursson 

                                                          greinilega varir um sig mynd þorgeir Baldursson 

                 Álftin ásamt selunum gaf ljósmyndaranum auga mynd þorgeir Baldursson 2024

08.05.2024 23:42

08.05.2024 23:28

Tvö Hoffell á Akureyri

    I forgrunni er 3035 Hoffell su 80 og fyrir aftan er samskip Hoffell ásamt 2955 Seifur mynd þorgeir Baldursson 

02.05.2024 23:12

Kappsigling til Dalvikur i dag

            2691 Sæfari og 2940 Hafborg EA 152 i kappsiglingu til Dalvikur i dag mynd þorgeir Baldursson 

02.05.2024 00:00

Gullberg Ve 292 i slipp á Akureyri

                                        2730 Gullberg Ve 292 mynd þorgeir Baldursson 1 mai 2024 

 

01.05.2024 16:33

Gunnar Nielsson EA 555

                  6852 Gunnar Nielsson EA555 kemur tl hafnar á Akureyri i dag mynd þorgeir Baldursson 

                                                         Komið i land i dag mynd þorgeir Baldursson 1 mai 2024
  • 1

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 153
Gestir í dag: 45
Flettingar í gær: 1485
Gestir í gær: 154
Samtals flettingar: 643785
Samtals gestir: 30109
Tölur uppfærðar: 20.5.2024 01:28:18
www.mbl.is