Blog records: 2010 N/A Blog|Month_228.02.2010 19:40Guðbjörg IS 46Guðbjörg IS 46 © Mynd Úlvar Hauksson Gnúpur GK 11©Mynd þorgeir Baldursson Upphaflega Guðbjörg IS og siðan Gnúpur GK hefur aðeins borið þessi tvö nöfn hvað ætli sé búið að fiska á þetta skip siðan það kom til landsins i tonnum talið Written by Þorgeir 26.02.2010 19:57Plastbátar á Eyjafirði2710 Bliki EA 12 © Mynd Þorgeir Baldursson 2009 2612 Friða EA 124 © Mynd Þorgeir Baldursson 2009 2577- Bjarmi EA 112 © Mynd þorgeir Baldursson 2009 2781- Ólafur HF 51 © Mynd þorgeir Baldursson 2009 Þessir plastbátar voru á siglingu fyrir utan höfnina á Dalvik i júni 2009 þegar ljósmyndari á leið hjá og voru þeir ekki seinir að taka smá hring og hérna má sjá afraksturinn af þvi enda var veðrið einstaklega gott til myndatöku eins og sjá má Written by Þorgeir 24.02.2010 22:07Loðnufréttir úr Faxaflóa Dælt úr Nótinni ©Mynd Óskar P Friðriksson Álsey VE 2 ©Mynd Óskar P Friðriksson Bjarni Ólafsson AK 70 dregur Nótina ©Mynd Óskar P Friðriksson Finnur Friði verið að snurpa ©Mynd Óskar P Friðriksson Allt að gerast i Faxaflóa© Mynd Óskar P Friðriksson Guðmundur VE 29 kastaði við Eiðið ©Mynd Óskar P Friðriksson 2010 Nokkrar myndir sem að Óskar Pétur Friðriksson sendi siðunni til birtingar úr túrnum með Sighvati Bjarnasyni VE og kann ég honum bestu þakkir fyrir afnotin © Munið Höfundarrétt Ljósmyndarans Sighvatur Bjarnason VE kom inn með 1000 tonn af loðnu um miðnætti á mánudag. Jón Eyfjörð, skipstjóri sagði alfann hafa fengist eftir rúman dag á miðunum á Faxaflóa. Nú er veitt úr fremsta hluta göngunnar og loðna eftir allri Suðurströndinni. "Þetta er fremsti hlutinn og von á miklu meira magni. Það mætti segja mér að þetta verði hefðbundið og mér sýnist þetta geta verið mikið magn," sagði Jón og var spurður hvort menn vonuðust ekki eftir frekari úthlutun. "Ég er alltaf hissa hvað það er litlu úthlutað. Ég held að það geti ekki skaðað að taka 250 til 300 þúsund tonn og bæta bara við ef þannig stendur á, " sagði Jón sem hefur mikla reynslu af loðnuveiðum, fór fyrst á loðnuvertíð 1976 og hefur lengst af verið skipstjóri."
Er ekki verið að bíða eftir að hrognin nái ákveðnu þroskastigi, sér í lagi núna þegar kvótinn er svona lítill?
"Þetta gengur allt út á að ná sem mestum verðmætum og þá skiptir miklu að ná hrognunum. Í þessum túr var 50% hængur og það er verið að vinna hrogn en mér skilst að þau flokkist ekki undir að vera hágæðahrogn enn sem komið er, " sagði Jón en Helgi Valdimarsson sem er skipstjóri á móti Jóni fór út með Sighvat um leið og búið var að landa. "Kap fór austur fyrir Eyjar og mældi loðnu þar og síðan fór Sighvatur á eftir en þar um borð eru mælitæki sem hægt er að senda beint á Hafró og þeir geta svo unnuð úr mælingunum," sagði Jón.
Í vikublaðinu Fréttum er fjallað um loðnutúr sem Óskar Pétur Friðriksson fór með Sighvati Bjarnasyni í byrjun vikunnar, bæði í máli og myndum. Written by Þorgeir 23.02.2010 23:51Stopp AugnablikSiggi Daviðs og Sólbakur EA1 ©Mynd þorgeir Baldursson 2010 Það var völlur á Sigga Daviðs www.123.is/siggi hann er nú farinn um borð i Björgvin EA 311 og eru á veiðum norður i Barenthafi aflabrögð hafa verið með skásta móti að sögn viðmælenda eru 3-5skip á svæðinu og fiskurinn stór og góður Sólbakur EA og Ostanger EX (Háberg ) létu úr höfn á sama tima annar til veiða en hinn i oliutöku i Krossanes Sólbakur kom inná mánudagsmorgun með þokkalegan afla en Ostanger hélt til Noregs en þangað var skipið selt i siðustu viku Written by Þorgeir 22.02.2010 01:43Góður gangur i loðnuFagraberg FD 1210 © Mynd Sturla Einarsson 2010 Hérna má sjá Fagrabergið á sigligu á faxaflóa i gær á(konudaginn ) en skipið er Griðarlega öflugt og getur borið um 3200 tonn af bræðslufiski Guðmundur VE er á leið til Eyja með fullar frystilestar og um 1000 tonn i hrognatöku verður i fyrramáið Álsey er á leiðinni á miðinn i faxaflóa komin vestur fyrir Reykjanes og Hákon EA 148 og Aðalsteinn Jónsson SU 11 eru við Reykjanes á leiðinni vestur i faxa Written by Þorgeir 21.02.2010 22:10Norðborg KG 689 á veiðumNorðborg KG-689 ©Mynd Sturla Einarsson 2010 Birjað að Draga nótina ©Mynd Sturla Einarsson 2010 Nótin Dregin i Fjallasjó © Mynd Sturla Einarsson 2010 Gert Klárt fyrir Dælingu ©Mynd Sturla Einarsson Allt að gerast ©Mynd Sturla Einasson 2010 Þessar frábæru myndir af Norðborgu KG 689 með nótina á siðunni þegar skipið var á veiðum i Fjallasjó á þriðjudag tók Sturla Einarsson skipstjóri á Guðmundi VE 29 og sendi mér til birtingar hér siðunni og kann ég honum bestu þakkir fyrir afnotin svo og öllum þeim sem að senda myndir til birtingar á heimsiðuna Written by Þorgeir 20.02.2010 23:16LoðnufréttirHákon EA 148 og Vilhelm Þorsteinsson EA 11 ©Mynd þorgeir Baldursson Landað var í gær upp úr Aðalsteini Jónssyni rúmlega 550 tonnum af frosinni loðnu sem fryst var á rússneskan markað. Í dag verður landað ca 750 tonnum úr Hákoni á Norðfirði, hluti aflans var frystur á Japansmarkað og restin á Rússland. Jón Kjartansson hélt áleiðis á loðnumiðin og má búast við að hann verði á Eskifirði á Sunnudaginn með vonandi hrognafulla loðnu sem verður þá kreist og hrognin hreinsuð og síðan flutt til Norðfjarðar til frystingar.Álsey ve er á leiðinni til Eyja með um 900 tonn Written by Þorgeir 20.02.2010 12:51Þýsk FreygátaMeckelnburg-Vorpommern ©Mynd Ragnar Pálsson Þýska freygátan var á siglingu útaf Reykjanesi myndina tóku skipverjar á Verði ÞH og hérna á eftir koma helstu upplýsingar um skipið Freigátan er sérstaklega smíðuð til kafbátahernaðar en einnig til loftvarna. Í áhöfn eru 199 manns en auk þess er 19 manna flugáhöfn. Freigátan var smiðuð í Bremen árið 1996 og er 6.275 tonn að stærð. Lengd skipsins er 140 metrar og breidd 16,7 metrar en það ristir 6,8 metra. Meckelnburg-Vorpommern gengur mest 29 hnúta. Written by Þorgeir 20.02.2010 00:45Östanger H-148-AV Bergen© Östanger H-148-AV Bergen ©Mynd Þorgeir Baldursson 2010 Ivar Taranger skipst Ostenger ©mynd þorgeir Baldursson Anders Taranger skipst © mynd þorgeir Baldursson 2010 Samherji H/F afhenti i gær um kl 16 nýjum kaupendum Háberg EA 299 skipið hefur nú þegar fengið nýtt nafn Ostanger H-148-AV og skráð i Bergen tveir bræður munu skipta með sér skipstjórn þeir Anders og Ivar Taranger og mun skipið fara á loðnuveiðar með flottroll i áhöfn verða 6-8 menn skipið lét úr höfn á Akureyri um kl 18 i gærkveldi og var áætlaður komutimi til Bergen á mánudag Written by Þorgeir 19.02.2010 14:27Isfélag Vestmanneyja LoðnufréttirJúpiter ÞH 363 kemur fyrir klettsnefið ©Mynd Óskar P Friðriksson Júpiter á Klettsvikinni ©Mynd Óskar P Friðriksson I innsiglingunni ©Mynd Óskar P Friðriksson Kominn til Eyja © Mynd Óskar P Friðriksson Klárir i löndun © Mynd Óskar P Friðriksson Löndun að hefjast i morgun © Myndir Óskar P Friðriksson Elvar Sturlusson kampakátur i hrognafrystingu ©mynd þorgeir Baldursson 2005 Þessa stundina er rifandi gangur i loðnuveiðum Álsey ve landaði i gær 870 tonnum af loðnu og 90 tonnum i hrognavinnslu Júpiter ÞH 363 kom inn til Eyja i morgun með milli 800- 900 tonn af kældri loðnu Góður gangur er hjá fyrstiskipinu Guðmundi VE 29 við erum enn á fullu að frysta fyrir Rússlandsmarkað, og gengur það mjög vel 145-150 tonn á sólarhring. Fyrsti loðnufarmurinn til hrognakreistingar kom til Eyja með Álsey í gær (fyrsta ferska loðnan til Eyja þessa vertíðina) hrognanýting var allt í lagi eða um 10%, ca 90tn af hrognum fengust úr ca 1000tn, en hrognin eru ekki orðin nógu þroskuð fyrir Japansmarkað ennþá og eru fryst sem svo kölluð iðnaðarhrogn fyrir A-Evrópu, en hrognin þroskast fljótt og verða fljótlega komin í nægjanlegan þroska fyrir Japanann. Við köstuðum í gærkvöldi (fimmtudagskvöld) hér á Faxaflóa, var það skínandi síli, en þó svolítið blönduð í þroska, en við mældum þó hrognaprósentuna u.þ.b. 24%. Við komum út í þennan túr á þriðjudag og fengum þá gott kast í Fjallasjónum, og reiknum með að ljúka frystingu á sunnudagskvöld, þ.e. um 43.000ks eða um 820tn Á morgun laugardag reikna ég með að við förum að flokka hrygnuna frá til kreistingar og komum til með að vera með góðan skammt til hrognatöku (ásamt frystum afurðum). .
Written by Þorgeir 17.02.2010 18:43Aflaskipið Björgvin EA 311Björgvin EA 311 ©Mynd þorgeir Baldursson 2010 Kampakátir eftir Góða törn ©Mynd þorgeir Baldursson 2010 Sameinuð ©Mynd Þorgeir Baldursson 2010 Siggi Daviðs tekur afturbandið ©mynd þorgeir Baldursson 2010 Björgvin EA 311 togari samherja kom til hafnar á Akureyri um kl 18 i dag úr norsku lögsögunni afli skipsins var að mestu leiti þorskur aflaverðmæti um 180 milljónir og afli uppúr sjó 590 tonn alls tók túrinn 22 daga höfn i höfn og mun skipið halda aftur norður i höf i næstu viku Written by Þorgeir 17.02.2010 15:06Dótturfélög Samherja kaupa og seljaFridborg FD 242 © Mynd www.sjoborg.fo Onward Fishing Company, dótturfélag Samherja í Bretlandi, hefur fest kaup á rækjutogaranum Fríðborg frá Færeyjum. Skipið er systurskip Polonus, sem er í eigu dótturfélags Samherja í Póllandi. Skipið er ísstyrkt og sérútbúið til rækjuveiða. Haraldur Grétarsson framkvæmdastjóri Onward Fishing Company segir það mjög ánægjulegt að taka við nýju skipi nú. Það hafi alltaf legið fyrir að fjárfest yrði í nýju skipi í stað eldra skips Normu Mary, sem var úrelt. Hann segir aðstandendur OFC vera mjög ánægða með að hafa fundið þetta skip, sem passar vel við þær veiðiheimildir og rúmmál sem Onward hefur til ráðstöfunar. Ekki hefur verið valið nýtt nafn á skipið. Written by Þorgeir 17.02.2010 00:14Meiri Kolmunni til EyjaLeinebjörn M-3-HO©Mynd Óskar P Friðriksson 2010 I innsiglingunni ©Mynd Óskar P Friðriksson Búinn að snúa ©Mynd Óskar P Friðriksson Leinebjörn landaði um 1700 tonnum af kolmunna i Eyjum i gærdag og hélt svo á miðin norður af Færeyjum strax eftir löndun en skipin munu vera að fá þokkalegan afla þótt stundum sé lengi dregið Written by Þorgeir 15.02.2010 23:03Antares VE 18
Written by Þorgeir 15.02.2010 08:52Kolmunnalöndun i EyjumSmaragd M-64-Ho ©Mynd Óskar P Friðriksson 2010 Smaragd i Innsiglingunni mynd Óskar P Friðriksson Við Heimaklett ©Mynd Óskar P Friðriksson Við Bryggju i Eyjum ©Mynd Óskar P Friðriksson 2010 Tvö kolmunnaskip hafa landað hjá bræðlu Isfélags Vestmanneyja siðastliðin sólahring Kings Cross landaði 1747 tonnum og Smargad 1581 tonni og mun vera von á einu skipi til viðbótar i nótt þetta er mikil búbót fyrir vinnsluna Written by Þorgeir
|
Archive
Um mig Name: Þorgeir BaldurssonCell phone: 8620479Email: thorgeirbald62@gmail.comAddress: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðLocation: HörgárbyggðAbout: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiLinks
Today's page views: 1369 Today's unique visitors: 19 Yesterday's page views: 1858 Yesterday's unique visitors: 51 Total page views: 1062643 Total unique visitors: 50973 Updated numbers: 22.12.2024 07:45:45 |
© 2024 123.is | Signup for 123.is page | Control panel