Færslur: 2013 Nóvember20.11.2013 11:11Kleifarberg með góðan aflaFrystitogarinn Kleifaberg RE hafði þegar landað rúmum tíu þúsund tonnum af afla undir lok október. Ritstjóri aflafretta.is segir að engin fordæmi séu fyrir því að skip hafi farið yfir tíu þúsund tonna markið svo snemma árs og því sé um met að ræða. „Það sem gerir þetta enn merkilegra er að Kleifabergið er tæplega 40 ára gamalt skip,“ segir Gísli Reynisson, ritstjóri aflafrétta.is. Síðustu tvö ár hefur Brimnes RE eitt skipa farið yfir tíu þúsund tonn og samkvæmt upplýsingum frá Gísla var skipið rétt undir tíu þúsund tonna markinu eftir síðustu löndun. Eins er Kleifaberg búið að veiða rúm 500 tonn ofan á þau 10 þúsund tonn sem höfðu komið á land í október og höfðu 10.515 tonn komið á land um miðjan nóvember, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
Skrifað af Þorgeir 11.11.2013 10:50Skip i vari Undir Grænuhlið i morgun
Skrifað af Þorgeir 10.11.2013 11:56Togarar
Skrifað af Þorgeir 09.11.2013 01:33Polar Princess seldur til Rússlands
Skrifað af Þorgeir 09.11.2013 00:28Rifsnes SH selt til CanadaHraðfrystihús Hellisands hefur selt Rifsnesið til Vísis hf í Grindavík og mun dótturfélag þess í Kanada gera skipið út á línuveiðar þar. Á www.skessuhorn má sjá eftirfarandi.
Fyrr í haust keypti Hraðfrystihús Hellissands annað línuskip í stað Rifsness af norskri útgerð. Það heitir Polarbris. Til stendur að afhenda það í Noregi í næstu viku og sigla því í framhaldinu heim til Íslands. Polarbris er 775 brúttótonn; 43 metrar að lengd, 9 metrar að breidd og smíðað 1999. Rifsnes er aftur á móti talsvert minna; 372 brúttótonn, 38 metra langt og 7,8 metrar á breidd. Það var smíðað í Noregi árið 1968 en er mikið breytt og endurnýjað síðan. "Við höfum möguleika á að vera með fleiri rekka og króka og lengra úthald. Það er nóg pláss um borð, þetta er bara spurning um afköst og gæði. Allt er þetta háð því að koma með sem bestan fisk að landi. Það er það sem skiptir máli að fara vel með fiskinn og hámarka áreiðanleikann í gæðum sem og afhendingu," sagði Ólafur Rögnvaldsson framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Hellissands í samtali við Skessuhorn þegar ákvörðun var tekin um að kaupa Polarbris í Noregi fyrr í haust. Auk Rifsness gerir Hraðfrystihúsið út skipið Örvar SH sem er með sambærilegan skipsskrokk og Polarbris. Það var skipamiðlunarfyrirtækið BB skip Ísland sem hafði milligöngu um kaupin á Polarbris og söluna á Rifsnesi.
Skrifað af Þorgeir 01.11.2013 20:072197 Örvar SK 2Fremur dræm rækjuveiði hefur verið undanfarna daga á miðunum fyrir norðan land og ekki hefur veðrið bætt úr skák kominn norðaustan hvellur þannig að flest rækjuskipin leituðu hafnar eða fóru i var Örvar SK 2 var eitt þeirra hann var i vari við Hrisey ásamt Eyborgu
Skrifað af Þorgeir
|
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 702 Gestir í dag: 16 Flettingar í gær: 1858 Gestir í gær: 51 Samtals flettingar: 1061976 Samtals gestir: 50970 Tölur uppfærðar: 22.12.2024 07:03:21 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is