Blog records: 2010 N/A Blog|Month_629.06.2010 16:35Sigurbj0rg ÓFSigurbjörg ÓF 1 © Mynd Sigurgeir Sigurðsson 2010 Sigurbjörg ÓF 1 © Mynd þorgeir Baldursson jæja hvor liturinn fer skipinu betur að ykkar dómi Written by Þorgeir 17.06.2010 18:18Bóbi hlýtur FálkaorðunaKristbjörn þór Árnasson skipst © mynd Þorgeir Baldursson 183-Sigurður VE 15 mynd þorgeir Baldursson Hinn mjög svo rómaði skipstjóri Kristbjörn Þór Árnasson eða Bóbi eins og hann er alltaf kallaður var i dag sæmdur hinni islensku fálkaorðu fyrir störf sin að sjávarútvegi Bóbi var lengst skipstjóri á Sigurði ve og er nýlega hættur til sjós þótt að hann eigi litinn bát sem að hann hefur róið á frá sinum heimabæ á húsavik kallinn er vel að þessari viðurkenningu kominn enda farsæll á sinum sjómannsferli og búinn að skila góðum afla i land gaman væri að vita tonnatöluna sem að þetta aldna skip Sigurður ve hefur komið með að landi en skipið er einmitt 50 ára á þessu ári Written by Þorgeir 17.06.2010 13:01Fagraberg FD 1210Fagraberg FD 1210 © Mynd Þorgeir Baldursson Hogni Hansen skipst © Mynd Þorgeir Baldursson Fagraberg FD 1210 er i eigu dótturfélags Samherja i Færeyjum og er burðarmagn skipsins um 3200 tonn hér fyrir ofan má sjá skipið við komuna i Krossanes við Eyjafjörð ásamt mynd af skipstjóranum Written by Þorgeir 16.06.2010 10:01Fiskidagurinn mikli 10 áraJúlius Júliusson © mynd þorgeir Baldursson Júlíus Júlíusson, framkvæmdarstjóri fiskidagsins mikli segir undirbúning vera í fullum gangi enda sé 10. ára afmæli þessa sívinsæla dags framundan. Júlíus segir að mikið sé um nýjungar í ár í tilefni afmælisins, þá sérstaklega í vikunni fyrir fiskidaginn. Klassísk tónlistarhátíð verði haldins sem og fiskidagskappreiðar, fiskidagsmaraþon, fiskidagsfjallganga að ógleymdir fimm fermetra saltfiskpizzu frá Promens. Prómens mun vera með á svæðinu fimmhundruð þúsundasta kerið sem fyrirtækið framleiðir. Þá er Norðurskel, sem selur Bláskel einnig 10.ára líkt og Fiskidagurinn og verður því bláskel í boði í ár. Þá verður afmælisdagskrá á öðru sviði við höfnina á nýjum stað og til þess að setja punktinn yfir i-ið verður flugeldasýningin í ár sú stærsta hingað til, en tveir brottfluttir Dalvíkingar splæsa í sýninguna. Sá orðrómur hefur gengið að hugsanlega sé þetta síðasta fiskidagshátíðin en Júlíus, segir ekkert slíkt hafa verið rætt og ekki hafi verið um annað rætt en að halda hátíðinni áfram, enda verði hún sífellt betri, hvað varðar allt skipulag, umgjörð, dagskrá og aðsókn. Written by Þorgeir 16.06.2010 05:38Gosta Magicacosta marcka ©mynd þorgeir Baldursson Þarna er Gosta Macika á fljótagrunni um kl 05 á um 14 milna ferð á leið til Akureyrar og er væntanlegt þangað um 9 leitið i morgun og mun stoppa yfir daginn þessar upplýsingar um skipið eru á netinu
Written by Þorgeir 15.06.2010 18:37Hvaða togarar eru þettaHvarða togarar eru þetta og i hvaða höfn © Mynd úr safni Hjartar Gislassonar Written by Þorgeir 14.06.2010 10:33AIDA LUNAAida Luna IMO 9334868 © mynd þorgeir Baldursson 2010 Aida Luna leggst að bryggju © mynd Þorgeir Baldursson Mikil kraftur i hafnarstarfmönnum © mynd þorgeir Baldursson skemmtiferðarskipið Aida Luna kom til Akureyrar i morgun en skipið er i sinni fyrstu ferð hingað skipið er 251metri á lengd 36 á breidd og 7500 tonn skipið er smiðað á Italiu 2009 og er hámarksganghraði 19,7knots um borð er 2053 farþegar og i land fara um 1400 i áhöfn er 612 skipið heldur frá Akueyri kl 14 i dag Written by Þorgeir 13.06.2010 13:59Togarajaxlar lokaútkallÞá er komið Lokaútkall fyrir frábæra siðutogarajaxla að koma saman dagurinn er 3 júli 2010 á Akureyri þar sem að vonandi sem flestir af gömlu köllunum sem að voru til sjós á þessum tima geta komið saman og átt notalegan dag ásamt mökum og öllum þeim sem að hafa áhuga á arfleiðinni okkar skráning er hjá Sæmundi Pálssyni i Gsm 8450090 skráning lokar föstudaginn 25 júni góðar stundir Written by Þorgeir 11.06.2010 03:081020-Snæfugl Su 201020-Snæfugl Su 20 © mynd Þorgeir Baldursson Hver er saga þessa báts og veit einhver hvar hann er niðurkominn nú SORDYROY © Mynd Bjarni Ásmundsson Svona er skipið útlits i dag samkvæmt siðustu heimildum Written by Þorgeir 08.06.2010 21:47Pikkfastur i sandrifiFastir á sandrifi © mynd þorgeir Baldursson Greiðlega gekk að losa Sólbak af sandhólnum ©mynd þorgeir Baldursson Það er allveg merkilegt hvað litið er hugsað um að halda nægilega miklu dýpi framan við bryggjuna hjá ÚA það virðist alltaf myndast sandhóll þarna og er mýmörg dæmi um að skip hafi setið föst þarna um lengri eða skemmri tima og virðist ekki vera vanþörf á þvi að dýpka þarna svo að hægt sé að nota bryggjuna að minnsta kost á háannatima þegar mörg skip eru i landi á sama tima Written by Þorgeir 07.06.2010 22:33Skipin að tinast út eftir sjómannadagHákon EA 148 © mynd Þorgeir Baldursson 2010 Hákon Ea skip Gjögurs H/F hélt út frá Akureyri um kl 14/30 i dag áleiðis austur fyrir land sennilega i makril eða sild og er þetta fyrsta skipið sem að heldur til veiða héðan frá Akureyri eftir sjómannadag en Sólbakur Ea fór á svipuðum tima um kl 18 i dag fór svo Björgvin Ea skip Samherja til veiða i Barentshafi Written by Þorgeir 07.06.2010 00:30Svipmyndir af sjómannadeginumAldraðrir sjómenn i Grindavik © mynd Kristinn Benidiktsson 2010 Heiðrun aldraðra í Grindavík Á sjómannadaginn í Grindavík voru þeir Halldór Ingólfsson, matsveinn á Verði EA, Ölver Skúlason, fyrrum skipstjóri á Geirfugli GK og Jón Ragnarsson fyrrum skipstjóri á Verði ÞH. Þeir eru hér á myndinni eftir athöfnina ásamt eiginkonum sínum og Ólafi Erni Ólafssyni bæjarstjóra sem heiðraði þá fyrir hönd Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur. Ljósm: Kristinn Benediktsson. Written by Þorgeir 06.06.2010 10:09Sjómannadagurinn 2010
Written by Þorgeir 05.06.2010 17:57Sjómannadagsblað Grindavikur 2010Sjómannadagsblað Grindavikur 2010
Sjómannadagsblað Grindavíkur 2010 er komið út veglegt að vanda fullt af myndum og efni sem tengist sjósókn og mannlífi í Grindavík á ýmsum tímaskeiðum síðast liðin hundrað og fimmtán árin auk þess sem byrjað er að rifja upp skip og báta á Suðurnesjum. Blaðinu verður að þessu sinni dreift í verslanir víða um land þar sem brott fluttir Grindvíkingar og aðrir þeir sem vilja fylgjast með efni sem tengist sjávarútvegi á landsbyggðinni geta nálgast það. Í blaðinu er viðtal við Þórð Pálmason skipstjóra á Jóhönnu Gísladóttur ÍS 7, flaggskipi Vísis hf., sem Kristinn Benediktsson, ritstjóri, tók en hann fór með í sjóferð í vetur. Þórður hefur frá mörgu skemmtilegu að segja en hann hefur verið til sjós í um fimmtíu ár þar af 25 ár á Grindavíkurbátum, Höfrungi II. GK, Hrungni GK og Jóhönnu Gísladóttur ÍS. Á sínum stað í blaðinu eru myndir og frásögn frá síðasta sjómannadegi og heiðrun sjómanna. Þá er myndasýning frá Ólafi Rúnari Þorvaldssyni fyrrum kennara í Grindavík, aldamótaræða Einars G. Einarssyni kaupmanns í Garðhúsum en handritið kom nýlega fram í dagsljósið. Haraldur Hjálmarsson háseti á Oddgeiri sýnir okkur frábærar myndir úr myndasafni sínu í Ljósmyndagalleríi blaðsins. Þá er farið í grásleppuróður með Hafsteini Sæmundssyni, 74 ára trillukarli, og Heimi syni hans. Viðtal við Sigurð Þorláksson, stýrimann frá Vík, grein Sveins Torfa Þórólfssonar frá humarróðri um 1960 með Gvendi Karls, greint frá söltunarmeti á síld sem aldrei verður slegið og skoðað inn á bátasíðu Emils Páls ritstjóra epj.is auk fleira efnis en blaðið er 100 síður smekkfullt af frábæru efni. Á forsíðumyndinni má sjá Val Ólafsson stýrimann á Maron GK takast á við sannkallaðan aulaþorsk á netarúllunni sem dreginn var í Flóanum í apríllok utan við friðunarlínu Hafrannsóknarstofnunar vegna veiðibannsins á hrygningartímanum. Sjómannadagsblað Grindavíkur kom fyrst út 1989 og í vetur voru öll eldri tölublöð gerð aðgengileg á heimasíðu Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur, svg.is sem gefur blöðin út. Ritstjóri blaðsins er Kristinn Benediktsson en hönnun og prentvinnan var í höndum Stapaprents í Reykjanesbæ. Written by Þorgeir 05.06.2010 09:22Beitir Nk 123Beitir NK123 © Mynd þorgeir Baldursson 2010 Beitir NK 123 á heimleið © Mynd þorgeir Baldursson 2010 Hið nýja skip sildarvinnslunnar i Neskaupsstað Beitir NK 123 hélt af stað frá Akureyri um kl 17 i gærdag áleiðis til heimahafnar i Neskaupstað skipið hét áður Margret EA 710 skipið er væntanlegt þangað um hádegisbil og mun verða til sýnis eftir kl 13-15 i dag og i boði verða léttar veitingar skipstjóri er Sturla Þórðarsson sem að var áður með Börk Nk 122 Written by Þorgeir
|
Archive
Um mig Name: Þorgeir BaldurssonCell phone: 8620479Email: thorgeirbald62@gmail.comAddress: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðLocation: HörgárbyggðAbout: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiLinks
Today's page views: 1583 Today's unique visitors: 20 Yesterday's page views: 1858 Yesterday's unique visitors: 51 Total page views: 1062857 Total unique visitors: 50974 Updated numbers: 22.12.2024 08:06:47 |
© 2024 123.is | Signup for 123.is page | Control panel