Færslur: 2020 Ágúst31.08.2020 22:13Löndun fyrir kvótaáramót á KróknumÞað var mikið lif og fjör á Sauðarkróki i dag þegar þrir togarar Fisk Seefood komu til löndunnar en núna 1 september birjar nýtt kvótaár hjá skipunum og tók þiðrik Unason meðfylgjandi myndir og sendi siðunni og kann ég honum bestu þakkir fyrir
Skrifað af Þorgeir 31.08.2020 07:53Tundurdufl við ós Skjálfandafljóts
Gekk i gærdag fram á þetta tundurdufl úr siðari Heimstyrjöldinni við ósa Skjálfandafljóts að vestanverðu sem er að sögn kunnugra búið að vera þarna i Áratugi ég hafði samband við starfmann hjá landhelgisgæslunni sem að tjáði mér að duflið væri talið hættulaust að mati Sprengjusérfræðinga þeirra og sem betur fer er er ekki mikil umferð um þetta svæði en alltaf gott að fara að öllu með Gát Skrifað af Þorgeir 31.08.2020 00:20Náttfari ÞH i hvalaskoðun á Skjálfanda i dag
Skrifað af Þorgeir 30.08.2020 12:22Olíulykt í stafalogni
Stafalogn á Siglufirði kemur í veg fyrir að bæjarbúar losni við megna olíulykt sem liggur yfir bænum. Ástæðan fyrir lyktinni er sú að olía lak í sjóinn í gær. þegar verið var að dæla oliu á togbátinn Pálinu Þórunni Gk 49 sem að er i eigu Nesfisk i Garði Ámundi Gunnarsson, slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar, segir að fyrir mannleg mistök hafi olía lekið í sjóinn þegar olía var afgreidd í skip í gær. Slökkviliðið hreinsaði upp olíuna í tvígang í gær og er engin olía sjáanleg í sjónum lengur. Eins virðast fuglar hafa sloppið við olíumengunina. „Þetta er bara lognið sem fer svona með okkur núna,“ segir Ámundi. ??????? Skrifað af Þorgeir 30.08.2020 08:47Þetta er bara draumur i dós
Mjög góð makrílveiði var í Smugunni í gær og eru þrjú skipanna sem tengjast Síldarvinnslunni á landleið en Bjarni Ólafsson AK lýkur við að landa rúmlega 1000 tonnum í Neskaupstað í dag. Beitir NK er á leið til Neskaupstaðar með 1700 tonn og er væntanlegur síðdegis. Margrét EA er á leið til Færeyja með 1260 tonn og Börkur NK er á leið til Florö í Noregi með 930 tonn. Ástæðan fyrir löndunum erlendis er sú að veiðin er umfram afkastagetu fiskiðjuversins í Neskaupstað.
Eins og fyrr greinir er Börkur á leiðinni til Noregs þar sem hann mun landa afla sínum. Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri segir að aflinn hafi fengist á skömmum tíma. „Aflinn fékkst í tveimur holum, annað tókum við og hitt tók Margrét. Við toguðum í 55 mínútur og þegar við vorum búnir að dæla aflanum um borð beið Margrétin eftir að við dældum úr trollinu hjá þeim. Við munum koma til Florö klukkan níu í kvöld og þar vinna þeir 50 til 70 tonn á tímann þannig að við verðum búnir þar á morgun. Þegar svona gengur á miðunum er þetta bara draumur í dós,“ segir Hjörvar.Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Tómas Kárason skipstjóra á Beiti og spurði frétta. „Þessi 1700 tonn sem við erum með er gæðahráefni. Þetta er átulaus fiskur og meðalþyngdin er yfir 500 grömm. Þetta gerist vart betra. Það var mjög góð veiði í gær og þá tókum við síðasta holið. Þetta var 400 tonna hol. Við höfðum dregið í töluverðan tíma þegar fiskurinn birtist allt í einu og þessi 400 tonn komu í trollið á einum og hálfum tíma. Aflinn sem við erum með fékkst í fimm holum; við tókum þrjú hol og Börkur tvö. Samvinna skipanna sem veiða á vegum Síldarvinnslunnar hefur gengið afar vel alla vertíðina og þetta er mjög skynsamlegt fyrirkomulag ekki síst þegar langt er að sækja. Þegar við komum til Neskaupstaðar í dag er verið að klára að vinna úr Bjarna Ólafssyni þannig að þetta smellpassar allt saman,“ segir Tómas. Skrifað af Þorgeir 29.08.2020 11:17Isleifur Ve 63 kemur með makril til EyjaI gærmorgun kom isleifur Ve 63 til eyja með 1500 tonn af makril sem að fékkt i smugunni og var birjað að landa úr isleifi strax og löndun var lokið úr Kap Ve 4
Kap fór út um hálf sex í morgun og byrjað var að landa úr Ísleifi þá þegar.
Skrifað af Þorgeir 29.08.2020 10:53Guðmundur í Nesi slær út Sólbergið
Útgerðirnar með mesta aflamarkið1. Brim hf. 9,55% 2. Samherji Ísland ehf. 6,91% 3. FISK Seafood ehf. 6,32% 4. Þorbjörn hf. 5,57% 5. Vísir hf. 4,20% 6. Rammi hf. 4,19% 7. Vinnslustöðin hf. 4,18% 8. Skinney-Þinganes hf. 4,14% 9. Útgerðarfélag Rvk. hf. 3,88% 10. Síldarvinnslan hf. 3,42% Úthlutað aflamark í upphafi fiskveiðiársins 2020/2021 Bráðabirgðatölur þar sem úthlutun til nokkurra skipa var ófrágengin. Heimild: Fiskistofa. Skip Útgerð Heimahöfn Útgerðarflokkur Samtals þorskígildi kg. 1 Guðmundur í Nesi Útgerðarfélag Reykjavíkur Reykjavík Skuttogari 13.713.785 2 Sólberg Rammi Ólafsfjörður Skuttogari 10.670.410 3 Björgúlfur Samherji Dalvík Skuttogari 8.794.127 4 Björg Samherji Akureyri Skuttogari 8.218.005 5 Málmey FISK Seafood Sauðárkrókur Skuttogari 7.380.935 6 Akurey Brim Akranes Skuttogari 7.269.841 7 Drangey FISK Seafood Sauðárkrókur Skuttogari 7.214.941 8 Björgvin Samherji Dalvík Skuttogari 6.803.931 9 Kaldbakur Útgerðarfélag Akureyringa Akureyri Skuttogari 6.746.732 10 Breki Vinnslustöðin Vestmannaeyjar Skuttogari 6.689.828 11 Helga María Brim Reykjavík Skuttogari 6.599.017 12 Arnar FISK Seafood Skagaströnd Skuttogari 6.286.777 13 Höfrungur III Brim Akranes Skuttogari 6.123.086 14 Vigri Ögurvík Reykjavík Skuttogari 5.828.364 15 Júlíus Geirmundsson Hraðfrystihúsið Gunnvör Ísafjörður Skuttogari 5.711.702 16 Páll Pálsson Hraðfrystihúsið Gunnvör Hnífsdalur Skuttogari 5.334.681 17 Tómas Þorvaldsson Þorbjörn Grindavík Skuttogari 5.288.699 18 Gullver Síldarvinnslan Seyðisfjörður Skuttogari 5.181.527 19 Viðey Brim Reykjavík Skuttogari 5.173.370 20 Hrafn Sveinbjarnarson Þorbjörn Grindavík Skuttogari 4.934.955 21 Örfirisey Brim Reykjavík Skuttogari 4.902.039 22 Ljósafell Loðnuvinnslan Fáskrúðsfjörður Skuttogari 4.839.800 23 Sirrý Jakob Valgeir Bolungarvík Skuttogari 4.579.949 24 Blængur Síldarvinnslan Neskaupstaður Skuttogari 4.456.448 25 Tjaldur KG Fiskverkun Rif Skip með aflamark 4.343.409 26 Þórunn Sveinsdóttir Ós Vestmannaeyjar Skuttogari 4.043.528 27 Jóhanna Gísladóttir Vísir Grindavík Skip með aflamark 3.951.048 28 Steinunn Skinney Þinganes Hornafjörður Skuttogari 3.918.289 29 Þinganes Skinney Þinganes Hornafjörður Skip með aflamark 3.918.289 30 Dala-Rafn Ísfélag Vestmannaeyja Vestmannaeyjar Skip með aflamark 3.870.639 Skrifað af Þorgeir 28.08.2020 22:14KópaskersvitiKópaskersviti
Vitinn var reistur árið 1945 og er hannaður af Axel Sveinssyni og er 14 metra hár. Kópaskersviti var ekki tekinn í notkun fyrr en árið 1951 vegna erfiðleika við öflun ljóstækja. Vitanum svipar til Miðfjarðarskersvita frá árinu 1939 og Kögurvita frá árinu 1945, en Kópaskersviti er þó mun hærri. Vitinn stendur á Grímshafnartanga, norðan Kópaskers og er steinsteyptur, ferstrendur turn á lágum og breiðum stalli. Vitinn er 2,2 metrar á breidd, 3,2 metrar á lengd og 10,6 metra hár, auk 3,4 metra hás ljóshúss. Ljóshúsið sænskt af gerð með veggjum úr járnsteypu og eirþaki, var sett á vitann árið 1951. Vitinn var þá útbúinn með 210° díoptrískri 500 mm linsu og gasljóstækjum. Veggir vitans voru upphaflega húðaðir ljósu kvarsi og lóðréttu böndin með hrafntinnu, en síðar var vitinn málaður hvítur og svartur en ljóshúsið rautt. Skrifað af Þorgeir 27.08.2020 22:35SAR Alfreð Guðnasson SU
Skrifað af Þorgeir 27.08.2020 12:05Frá Öngli til maga frestað vegna covid 19
Vegna covid 19 hafa Hollvinir Húna II og fræðslusvið Akureyrarbæjar komist að samkomulagi um að fresta árlegum veiði og fræðsluferðum með nemendur sjötta bekkjar sem nefnast, Frá öngli í maga. Ferðirnarfrestast og munu verða farnar á vordögum. Ferðirnar hafa verið mjög vinsælar og fræðandi. Sjávarútvegsfræðingur hefur verið með í ferðunum með fræðsluefni, einnig fá nemendur með sér bækling um helstu fisktegundir við landið. Skrifað af Þorgeir 27.08.2020 00:07Makrílveiði smábáta lítil sem engin á vertíðinniHeimild Fiskifrettir Guðsteinn Bjarnason gudsteinn@fiskifrettir.is myndir þorgeir Baldursson
Ekki er makríllinn að tefja okkur,“ sagði Unnsteinn Þráinsson, skipstjóri á Sigga Bessa SF og formaður Félags makrílveiðimanna, þegar Fiskifréttir slógu á þráðinn til hans. Erindið var einmitt að spyrja hvernig hljóðið væri í smábátasjómönnum sem stundað hafa makrílveiðar undanfarin ár. Þetta árið brást makríllinn hér í landhelginni og stórútgerðin hefur þurft að sigla í Smuguna til að ná honum. „Hann fór illa með okkur þetta árið. Einhverjir hafa fiskað smá í Keflavík, en það var ekki neitt neitt. Nú eru menn bara flestir hættir held ég að leita. Margir búnir að taka niður búnaðinn. Hann brást þetta árið, sem er reyndar eitthvað sem við höfum alltaf gert okkur grein fyrir að gæti gerst einhvern tímann, sérstaklega í okkar flota. Svo veit enginn hvað gerist á næsta ári.“ Unnsteinn hafði verið við makrílveiðar á hverju sumri síðustu tíu árin, þar til nú í sumar. Á veturna er hann á línuveiðum frá Hornafirði en makrílveiðarnar hefur hann stundað á nokkrum stöðum við landið. ðMikill tækifærisfiskur „Núna fór ég bara í sumarfrí sem ég hef ekki gert í mörg ár. Fór suður til Grindavíkur fyrir þremur vikum og var að leita þarna á miðunum en fór svo bara með bátinn aftur um síðustu helgi. Maður var alltaf að vona náttúrlega að það kæmi eitthvað. Við leituðum á leiðinni suður og fundum ekki neitt. Sama á leiðinni heim, við sáum andskotann ekkert nema tvær þrjár pínulitlar torfur.“ Hann segir það þó ekki beint koma á óvart þótt makríllinn láti ekki sjá sig þetta sumarið. „Hann er bara það mikill tækifærisfiskur að ég held það sé bara hending hverju sinni hvert hann fer. Hann lenti bara mikið austar núna en hann hefur gert undanfarin ár. Ég held að allflestir, alla vega í mínum hópi, séu meðvitaðir um að svona ár geti komið inn á milli. Svo gæti hann alveg birst hérna á næsta ári. Það er bara ein vertíð í einu.“ Hann segir að undanfarin ár hafi um 35 til 40 bátar verið á makrílveiðum hér við landið af einhverjum krafti. Sjálfur ákvað hann að taka sér frí en misjafnt er hvernig menn hafa brugðist við stöðunni. „Þetta er dálítið langt stopp núna þessa vertíðina og menn hafa bara reynt að bjarga sér einhvern veginn. Einhverjir hafa skipt yfir á handfæri og eru þá á leigukvóta.“ Gætu vel mannað eitt skip Unnsteinn segir ýmsar hugmyndir hafa verið ræddar um það hvað gert verði í framhaldinu. „Ein hugmyndin var hvort við ættum að taka okkur saman og leigja okkur skip hreinlega til þess að sækja þessar heimildir. Núna er hann úti í Smugu, og eins og einhver sagði þá erum við með réttindi og getum auðveldlega mannað eitt skip til að sækja þetta. En þetta er svo sem ekkert komið lengra en bara á hugmyndastig ennþá.“ Hann leggur þó áherslu á að vandinn sé engan veginn eingöngu bundinn við bátana. „Við erum eitt, svo er allt í landi sem er annað eins og meira. Þar er vinnslan og öll umsvifin í kringum þetta, sem maður hefur ekki síður áhyggjur af. Þetta hefur margvísleg áhrif. Þótt þetta hafi ekki verið neitt rosalega mörg tonn sem við vorum að veiða þá var þetta ótrúlega atvinnuskapandi. Nokkrar vinnslur hafa síðustu ár verið að byggja sig upp í þessu, verið með mannskap og lagt í kostnað. Svo ekki sé minnst á Keflavíkurhöfn. Það hafa verið svakaleg umsvif þar síðustu árin í kringum þetta.
Skrifað af Þorgeir 26.08.2020 23:22Þróar efnarafala í skipVélaframleiðandinn Yanmar Holdings og dótturfélag þess, Yanmar Power Technology, hafa hafið þróun á efnarafal (e. fuel cell) til notkunar um borð í skipum. Aflrásin byggir á sömu lögmálum og efnarafalar í bílum. Þróun búnaðarins er liður í þeirri viðleitni að gera aflrásir skipa og báta umhverfismildari.
Alþjóðsiglingamálastofnunin, IMO, hefur kynnt áform um að draga úr gróðurhúsalofttegundum í losun skipa og sjófara. Í ljósi þessa verða alþjóðlegar reglugerðir sem lúta að umhverfismálum á hafsvæðum hertar og nú þegar hefur innleiðing eftirlitssvæða með losun haft áhrif á skipaútgerð. Eldsneytið í framtíðar aflrás Yanmar er vetni. Orkan sem leysist úr læðingi við bruna vetnis er um þrisvar sinnum meiri en orkumyndun við bruna sama massa af jarðolíu og bensíni. Efnaraflar stýra hvarfi vetnis og súrefnis og við hvarfið verður til rafmagn sem knýr aflrásina. Eina aukaafurðin við hvarfið er hreint vatn. Yanmar hefur undirritað viljayfirlýsingu við bílaframleiðandann Toyota sem þróun efnarafala ásamt háþrýstiþolnum vetnisgeymi sem byggir á sömu lögmálum og efnarafalakerfið í MIRAI efnarafalabílnum sem Toyota framleiðir. Yanmar stefnir að því að setja upp slíkt kerfi í eigin sjófari og hefja prófanir þegar á þessu ári. Heimild Fiskifrettir Mynd þorgeir Baldursson Skrifað af Þorgeir 26.08.2020 22:24Draumur i hvalaskoðunn
Skrifað af Þorgeir 26.08.2020 13:19Isleifur ve 63 á útleið eftir löndun
Skrifað af Þorgeir 25.08.2020 22:49Góð Makrilveiði i smugunniMakrílveiðar23.08.2020 Hoffell er á landleið með 1000 tonn af makríl. Vel hefur gengið hjá Hoffellinu undanfarið, og þegar þessi afli verður kominn í land hefur Hoffellið landað tæpum 6000 tonnum af makríl. Sigurður Bjarnason skipstjóri á Hoffelli sagði að það þyrfti að sækja nokkuð langt til að finna makríl en það hefði gengið vel að þessu sinni og þessi 1000 tonn hefðu náðst á aðeins 38 klukkustundum. Á síðasta ári hættu veiðar þann 10.september en árin þar á undan hélt veiðin út september. Sigurður skipstjóri sagði að fiskurinn væri allur austar núna. “Hann kemur úr norsku lögsögunni og við vorum að ná honum alveg við línuna” sagði skipstjórinn. Sigurði líst ágætlega á framhaldið þó að hann geri sér fulla grein fyrir því að það styttist í að fiskurinn fari á hrygningastöðvarnar en það gerir hann þegar líður á haustið og ef eitthvað má byggja á fyrri reynslu virðist það vera gerast fyrr heldur en fyrir nokkrum árum. Veðrið var með ágætum í þessum túr, þó kom kaldaskítur þegar Hoffellsmenn voru að draga inn síðasta holið en það lagaðist í nótt er leið. Hoffell verður í heimahöfn um kl. 19.00 í kvöld, sunnudaginn 23.ágúst. Löndun hefst snemma í fyrramálið og áætlað er að halda aftur til veiða á miðvikudaginn. Heimasiða Lvf.is Bóa
Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 702 Gestir í dag: 16 Flettingar í gær: 1858 Gestir í gær: 51 Samtals flettingar: 1061976 Samtals gestir: 50970 Tölur uppfærðar: 22.12.2024 07:03:21 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is