Færslur: 2021 Janúar31.01.2021 20:30Gisli Jóns björgunnarbátur isfirðinga
Skrifað af Þorgeir 31.01.2021 09:51Norsku Loðnuskipin mætt til veiða við island
Skrifað af Þorgeir 31.01.2021 09:17Trollið tekið allt fyrir öryggið
Skrifað af Þorgeir 31.01.2021 01:05Akraberg FD10 ex Guðbjörg is 46
Skrifað af Þorgeir 30.01.2021 20:48Gnúpur Gk ex Guðbjörg IS seld til RússlandsGnúpur GK-11 sigldi um hádegisbilið í dag 30 janúar frá Hafnarfirði . Hann hefur verið seldur til Rússlands og stefnt er að því að hann verði afhentur nýjum eigendum í Kirkenes í Noregi snemma á nýju ári .Skipið hefur verið í rekstri Þorbjarnar hf í um 26 ár, en það kom fyrst til hafnar í Grindavík í lok árs 1994. þegar Hrönn H/F fékk nýja Guðbjörgu IS 46 þá gekk sú gamla uppi kaupin á nýju
Áður hét skipið Guðbjörg ÍS-46 og var þá gert út sem ísfisktogari. og þegar hún var fyrir vestan fyrir fiskaði hún 79.705 á þrettán árum sem að hún var i eigu Hrannar H/F samkvæmt heimildum Aflafretta gerir þetta afla uppá 242.218 tonn sem að telst nokkuð góður árangur Skömmu eftir komuna til Grindavíkur var Gnúpnum breytt í frystitogara og gerður út sem slíkur með góðum árangri.
Skrifað af Þorgeir 30.01.2021 16:49Hákon EA148 kemur til Akureyrar úr LoðnuleitHákon EA148 kom til Akureyrar i dag eftir stutta en snarpa loðnuleit og að sögn skipstjórnarmanna á þeim skipum sem að voru við leit var talsvert að sjá fyrir austan en litið hérna á Vestursvæðinu og Grænlandssundi og nú er bara beðið skýrslu frá hafrannsóknarstofnun um útgefninn kvóta fyrir yfirstandandi loðnuvertið sem að ætti að verða fljótlega frettin verður uppfærð uppfært kl 1800 „Árni Friðriksson og Bjarni Sæm eru ennþá úti að mæla, svo að mælingin er ekki búin. Heilt yfir hefur gengið vel, við náðum að dekka svæðið sem við ætluðum okkur. Átta skip hafa verið bæði í mælingu og leit,“ segir Birkir Bárðarson líffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun í samtali við mbl.is í dag. Ásgrímur Halldórsson SU, Bjarni Ólafsson AK, Árni Friðriksson HF, Hákon EA, Bjarni Sæmundsson HF, Aðalsteinn Jónsson SU, Jóna Eðvalds SF og Börkur NK hafa öll tekið þátt í loðnuleit og loðnurannsókn undanfarið. „Hákon notuðum við sem leitarskip á landgrunninu fyrir Norðvesturlandi og á því svæði var lítið að sjá eins og er.“ Birkir segir nokkuð af ungloðnu hafa fundist á vesturhluta leitarsvæðisins, við Grænlandssund, sem þá verður uppistaðan í næstu vertíð. „Það má segja að vestan við Kolbeinseyjarhrygginn hafi verið svolítið af ungloðnunni, meira eftir því sem vestan dregur. Heilt á litið vorum við að klára núna þessa yfirferð frá Litla dýpi fyrir Austurlandi og fyrir öllu Norðurlandi og allt vestur að Víkurál úti fyrir Vestfjörðum. Þessa mælingu skoðum við síðan í samhengi við okkar fyrri mælingar og fáum þannig heildarstofn sem við gefum svo ráðgjöf út frá.“
Skrifað af Þorgeir 30.01.2021 11:36Jóna Eðvalds SF 200 leitar loðnu
Skrifað af Þorgeir 29.01.2021 21:58Bergur Ve 44 landar á Akureyri
Skrifað af Þorgeir 28.01.2021 21:26Dalvikurhöfn i vetrarskrúða i dag
Skrifað af Þorgeir 27.01.2021 18:15Snjómokstur á Akureyri
Skrifað af Þorgeir 27.01.2021 17:39Grænlenskur Tasiilaq á Akureyri
og i áhöfn eru 25 menn skipstjóri er Jónfridur Poulsen Master: Jónfridur Poulsen Skrifað af Þorgeir 26.01.2021 18:23160 metra skip með nýjan pramma
Þjónustuskipið Skandi Acercy lagðist að bryggju á Eskifirði í fyrrinótt. Frá borði var hífður tæplega 20 metra prammi, sem Laxar ehf. hafa leigt frá Noregi til að sinna fóðrun í eldiskvíum við Gripalda í sunnanverðum Reyðarfirði. Flutningaskipið er 160 metra langt, 27 metrar á breidd og það er búið öflugum krana og þyrlupalli. Það var upphaflega væntanlegt til Eskifjarðar á laugardag, en seinkaði aðeins vegna veðurs á leiðinni. Nýi pramminn tekur um 320 tonn af fóðri og kemur í stað aðeins stærri pramma, Munins, sem sökk við kvíarnar í illviðri aðfaranótt 10. janúar. Undanfarið hafa fjórir þjónustubátar með fóðurbyssur sinnt fóðrun fisksins í 16 kvíum við Gripalda. Þar eru nú um 3.900 tonn af fiski sem verður kominn í sláturstærð í haust. Jens Garðar Heglason, framkvæmdastjóri Laxa, segir að unnið sé að undirbúningi þess að dæla um tíu þúsund lítrum af hráolíu úr prammanum. Ekki sé endanlega ljóst hvenær og hvernig staðið verði að málum, en aðstæður þurfi að vera góðar. Málið er unnið í samvinnu fyrirtækisins, Fjarðabyggðarhafna, Umhverfisstofnunar og tryggingafélags Laxa. Ekki hefur orðið vart við olíuleka frá prammanum. Heimild 200milur /mbl.is Skrifað af Þorgeir 25.01.2021 21:52Companyskipin mætast við Nýpuna
Skrifað af Þorgeir 24.01.2021 22:45GETUR UNNIÐ ÚR 500 TONNUM Á SÓLARHRINGRússneski togarinn Vladimir Limanov er einn af stærri gerðinni. Hann er 108 metrar að lengd og 22 metra breiður. Hann var smíðaður í Tersan skipasmíðastöðinni í Tyrklandi og afhentur á seinnihluta síðasta árs. Skipið er hannað af norsku skipaverkfræðistöðinni Skibsteknisk og er útbúið til veiða á alaskaufsa og síld í í flottroll í Beringshafi og Okhotskhafi. Aflinn verður unninn um borð og verða helstu afurðir hausaður og slægður fiskur, flök, ufsahrogn, surimi, fiskimjöl og lýsi. Lestin er 4.800 rúmmetrar að stærð. Aðbúnaður um borð er afar góður og gott pláss fyrir 139 manna áshöfn. Skipið er í eigu Russian Fisheries, sem er einn stærsti framleiðandi afurða úr alaskaufsa í heiminum. Allur tækjabúnaður er af hæstu gæðum og hægt er að veiða og vinna úr 500 tonnum á sólarhring. Á eftirfarandi slóð er hægt að skoða skipið frá ýmsum hliðum: https://my.matterport.com/show/?m=1Y1HYHAVRLk Audlindin.is Skrifað af Þorgeir 24.01.2021 21:44Hundrað tonn i fyrstu slátrun
Guðmundur Gíslason, stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Fiskeldis Austfjarða, segir eldið í Fáskrúðsfirði hafa borið góðan ávöxt.Fyrstu löxunum úr eldiskvíum Fiskeldis Austfjarða í Fáskrúðsfirði var slátrað í síðustu viku hjá Búlandstindi á Djúpavogi . Fyrstu kvíarnar og seyðin voru sett út fyrir hálfu öðru ári. „Það hefur verið fínn gangur á þessu,“ segir Guðmundur Gíslason, stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Fiskeldis Austfjarða. „Eldið hefur verið farsælt og góður vöxtur.“ Guðmundur segir að þjálfaður hafi verið upp nýr hópur starfsfólks sem sér um eldið á Fagureyri við Fáskrúðsfjörð. Alls starfa nú um hundrað manns hjá Fiskeldi Austfjarða, þar af um tuttugu manns í Fáskrúðsfirði. „Við erum með þrautþjálfað fólk, stór tæki og öflug. Það tókst að fóðra 98 prósent af dögunum, sem er ansi góður árangur.“ Mest fer á Ameríku Guðmundur segir að það sem slátrað sé hjá fyrirtækinu fari mestmegnis á Ameríkumarkað. Sú sala hafi gengið nokkuð vel þrátt fyrir covid-faraldurinn. „Þetta voru um hundrað tonn í fyrstu slátrun og svo verður slátrað vikulega. Þetta verða svona 100 til 200 tonn á viku.“ Fjórtán kvíar eru í Fáskrúðsfirði og ríflega hálft annað ár er frá því seiðin voru sett út. „Við settum út kvíar og fisk vor 2019 og erum farin að slátra þeim fiski,“ segir Guðmundur. „Það mun taka næstu mánuði að slátra.“ Í nóvember var greint frá áformum um sameiningu Fiskeldis Austfjarða og Laxa, tveggja stóru fiskeldisfyrirtækjanna á Austfjörðum, en bæði fyrirtækin eru að meirihluta í eigu Norðmanna. Guðmundur sagðist ekkert geta sagt um þau áform að svo stöddu.
Norðmenn eiga meirihluta Það er norska fyrirtækið Måsøval sem nú á meirihluta í báðum fyrirtækjunum, eftir að fyrirtækið keypti meirihluta í Fiskeldi Austfjarða seint á nýliðnu ári. Fyrir átti fyrirtækið meirihluta í Löxum. Samstarf fyrirtækjanna hefur verið nokkuð.
Þau eiga í sameiningu, ásamt fleirum, sláturhúsið Búlandstind á Djúpavogi þar sem slátrun er stunduð á eldislaxi fyrirtækjanna. Fiskeldi Austfjarða hf. hóf starfsemi árið 2012 og hefur verið með starfsemi í Berufirði og nú einnig í Fáskrúðsfirði. Starfsleyfi kveða á um 9.800 tonna laxeldi í Berufirði og 11.000 tonn í Fáskrúðsfirði. Að auki er fyrirtækið að bíða eftir leyfi til þess að ala allt að 10.000 tonn af laxi í Seyðisfirði. Laxar fiskeldi er síðan með sjókvíaeldi í Reyðarfirði þar sem framleiðsla er leyfð á allt að 16.000 tonnum af eldislaxi.
Mikill vöxtur hefur verið í laxeldi á Austfjörðum undanfarið, rétt eins og á Vestfjörðum. Útflutningverðmæti afurða úr laxeldi hér á landi nam hátt í 30 milljörðum króna á nýliðnu ári. Fiskifrettir.is myndir Þorgeir Baldursson Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 807 Gestir í dag: 32 Flettingar í gær: 400 Gestir í gær: 25 Samtals flettingar: 1078941 Samtals gestir: 51438 Tölur uppfærðar: 30.12.2024 13:04:07 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is