Kategori: Ljósmyndasýningar 201102.06.2011 18:10Frá Miðum til MarkaðaVörður ÞH © mynd Kristin Benidiktsson 2011 úr Vinnslunni © mynd Kristinn Benidiktsson 2011 Á Spönskum markaði © mynd Kristinn Benidiktsson 2011 Saltfisk pökkun © Mynd Kristnn Benidiktsson 2011 Stál og Hnifur © mynd Kristinn Benidiktsson 2011 Snurvoðarpoki © mynd kristinn Ben Flugfisk Pakkað © mynd Kristinn Ben Frá miðum til markaða, ljósmyndasýning Kristins Benediktssonar á Bryggjunni í Grindavík Kristinn Benediktsson, ljósmyndari, hefur opnað ljósmyndasýningu sem hann nefnir Frá miðum til markaða á veitingastaðnum, Bryggjan í Grindavík. Sýning er liður í hátíðahöldum sjómanna í Grindavík en mun síðan standa uppi á Bryggjunni í sumar eins og þurfa þykir. Myndirnar hefur Kristinn tekið undanfarin ár úti á sjó, um borð í skipum og bátum frá Grindavík auk þess að hafa myndað fiskvinnslufólk í Grindavík og á fiskmarkaðnum í Barcelónaborg þar sem verið er að selja saltfisk frá Grindavík. Myndir eiga að sýna þverskurð af sjómennsku, vinnslu á saltfiski og öðrum gæðaafurðum sem Grindvíkingar framleiða á sjó og landi auk þess að gefa innsýn í hvert afurðirnar fara á erlenda markaði og er þar fyrst kynntur fiskmarkaðurinn við Römbluna í Barcelóna. Sýningin verður farandsýning út á land auk þess sem hún verður sett upp erlendis og þá einkum á Spáni, Portúgal, Grikklandi og Ítalíu sem eru okkar helstu markaðslönd fyrir saltfiskafurðir auk fleiri landa. Kristinn Benediktsson nam ljósmyndun í lok sjöunda áratugar síðustu aldar hjá Ljósmyndastofu Þóris og vann hjá Morgunblaðinu með náminu auk nokkurra ára á eftir eða samtals 10 ár. Árið 1976 fór Kristinn að taka myndir markvisst úti á sjó fyrir tímaritið Sjávarfréttir sem þá var gefið út og var forveri Fiskifrétta. Um árabil bjó Kristinn í Grindavík þar sem hann starfaði við verkstjórn í saltfiskverkun auk þess sem hann stundaði sjómennsku í nokkur ár. Hann nýtur góðs af þeirri reynslu í dag þegar hann vinnur í blaðamennsku og ljósmyndun í sjávarútveginum, undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar. Sýningin er styrkt af Menningarráði Suðurnesja auk fjölda annarra aðila. N/A Blog|WrittenBy Þorgeir
|
Arkiv
Um mig Namn: Þorgeir BaldurssonMobilnummer: 8620479Mejladress: thorgeirbald62@gmail.comPostadress: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðPlats: HörgárbyggðOm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiLänkar
Antal sidvisningar idag: 1583 Antal unika besökare idag: 20 Antal sidvisningar igår: 1858 Antal unika besökare igår: 51 Totalt antal sidvisningar: 1062857 Antal unika besökare totalt: 50974 Uppdaterat antal: 22.12.2024 08:06:47 |
© 2024 123.is | Registrera dig för 123.is | Kontrollpanel