Category: Gráslebbu myndir28.03.2011 20:10Aukning aflaheimilda er hraðvirkasta hagvaxtartækið sem landsmenn hafa í höndunumStefán Guðmundsson © mynd þorgeir Baldursson 2010 Hérna heldur Stefán Guðmundsson skipstjóri á Aron ÞH 105 á vænum þorski Ca 25 kiló Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður Samfylkingarinnar segir að líklega sé meirihluti fyrir því á Alþingi að bæta við aflaheimildum í nokkrum helstu botnfisktegundunum, einkanlega þó þorski. Hann sé enda farinn að vaxa úr sér svo horfir til vandræða í fiskverkun víða um land.
Þetta kemur fram pistli Sigmundar á vefsíðu sinni og þar segir ennfremur: "Ég hef talað fyrir því að auka aflaheimildir við þær aðstæður sem nú ríkja í hafi og efnahag. Sjómenn og fiskverkendur, sem ég er í ágætu samtali við, eru einhuga um að aldrei hafi fiskgengd verið jafn mikil það sem af er þessari öld - og pundið aldrei verið þyngra. Við þessar aðstæður er ekki ónýtt að spyta sosum eins og 20 milljörðum inn í hagkerfið með yfir 20 þúsund tonna aukningu heimilda - og binda þau jafnvel við landvinnslu sem skilaði yfir 1000 störfum á stundinni. Aukning aflaheimilda er hraðvirkasta hagvaxtartækið sem landsmenn hafa í höndunum. Og þörfin er skýr; aukinn hagvöxtur eða aukinn niðurskurður. Við eigum að taka tillit til reynslu og vísinda í auðlindamálum okkar. 25 þúsund tonna aukning aflaheimilda, jafnvel næstu 3 árin, eru innan áhættumarka - og viðheldur vexti stofnsins. Ég hyggst spyrja hæstvirtan sjávarútvegsráðherra á Alþingi í dag hvað tefji för í þessu efni," segir Sigmundur. Written by Þorgeir
|
Archive
Um mig Name: Þorgeir BaldurssonCell phone: 8620479Email: thorgeirbald62@gmail.comAddress: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðLocation: HörgárbyggðAbout: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiLinks
Today's page views: 1122 Today's unique visitors: 18 Yesterday's page views: 1858 Yesterday's unique visitors: 51 Total page views: 1062396 Total unique visitors: 50972 Updated numbers: 22.12.2024 07:24:22 |
© 2024 123.is | Signup for 123.is page | Control panel