Færslur: 2009 Nóvember

30.11.2009 00:22

1031- Bergur Ve 44


                                1031-Bergur Ve 44 ©Mynd Þorgeir Baldursson
Bergur Ve 44 á siglingu við Reykjanesröstina seinnpart siðustu aldar á leið til Eyja með loðnu úr Breiðafirði

29.11.2009 09:46

Veiðiferðinni lokið


                                          Slægður Þorskur © mynd þorgeir Baldursson
Jæja þá er þessari veiðiferð lokið komum i land á Akureyri i morgun með um 100 tonn uppistaðan
þorskur og örlitið af þorski ufsa ýsu Brottför ákveðin á þriðjudagskvöld kl 18.00

27.11.2009 18:48

Sólbakur EA 1 Ýsuveiði


                          Gott ýsuhal i mai 2008 © mynd þorgeir baldursson
Jæja loksins timi til að blogga það er búið að vera fremur hryssingslegt veður undanfarna sólahringa skitabræla og leiðinda veður i allastaði .Aflabrög með þokkalegasta móti svo að ekki hefur verið timi fyrir bloggfærslur fyrr en nú  veðrið hefur  gengið niður að mestu leiti en á þessum
tima gang þessar blessuðu Haustlagðir hver um aðra þvera yfir landið og miðin með tilheyrandi
göslagangi

24.11.2009 10:50

Dregin til Isafjarðar


                                   2154-Mars RE 205 © Mynd Halldór Sveinbjörnsson

                              Hafsteinn og sonur ©mynd Halldór Sveinbjörnsson
I morgun um kl 05 komu til hafnar á Isafirði Páll Pálsson IS 102 og Mars RE 205
en Marsinn hafði fengið pokann og belginn i skrúfuna skipið mun hafa verið á veiðum á vestfjarðamiðum þegar óhappið varð  Hafsteinn kafari ásamt syni sýnum
gekk strax i það verk að skera úr og hafði til verksins meðal annars slipirokk fyrir neðansjávar
vinnu og var búið að losa allt úr skrúfunni um kl 9/40

22.11.2009 23:35

Sjómannadagur i denn


                                          Sandgerðishöfn i denn  ©mynd þorgeir Baldursson
 Hérna kemur mynd frá sjómanndegi i Sandgerði seint á siðustu öld þekkja menn nokkuð mannin
 Hann ku vera enn Búsettur á suðvestur horninu

20.11.2009 22:44

Drukkinn skipstjóri


                                   Nordfjord   ©mynd  Theo Kruizinga

Lögreglan í Borgarnesi handtók skipstjóra á flutningaskipi í Grundartangahöfn í kvöld. Tollverðir sem fóru um borð í skipið létu lögreglu vita af því að skipstjórinn gæti verið ölvaður, þar sem hegðun hans þótti bera vitni um það.

Maðurinn var látinn blása í mæli og kom þá í ljós að hann var undir áhrifum, en skipið sem hann stjórnaði drukkinn er mjög stórt. Það er 111 metra langt og flytur hráefni til stóriðjunnar á Grundartanga.

Maðurinn var færður á lögreglustöð þar sem blóðsýni var tekið úr honum og hann yfirheyrður. Að því loknu var honum ekið aftur til skips þar sem honum var gert að sofa úr sér.

Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni í Borgarnesi eru svona uppákomur ekki algengar í þeirra umdæmi Heimild  www.MBL.IS

20.11.2009 21:04

Hólmsteinn GK 20


                                Sandgerðishöfn i dag © MKV 2009

                                          Kominn á Tralerinn © MKV  2009

                 Á leiðinn útá Garðskaga  © MKV 2009

                                           Hifður á réttan stað © MKV 2009

                         kominn á safnið á Garðskagaflötinni ©MKV 2009
Eftir hádegi i dag var Hólmsteinn GK 20 hifður á land i Sandgerði uppá stóran Traler sem að flutti hann á safn sem að er staðsett á flötinn við Garðskaga vita meðfylgjandi myndir tók
Markús Karl Valsson og sendi mér og vil ég þakka honum kærlega fyrir sendinguna

20.11.2009 20:06

Bim við Portið


                                     Brimskaflar við Vik i Mýrdal (portið)mynd Magnús Jónsson

                          Suðvestan birm og norðan strekkingsvindur mynd Magnús Jónnson 

        Myndirnar voru teknar föstudaginn 13 nóvember2009  i fjörunni við Vik i Mýrdal
af Magnúsi Jónssyni og kann ég honum bestu þakkir fyrir sendinguna

20.11.2009 11:21

Július Geirmundsson is 270


          Einar  V Kristjánsson og Ómar Ellertsson ©mynd Halldór Sveibjörnsson BB.IS

                                1977-Július Geirmundsson IS 270 © Mynd Þorgeir Baldursson 

                 Július Geirmundsson með 24 milljarða aflaverðmæti á 20 árum

ÞETTA ræðst alveg af því hvað við fáum að veiða. Þorskurinn er skammtaður og alltaf hægt að ganga að honum svo við byggjum þetta mikið á meðafla. Við höfum líka alltaf verið mikið á grálúðu,« segir Ómar Ellertsson, skipstjóri á frystitogaranum Júlíusi Geirmundssyni ÍS 270, sem Hraðfrystihúsið - Gunnvör á Ísafirði gerir út. Hann hefur verið stýrimaður og skipstjóri hjá útgerðinni í yfir fjörutíu ár, á fjórum skipum sem bera þetta nafn.

Júlíus kom til landsins fyrir réttum tuttugu árum og kom þá fram í frétt í Morgunblaðinu að hann hefði vinnslugetu og frystigetu á við lítið sjávarþorp. Skipið hefur borið að landi rúmlega 90 þúsund tonn af fiski upp úr sjó. Aflaverðmætið samsvarar tæpum 24 milljörðum á núgildandi verðlagi.

»Ég byrjaði 1967, þegar ég kom út úr Stýrimannaskólanum. Það var á fyrsta Júlíusi Geirmundssyni, 260 tonna báti sem smíðaður var í Austur-Þýskalandi,« segir Ómar. Hann var stýrimaður í upphafi en byrjaði fljótlega að leysa af sem skipstjóri. Ísfisktogari leysti bátinn af hólmi, síðan annar togari og loks frystitogari. »Það breyttist mikið þegar frystitogarinn kom, útiverurnar lengdust eins og fríin á milli túra,« segir Ómar.

Útgerðin bauð áhöfninni og gestum til kaffisamsætis í gær til að fagna þessum tímamótum. Meðal gesta var eigandi bresku veitingastaðakeðjunnar Fish'n'Chicken. Skipverjar á Júlíusi hafa unnið sérstaklega fyrir hann þorskflök undanfarin fimmtán ár. Náin samvinna hefur náðst á milli Bretanna og útgerðar skipsins og áhafnar. Kaupandinn treystir gæðunum og er tilbúinn að greiða vel fyrir. »Það kemur fyrir að hann hringir um borð til að spjalla við okkur, þótt aðallega sé hann í sambandi við sölumennina í landi. Hann kaupir mest eina stærð af fiski og fær aldrei nóg,« segir Ómar. Heimild Morgunblaðið Helgi Bjarnasson

19.11.2009 11:47

Bruni i Rannsóknarskipinu Póseidon EA 303


                                  BRUNI UM BORÐ © MYND KRISTJÁN KRISTJÁNSSON

                SLÖKKVISTARFI LOKIÐ © MYND ÞORGEIR BALDURSSON
Eldur kom upp í rannsóknarskipinu Poseidon, gamla togaranum Harðbak EA, við bryggju hjá Slippnum Akureyri nú í morgun. Engin slys urðu á fólki og greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins, sem kom upp í rými aftarlega á millidekki.
 

Slökkvilið Akureyrar fékk tilkynningu um eldinn skömmu fyrir klukkan hálf ellefu og liðið var fljótt á staðinn, enda í næsta húsi við Slippinn. Verið var að logskera á aðaldekkinu, þegar eldur komst í einangrun í rými fyrir neðan. Þar var líka glússatankur sem sprakk og við það magnaðist eldurinn um stund. Að loknu slökkvistarfi var rýmið reykræst.Heimild .www.vikudagur.is 

18.11.2009 00:25

Jóna Eðvalds SF 200 Risakast


                        1200 tonn i nótinni Mynd af heimasiðu Bláa Bassans

                                       Nótin Dregin ©Mynd Svafar Gestsson

                                      Dæling um borð ©mynd Svafar Gestsson

                           Jóna Eðvalds SF 200 Mynd þorgeir Baldursson 2008
Sigurður Bjarnasson skipstjóri á Jónu Eðvalds ásamt áhöfn sinni var ekki lengi að fá i skipið á sildarmiðunum  i dag hann kallaði klárir kl 12 á hádegi  og tók þá 1200 tonna kast sem að er
með þeim  stæðstu köstum sem skipverjar hafa fengið þeir fylltu skipið um 900 tonn og gáfu
Hábergi EA 300 Tonn sem að var restin úr nótinni og eru nú bæði skipin á landleið ásamt Berki NK

17.11.2009 23:50

Barðinn NK 120 i Slippnum


                              1976-Barði NK 120 I Kvöld 17 nóv

              Flokkari frá Marel © myndir Þorgeir baldursson 2009
Leit inná milldekkið á Barðanum i dag til að forvitnast um gang mála þar hitti ég
nokkra slippara við vinnu sem að sögðu mér að stemmt væri á að klára millidekkið i
birjun desember ég sá 2  hausara frá Baader og flokkarann frá Marel og var ekki annað að sjá en að þetta virðist vera á áætlun hjá slippnum

12.11.2009 17:26

Siglt á Borgarisjaka


                                   Sólborg  TN mynd úr safni Sigurðar Þórðarssonar
Svona var umhorfs á framenda Sólborgar eftir að skipið hafði siglt á borgarisjaka úti fyrir strönd
Nýfundalands þann 16 júni 2004  á fullri ferð einhverjir áhafnarmeðlimir slösuðust við áreksturinn og þurfti kranabil til þess að hifa isbrotinn i land og var talið að um 30 tonn væru framá bakkanum
myndin er tekin i Bay Roberts en þar lönduðu isl skip reglulega meðan rækjuveiði var á
Flæmska Hattinum og var oft mikil traffik við þessa einu bryggju sem þarna var þá

11.11.2009 13:53

Ástarvika Eskfirðinga


                                 Smábátahöfnin á Eskifirði © mynd þorgeir Baldursson
Svona var umhorfs við smábáta bryggjuna á Eskifirði i gærkveldi þegar siðuritari átti leið hjá
en þessa vikuna stendur yfir Ástarvika þeirra Eskfirðinga með knúsi og hlýjum straumum milli
fólks og þvi var búið að lýsa upp höfnina og göngustig þar hjá með rauðum ljósum ásamt þvi voru fjölmargir ibúar staðarins með hjörtu i gluggum húsa sinna

10.11.2009 16:38

Geise


                                               Geise  Gibraltar
Þessi fraktari sigldi framhjá okkur á þórsbankanum i siðustu viku á leið til Fáskrúðsfjarðar

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 641
Gestir í dag: 99
Flettingar í gær: 546
Gestir í gær: 102
Samtals flettingar: 557373
Samtals gestir: 20942
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 11:09:30
www.mbl.is