30.04.2010 12:55

2761-Rósin Nýr Hvalaskoðunnarbátur i Reykjavik


                                                       2761-Rósin © mynd Trefjar Högni Bergþórsson 2010

                                 Rósin á Faxaflóa ©mynd Trefjar Högni Bergþórsson

                                  Rósin á fullri ferð ©mynd Trefjar Högni Bergþórsson

Nýr Cleopatra 50 hvalaskoðarbátur afgreiddur í Reykjavík

 

Sérferðir ehf í Reykjavík fengu nú í vikunni afhentann nýjan Cleopatra bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði.

Framkvæmdastjóri Sérferða ehf er Friðfinnur Hjörtur Hinriksson.  Skipstjóri á bátnum verður Ingimar Finnbjörnsson.

 

Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Rósin og er 30brúttótonn. Rósin er af gerðinni Cleopatra 50.

Báturinn hefur leyfi til farþegaflutninga í lengri og skemmri ferðir fyrir allt að 75 farþega.

Farþegasalur er einnig útbúinn fyrir smærri veislur.  Fullbúinn eldunaraðstaða og veitingasala er um borð.  Sérferðir ehf hafa um nokkurra ára skeið sérfæft sig í fuglaskoðunarferðum og námsferðum fyrir grunnskólabörn á vegum Reykjavíkurborgar.  Með þessum nýja bát verður starfsemin víkkuð út og boðið upp á hvalaskoðunarferðir jafnhliða.

 

Vélbúnaður bátsins er af gerðinni Volvo Penta IPS800.

Vélbúnaðurinn saman stendur af tveimur Volvo Penta D11 vélum sem hvor um sig skilar 600hö.  Vélarnar eru tengdar drifum sem jafnframt eru stýrisbúnaður bátsins. 

Samhæfin drifanna gerir að verkum að hægt era ð stjórna bátnum með einkar einföldum og öruggum hætti.

Skrúfur bátsins vísa fram sem gerir að verkum að sjóflæði er óhindrað að þeim.

Hámarksganghraði bátsins er 32 hnútar.

 Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno og Maxsea frá Brimrún.

Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

  Hjörtur Hinriksson

Sími:  869 3150

 TREFJAR LTD

OSEYRARBRAUT 29

220 HAFNARFJORDUR

ICELAND

 


Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1118
Gestir í dag: 98
Flettingar í gær: 1506
Gestir í gær: 141
Samtals flettingar: 606828
Samtals gestir: 25675
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 17:15:50
www.mbl.is