Færslur: 2008 Janúar31.01.2008 22:59Þinganes SF 25Þinganes SF 25 tók þessa mynd þegar ég fór 1 túr á Júliusi Havsteen ÞH 1 (Þeim sem að var smiðaður á Akranesi )en við fengum i skrúfuna og fengum kafara frá hornafirði til að skera úr henni hver getur frætt siðuritara um þennan bát og hvað varð af honum a Skrifað af Þorgeir 30.01.2008 21:50KROSSANES RIFIÐKrossanesverksmiðjan i dag og er nú unnið að fullum krafti við niðurrif verksmiðjunnar Tækjabúnaður tveggja loðnubræðslna á Norðurlandi hefur verið seldur til Marokkó í Afríku. Um er að ræða tækjabúnað verksmiðjanna á Raufarhöfn og í Krossanesi við Akureyri. Ríkisútvarpið greindi frá þessu.
Loðnubræðslur voru starfræktar víðs vegar um landið á árum áður með tilheyrandi peningalykt, en með breyttum vinnsluaðferðum hefur þeim fækkað verulega. Á Raufarhöfn var verksmiðjan burðarásinn í atvinnulífinu, en nú eru búið að fjarlægja allar vélar og sömu sögu er að segja um Krossanesverksmiðjuna á Akureyri. Á Raufarhöfn standa eftir ónýtt hús og mannvirki, en á Akureyri rís aflþynnuverksmiðja á athafnasvæði Krossanesverksmiðjunnar. Til Akureyrar kom í morgun flutningaskip, sem flytur tækjabúnað verksmiðjanna tveggja um langan veg, búnaðurinn hefur verið seldur til Marokkó. Heimild RUV.IS Skrifað af Þorgeir 30.01.2008 17:11Helga Jóh VE 41Helga Jóh VE 41 við bryggju i Vestmannaeyjum haustið 1983-84 hver er saga hennar Skrifað af Þorgeir 29.01.2008 21:23Guðrún GK 37Guðrún GK 37 á sildveiðum haustið 1984 hvað er vitaðum sögu þess var það ekki i einhverskonar hvalamerkingum fyrir hafró allvega var skipið gert út frá Vestmannaeyjum undir nafninu Guðrún VE 122 Skrifað af Þorgeir 28.01.2008 23:44Stafnes KE 130Oddur Sæmundsson og áhöfnin á Stafnesinu KE 130 sjást hér draga netin inná Faxaflóa skipið var svo selt i staðinn fyrir nýtt skip sem að var smiðað i Noregi Skrifað af Þorgeir 28.01.2008 22:59Happasæll KE 94Happasæll KE 94 við bryggju i Keflavik um sumarið 1984 og var oft gaman að fylgjast með Rúnari og skipshöfinni þegar komið var i land oft i leiðindaveðri og með fullt skip af ufsa Skrifað af Þorgeir 28.01.2008 22:18Albert Ólafsson KE 39 ssnr 256Albert Ólafsson KE 39 á siglingu við hafnargarðinn i keflavik haustið 1985 hvað er vitað um bátinn Skrifað af Þorgeir 26.01.2008 01:23FULLFERMI AF LOÐNUHólmaborg SU 11 á siglingu útaf skarðfjöru haustið 1997 á leðinni til Eskifjarðar aflinn um 2650 tonn af loðnu núna er skipið á kolmunnaveðum við Færeyjar og hefur risjótt tiðarfar sett mikið strik i veiðarnar undanfarinn sólahring og mundu nokkur þeirra vera komin til hafnar i Suðurey Skrifað af Þorgeir 25.01.2008 00:12rækjuveiðar á flæmingjagrunni
Skrifað af Þorgeir 24.01.2008 22:56Fiskistofa veiðieftirlitVeiðieftirlitmaður Einar Guðmundsson frá fiskistofu að störfum við ýsumæliningar um borð i Kaldbak EA 1 i fyrstu veiðiferð 2008 Skrifað af Þorgeir 24.01.2008 01:31LEIST FRÁ POKANUMBjörn Ragnarsson skipverji á isfisktogaranum Kaldbak EA1 sést hérna leysa frá pokanum þegar skipið var að veiðum fyrir austan land nú skömmu eftir áramótin aflinn var rúm 2 tonn af ýsu og nokkrir þorskar og vegna niðurskurðar i þorskaflaheimildum þá hefur ýsunni verið landað i gáma og flutt erlendis en þorskurinn fluttur til Akureyrar i vinnslu i frystihúsi Brims H/F Skrifað af Þorgeir 01.01.2008 18:16Ólafur Jónsson KE og Knarrarnes KETogarinn Ólafur Jónsson GK 404 á útleið frá Sandgerði og Knarrarnes KE 399 á landleð inn til Sandgerðis ef mig brestur ekki minni þá fóst Knarranesið á rækjuveiðum og 2 menn feðgar fórust Skrifað af Þorgeir 01.01.2008 15:08Jón Trausti ISJón Trausti is hver er saga hans eigandi er BORG H/f i Hrisey hann er búinn að vera i slippnum á Akureyri i nokkur ár Skrifað af Þorgeir
|
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1122 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 1858 Gestir í gær: 51 Samtals flettingar: 1062396 Samtals gestir: 50972 Tölur uppfærðar: 22.12.2024 07:24:22 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is