Blogghistorik: 2007 Länk26.05.2007 00:4950 Ára SöngafmæliOkkar ástsæla Helena Eyjólfsdóttir sóngkona hélt uppá 50 ára söngafmæli sitt i Sjallanum i gærkveldi að viðstöddu fjölmenni en um það bil 200 manns sóttu tónleikana og hafði hún með sér einvalalið söngvara og hljóðfæraleikara og á meðal þeirra voru Ragnar Bjarnasson og Þorvaldur Halldórsson , sem að sjást hérna á mynd með söngkonunni N/A Blog|WrittenBy Þorgeir 25.05.2007 12:59Noregsmet i SandsilaveiðiNorski togarinn Torbas fékk 500 tonn af sandsíli í einu holi nú í vikunni sem er norskt met, en mest hafði norskt skip áður fengið 380 tonn í holi. Aflinn fékkst á Vestbanken sem er í átta tíma siglingu frá Egersund.
Torbas var áður kominn með 580 tonn í lestarnar þannig að aflinn í túrnum var næstum 1.100 tonn af 1.760 tonna árskvóta skipsins. Sandsílaveiðar Norðmanna eru nýlega hafnar en þeir mega veiða um rúmlega 50.000 tonn. Skipstjórinn á Torbas fullyrðir í samtali við norska sjávarútvegsblaðið Fiskaren að miklu meira sé af sandsíli í sjónum en fiskifræðingar vilji vera láta. Heildarkvótinn á sandsíli í Norðursjó var nýlega ákveðinn 170.000 tonn eftir að tilraunaveiðar höfðu farið fram sem gáfu tóninn um heildarkvóta ársins, samkvæmt ráðleggingum fiskifræðinga. Veiðar ESB-þjóðanna hafa verið stöðvaðar þar sem hlutdeild þeirra í kvótanum er þegar veidd. Danir eru stærsta þjóðin í sandsílaveiðunum og eru þeir ósáttir við stöðvun veiðanna Heimild Skip.is Mynd þorgeir Baldursson 2005 N/A Blog|WrittenBy Þorgeir 24.05.2007 23:57SildveiðarNokkur skip hafa haldið til sildveiða eftir að fréttist að Árni Friðriksson RE 200 hefði fundið hana fyrir austan land uþb 65 milur frá landi frést hefur af 5 skipum á slóðinni Hákon EA 148 ,Aðalsteinn Jónsson SU 11 ,Krossey SF 20 OG Jóna Eðvalds SF 200 .En ekkert er vitað hversu mikið magn er þar á ferð N/A Blog|WrittenBy Þorgeir 24.05.2007 17:48Nýtt StarfAðalsteinn hættir hjá SíldarvinnslunniAðalsteinn Helgason forstjóri Síldarvinnslunnar hf. mun láta af störfum hjá fyrirtækinu á næstu dögum. Hann mun taka við rekstri verksmiðjuskipaflotans sem Samherji keypti af Sjólaskipum í síðustu viku og gerður er út við Afríkustrendur.
Þetta kemur fram í blaðinu Austurglugginn í dag. Aðalsteinn tók við forstjórastarfi Síldarvinnslunnar í janúar 2006 af Björgólfi Jóhannssyni. Ekki er enn ljóst hver ráðinn verður sem forstjóri Síldarvinnslunnar í stað Aðalsteins en það verður ákveðið á næstu dögum, segir í Austurglugganum. Skipaflotinn sem Samherji keypti af Sjólaskipum samanstendur af sex verksmiðjutogurum og tveimur þjónustuskipum. Skipin veiða makríl, hestamakríl, sardínu og sardínellu við strendur Marokkó og Máritaníu. Aflinn er losaður í flutningaskip á miðunum.Heimild skip.is mynd Þorgeir Baldursson N/A Blog|WrittenBy Þorgeir 24.05.2007 09:14Mikil vinna i slippnumHún er engin smásmiði skrúfan sem að var sett á HÁKON EA 148 nú nýverið hjá slippnum á Akureyri 4M I Þvermál N/A Blog|WrittenBy Þorgeir 23.05.2007 22:01NÝR BÁTUR TIL FLATEYRARNýr bátur hefur verið keyptur til Flateyrar .Garðar IS 22 sem að er Vikingur 800 og hét áður, Kristbjörg EA 225 útgerðarmaður er Sigurður Garðarsson ,og verður báturinn gerður út á linu .Hann er væntanlegur til heimahafnar á Flateyri i kvöld eða i fyrramálið N/A Blog|WrittenBy Þorgeir 23.05.2007 21:27Rækjuveiðar v/island Birtir til í rækjuiðnaði á Ísafirði Gunnbjörn ÍS, áður Framnes, landaði í dag rúmum 30 tonnum af úthafsrækju, eftir 6 sólahringa á veiðum. Aflinn fer í vinnslu hjá Miðfelli á Ísafirði. Þetta er þriðja rækjulöndun Gunnbjarnar eftir að skipið hóf rækjuveiðar á ný í byrjun mánaðarins. Ferskri rækju hafði þá ekki verið landað á Ísafirði frá því Framnesinu lagt fyrir einu og hálfu ári. Jón Guðbjartsson, útgerðarmaður hjá Birni ehf. segir að um tilraun sé að ræða, það muni koma í ljós hvort áframhald verði á veiðunum, aflabrögð og afurðaverð ráði því. Ekki hefur verið bjart yfir rækjuútgerð og -iðnaði í mörg ár. Verð lág og aflabrögð léleg. Var það ástæðan fyrir því að Hraðfrystihúsið - Gunnvör sá sig knúið til að hættu veiðum og vinnslu á rækju. Skipstjóri í túrnum var Jón Steingrímsson og fékkst rækjan norður af Djúpinu og er þetta ágæt rækja. Tvö önnur skip frá Ísafirði eru á rækjuveiðum, Óli Hall HU og Strákur SK. Þau eru á veiðum vestur af landinu og landa á Snæfellsnesi og er aflanum keyrt til Ísafjarðar til vinnslu hjá Miðfelli.HEIMILD BB.IS N/A Blog|WrittenBy Þorgeir 22.05.2007 23:27Birtingur NK 119 ex (guðmundur ólafur óf 91 )
N/A Blog|WrittenBy Þorgeir 22.05.2007 21:26Beitir Nk 123 i pottinn i DanmörkuEitt aflahæðsta skip landsins BEITIR NK 123 hefur verið seldur úr landi til niðurrifs og fór til Danmerkur þann 2 mai og þá eru eftir Sigurður ve 15 Vikingur ak 100 Suðurey ve 12 og Lundey ns 14 er ekki rétt munað að þeir séu allir smiðaðir eftir svipaðri teikningu N/A Blog|WrittenBy Þorgeir 20.05.2007 18:17Samherji hf kaupir útgerð sjólaskipa erlendis
Sjólaskip hf. og Samherji hf. hafa gert samkomulag um að Samherji hf. kaupi erlenda starfsemi Sjólaskipa hf. og tengdra félaga. Þessi félög hafa gert út 6 verksmiðjuskip og tvö þjónustuskip í lögsögu Máritaníu og Marokkó. Sjólaskip hf. eru með höfuðstöðvar á Íslandi, en með bækistöðvar á Kanaríeyjum
Sjólaskip hf. hafa gert út fiskiskip við Máritaníu og Marokkó síðastliðin 10 ár. Starfsemin hefur vaxið stöðugt og reksturinn hefur gengið vel. Við reksturinn starfa ríflega eitt þúsund starfsmenn af ýmsum þjóðernum, þ.á.m. um 80 Íslendingar. Fiskiskipin eru áþekk að stærð og búnaði og Engey RE sem Samherji hf. keypti nýlega. Sjólaskip hf. hófu útgerðarrekstur í landhelgi Marokkó árið 1997. Reksturinn fór rólega af stað en hefur vaxið hratt ár frá ári. "Framsýnir, samheldnir og öflugir starfsmenn bæði á landi og sjó eiga stóran þátt í hversu vel hefur tekist að byggja upp þessa öflugu útgerð. Rekstur okkar hefur verið afar farsæll í þessu framandi og krefjandi rekstrarumhverfi", sagði Haraldur Jónsson framkvæmdastjóri Sjólaskipa hf. Eftir þessi viðskipti eiga Sjólaskip hf. eitt skip, Delta, sem stundar veiðar í landhelgi Marokkó og landar ferskum fiski til vinnslu þar í landi. Á heimasíðu Sjólaskipa hf. www.sjoli.is má finna frekari upplýsingar um starfsemina.Heimild .www.samherji.is N/A Blog|WrittenBy Þorgeir 20.05.2007 13:39Chase 550 prufukeyrsla á pollinumHann var ekkert smá flottur nýi CHAMPION báturinn hans Sævars sem að er CASE 550 þegar að hann tók hringin fyrir ljósmyndarann i bátnum er 320 Hp VOLVO PENTA og dual pro skrúfa ganghraði á svona bát er uþb 70 mph svo að skurðurinn er enginn fyrirstaða og nú er bara að fjölga bátunum N/A Blog|WrittenBy Þorgeir 10.05.2007 19:00Góð veiði við BjarnareyArctic WarriorSigurbjörn Sigurðsson ( Sibbi) skipstjóri á Arctic Warrior hringdi í mig í dag. Þeir eru í Honningvaag að taka olíu á 45 degi veiðiferðarinnar. Tíðarfar er búið að vera í verri kantinum 25m/s voru í gær þegar þeir hífðu síðasta hol fyrir olíutöku. Búið er að loka heilmiklu svæði við Bjarnarey sem gerir þeim erfitt fyrir. Komnir með 150 milljón króna aflaverðmæti og sagðist Sibbi ætla ná 150t af flökum í viðbót áður en hann færi í land. Arctic Worrior er í eigu dótturfélags Samherja og er gert út frá Bretlandeyjum. Willard Helgason er 1. stýrimaður þar um borð. (Mynd: Þorgeir Baldursson fengin á heimasíðu Samherja) fréttin er fengin af www.123.is/arnir og kann ég honum bestu þakkir fyrir afnotin N/A Blog|WrittenBy Þorgeir 10.05.2007 17:25KARFAVEIÐIKarfaveiði i úthafinu hefur farið rólega rólega af stað og eru nokkur islensk skip þegar farin til veiða og talsvert af erlendum skipum eru dansandi á landhelgislinunni og er jafnvel talið að þau séu milli 40 og 50 og hefur veiðin verið i kringum 1 tonn á togtimann þessi karfi sem að guðmundur guðmundsson skipverji á Kaldbak EA heldu á var 8 KG og 77 CM á lengd N/A Blog|WrittenBy Þorgeir 02.05.2007 23:16FRÉTTARITARI MBL Á GÓÐRI STUNDSvona gera bara toppmenn sagði Hafþór þegar myndin var tekin af honum i skemmunni hjá Alla Geira N/A Blog|WrittenBy Þorgeir
|
Arkiv
Um mig Namn: Þorgeir BaldurssonMobilnummer: 8620479Mejladress: thorgeirbald62@gmail.comPostadress: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðPlats: HörgárbyggðOm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiLänkar
Antal sidvisningar idag: 1369 Antal unika besökare idag: 19 Antal sidvisningar igår: 1858 Antal unika besökare igår: 51 Totalt antal sidvisningar: 1062643 Antal unika besökare totalt: 50973 Uppdaterat antal: 22.12.2024 07:45:45 |
© 2024 123.is | Registrera dig för 123.is | Kontrollpanel