Blogghistorik: 2022 N/A Blog|Month_1109.11.2022 17:22VEGAGERÐIN ÓSKAR TILBOÐA Í REKSTUR HRÍSEYJARFERJUNNAR SÆVARS
Af vef vikudags „Almenn sátt ríkir um núverandi áætlun og getur breyting á áætlun eða fækkun ferða haft veruleg áhrif á skilyrði til búsetu í Hrísey og á öryggi íbúanna,“ segir í bókun bæjarráðs Akureyrar. Þar er bæjarráð að taka undir með hverfisráði Hríseyjar varðandi nýtt útboð á rekstri Hríseyjarferjunnar Sævars en í því áskilur Vegagerðin sér rétt til að fjölga/fækka ferðum um plús mínus 20% á samningstímanum sem er til ársins 2025. Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í rekstur Hríseyjarferju fyrir árin 2023 til 2025, sérleyfi fyrir Vegagerðina á ferjuleiðinni Hrísey – Árskógsandur – Hrísey. Innifalið í því er að annast fólks- og vöruflutninga til og frá Hrísey. Ferjan Sævar sem er í eigu Vegagerðarinnar verður notuð í verkefnið. Samningstími er þrjú ár með möguleika á framlengingu allt að 2 sinnum, 1 ár í senn. Skila á inn tilboðum fyrir kl. 14 þriðjudaginn 29. nóvember 2022. Bæjarráð segir Hríseyjarferjuna þjóðveg eyjarskeggja og alla þeirra sem eyjuna heimsækja. Fer ráðið fram á að ferjuáætlun standi óbreytt og með möguleika á upphringiferðum líkt og verið hefur, „og að réttur Vegagerðarinnar til að fækka ferðum um allt að 20% á samningstíma verði tekinn úr útboðinu.“ Á fundi hverfisnefndar Hríseyjar var fjallað um þann rétt sem Vegagerðin áskildi sér í útboðinu um að fjölga/fækka ferðum um plús mínus 20% á samningstímanum. Einnig að stjórnvöldum væri heimilt að fækka eða fjölga ferðum eða segja upp einstaka leið með 6 mánaða fyrirvara. Í núverandi vetraráætlun er gert ráð fyrir 6 til 8 ferðum daglega en 8 til 10 ferðum yfir sumarið, samtal 2.840 ferðir. Almenn sátt um núverandi áætlun Segir hverfisráðið almenna sátt ríkja um núverandi áætlun ferjunnar og breyting á áætlun eða fækkun ferða geti haft verulega áhrif á skilyrði til búsetu í Hrísey. „Niðurfelling á ákveðnum ferðum getur haft þau áhrif að ómögulegt yrði fyrir íbúa að sækja atvinnu í landi ásamt takmörkun á möguleikum íbúa að stunda félagsstarf, íþróttastarf, sækja menningarviðburði,“ segir í bókun hverfisnefndar. „Ferjan er okkar þjóðvegur sem þarf að vera opinn með tíðum og öruggum ferjusiglingum. Við samþykkjum því ekki að í kjölfar þeirrar uppbyggingar sem átt hefur sér stað í Hrísey undanfarin ár verði ferðum ferjunnar fækkað.“ N/A Blog|WrittenBy Þorgeir 09.11.2022 07:19Skúli St 75
N/A Blog|WrittenBy Þorgeir 08.11.2022 23:19Kristján Þórarinsson Fagstjóri fiskimála hjá Brim.HFGengið hefur verið frá ráðningu Kristjáns Þórarinssonar í starf fagstjóra fiskimála hjá Brimi hf. Kristján er stofnvistfræðingur og hefur áratugareynslu á sviði sjávarútvegs og á alþjóðavettvangi fiskimála. Með ráðningu Kristjáns er verið að styrkja þekkingu Brims á þessu sviði. Kristján mun koma að margþættum verkefnum sem félagið vinnur að á hverjum tíma, þar á meðal að meta stöðu hafrannsókna einstakra fiskistofna. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims hf.: "Það er ánægjulegt að fá Kristján í góðan hóp starfsmanna og ég býð hann velkominn til starfa. Kristján hefur starfað í sjávarútvegi síðastliðin þrjátíu ár og hefur mikla reynslu og þekkingu af samstarfi milli ólíkra aðila sem koma að umræðu bæði innanlands og erlendis um sjávarútvegsmál." N/A Blog|WrittenBy Þorgeir 08.11.2022 20:09Páll Pálsson is 102
N/A Blog|WrittenBy Þorgeir 08.11.2022 07:55Þórunn Sveinsdóttir Ve 401
N/A Blog|WrittenBy Þorgeir
|
Arkiv
Um mig Namn: Þorgeir BaldurssonMobilnummer: 8620479Mejladress: thorgeirbald62@gmail.comPostadress: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðPlats: HörgárbyggðOm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiLänkar
Antal sidvisningar idag: 1369 Antal unika besökare idag: 19 Antal sidvisningar igår: 1858 Antal unika besökare igår: 51 Totalt antal sidvisningar: 1062643 Antal unika besökare totalt: 50973 Uppdaterat antal: 22.12.2024 07:45:45 |
© 2024 123.is | Registrera dig för 123.is | Kontrollpanel