Færslur: 2013 Apríl

29.04.2013 18:13

Rækjuveðum hætt 1 Júli 2013

      Rækuveiðar © Mynd þorgeir Baldursson 

        Canadiskir Eftirlitsmenn i eftirliti á Flæmska Hattinum © mynd þorgeir Baldursson 

Veiðar á úthafsrækju byggja á sóknarstýringu og hefur verið ákveðið að veiðarnar verði stöðvaðar eigi síðar en 1. júlí. Þessi ákvörðun er tekin í ljósi þróunar veiða á yfirstandandi fiskveiðiári og til að tryggja ákveðinn fyrirsjáanleika. Þá má búast við að stjórn  veiða á úthafsrækju komi til endurskoðunar fyrir upphaf næsta fiskveiðiárs.

Þetta kemur fram í frétt á vef atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins.

Í júlí 2010 var tekin ákvörðun um að frá og með fiskveiðiárinu 2010/2011 yrði ekki gefinn út heildarafli, og þar með aflamark, vegna veiða á úthafsrækju. Í fréttatilkynningu ráðuneytisins nr. 46/2012 var gerð grein fyrir forsendum þeirrar ákvörðunar.

Þar er rakið að frá fiskveiðiárinu 2000/2001 hafi ekki verið aflað upp í útgefið aflamark. Þá var einnig vísað til skýrslu starfshóps ráðuneytisins um veiðar á úthafsrækju frá 2010, þar sem ljáð var máls á því að tekin yrði upp sóknarstýring í stað aflamarksstýringar við stjórn veiða á stofninum, í því skyni að hvetja til betri nýtingar.

Við upphaf fiskveiðiáranna 2011/2012 og 2012/2013 var ákveðið að framlengja þessari ákvörðun, þ.e. veiðar á úthafsrækju hafa að meginreglu verið öllum frjálsar þó með hliðsjón af ráðgjöf, segir í frétt ráðuneytisins.


26.04.2013 11:44

Heimilt að veiða 15000 tonn af makril i Grænlenskri lögsögu

                         Polar  Amaroq ©  mynd þórhildur Eir Sigurgeirsdóttir 2013       



Fyrir nokkru ákváðu grænlensk stjórnvöld að heimila veiðar á 15 þúsund tonnum af makríl í grænlenskri lögsögu á komandi sumri.  Grænlendingar hafa farið þess á leit við íslensk stjórnvöld að fá að landa makrílnum á Íslandi og hefur verið fallist á að þeir fái að landa 12 þúsund tonnum hér á landi.

Í viðtali við Geir Zoëga skipstjóra á Polar Amaroq og áður skipstjóra á Eriku kom fram fyrir nokkru að vart hefði orðið við makríl í grænlenskri lögsögu í fyrra og hefði Erika m.a. veitt þar 2.500 tonn.  Nú hefur verið ákveðið að Íslendingar muni koma að rannsóknum á útbreiðslu makríls í grænlenskri lögsögu og er fyrirhugað að hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson haldi þangað til rannsókna í sumar.

Grænlenska makrílkvótanum verður úthlutað til grænlenskra fyrirtækja en þau geta síðan framselt hann áfram til veiðiskipa.  Því er mögulegt að íslensk skip geti lagt stund á makrílveiðar innan grænlenskrar lögsögu á komandi sumri rétt eins og tveir togarar Brims gerðu um tíma s.l. sumar.
 
Eina uppsjávarskip Grænlendinga er Polar Amaroq sem er í eigu East Greenland Codfish en eins og flestum er kunnugt á Síldarvinnslan þriðjung í því félagi.  Fullvíst má telja að auk Polar Amaroq muni frystitogarar veiða grænlenska makrílkvótann.
heimild www.svn.is

 

25.04.2013 08:40

Sigurður Ve 15 á leið i pottinn

         Sigurður ve á siglingu fyrir austan land með fullfermi © mynd þorgeir Baldursson

           Kristbjörn Árnasson (Bóbi) Fv skipstjóri á Sigurði ve 15 © mynd þorgeir Baldursson

         Sigurður Ve á leið i Krossanes með fullfermi af loðnu © mynd þorgeir Baldursson

                 skipverjar á Sigurði Ve Dæla úr nótinni © mynd þorgeir Baldursson 
Sæmkvæmt frétt á siðu Tryggva Sigurðssonar www.batarogskip.123.is er aflaskipið Sigurður Ve 15 nú á leið i pottin fræga eftirfarandi frétt birtist þar og kann ég Tryggva bestu þakkir fyrir afnotin 
Tók eftir því í dag að unnið var við að færa Sigurð milli bryggja og var mér tjáð að til stæði að rífa úr honum kraftblökkina nótaleggjarann og eitthvað af spilum. Siðan er gert ráð fyrir að gamli öldungurinn sigli sjálfur á vit örlaga sinna um miðjan maí líklegast til Danmerkur þar sem hann verður höggvinn niður. Hlutverki hans er lokið hvað veiðar varðar og ekkert grín að ætla að geyma skip sem er yfir 70 metrar á lengd og en verra að sjá hann grottna niður. Glæsilegur er hann blessaður og hefur reyndar alltaf verið og ófáar krónurnar sem hann hefur skilað þjóðarbúinu síðustu 50 árin. En eins og maðurinn sagði "Allt hefur sinn tíma.

22.04.2013 21:45

Ramóna Vélarvana fyrir Austan land

                          Ramóna is 840 © Mynd þorgeir Baldursson 2013

 Björgunarskip frá Neskaupstað er nú á leiðinni til að aðstoða fiskiskipið Ramóna ÍS austur af landinu en Ramóna varð vélarvana nú í kvöld.

Tilkynning um það barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar sem hafði samband við björgunarsveitina í Neskaupstað.

Engin hætta er á ferðum samkvæmt upplýsingum frá Gæslunni.

Heimild mbl.is


20.04.2013 20:05

Ný skúta Norðursiglingar til heimahafnar á Húsavik

                        Opal á siglingu á skjálfanda © mynd þorgeir Baldursson 2013

                    Glæsileg Skúta Opal © mynd Þorgeir Baldursson 2013

Skonnortan Opal sem Norðursigling festi kaup á í ársbyrjun kom til nýrrar heimahafnar á Húsavík í gær.

Tekið var á móti Opal og áhöfn hennar með viðhöfn enda um að ræða glæsilega viðbót í flota Norðursiglingar.

Skútunni var siglt frá Ebeltoft í Danmörku, um Skotland og Færeyjar og gekk siglingin vel, undir seglum meiri hluta leiðarinnar. Samkvæmt Heimi Harðarsyni, skipstjóra Opal og eins eigenda Norðursiglingar reynist Opal afar vel, bæði traust og lipur til siglinga. Á Húsavík bíður Opal nýtt hlutverk sem leiðangurs- og hvalaskoðunarskip

Opal er 32 metra löng, tvímastra skonnorta með 380 m2 seglaflöt, níu segl. Opal hefur káetur fyrir 12 farþega, í sex klefum, auk áhafnar. Um borð er 280 hestafla Scania vél og skipið er vel búið tækni- og öryggisbúnaði.

Skonnortan er byggð sem togari í Damgarten árið 1952, eikarplankar á eikarbönd.  Árið 1973 tóku nýir, danskir eigendur við skipinu og á næstu átta árum þar á eftir var Opal breytt í skonnortuna sem hún er í dag. 

Með þessari viðbót hyggst Norðursigling byggja enn frekar undir framboð á skútusiglingum auk þess að mæta aukinni eftirspurn eftir lengri ferðum og leiðöngrum.heimild 640.is

18.04.2013 22:57

972 Kristin ÞH 157 á útleið frá Húsavik i dag

                    Kristin þH leggur frá Bryggju á Húsvaik i dag © mynd þorgeir 2013

                   Gengið frá endum og gert sjóklárt © mynd þorgeir 2013

                              Haldið til hafs á ný © mynd þorgeir 2013

                     sett á stefnuna fyrir kvikmyndtökuliðið © mynd þorgeir 2013

                        OG bætti við vélaraflið © mynd þorgeir 2013

            Kristin Þh var kvikmynduð á leið á miðin © mynd þorgeir Baldursson 2013

              972 Kristin ÞH Skipið öslar öldurnar á útleiðinni © mynd þorgeir 2013
Það var ansi gaman að fylgjast með Linubátnum Kristinu ÞH 157 i eigu Visirs þegar hann hélt til veiða i dag eftir að hafa landað um 70 kerjum af þorski eftir stuttan túr á bryggjunni voru Erlendir fiskkaupendur sem að voru að taka myndband af skipinu við brottför og voru þeir hæst ánægðir 
með aðstæðurnar hérna á Húsavik

18.04.2013 21:03

skipaumferð á Húsavik i dag

                     Haförn ÞH fyrir utan fiskverkun GpG © Mynd ÞORGEIR 2013

                        Háey ÞH kemur til Löndunnar © Mynd þorgeir 2013

                                Eyrún þH kom sinnipartinn © mynd þorgeir 2013

                     Sigurpáll þH kom lika sennipartinn © Mynd þorgeir 2013
Aflabrögð voru æði misjön i dag enda sjóslamandi af norðvestri landanir og vikt má sjá á www.fiskistofa.is

16.04.2013 16:02

Börkur NK 122

                  2827 Börkur NK 122 © Mynd þórhildur Eir Sigurgeirsdóttir 2013

                    Börkur NK 122 © Mynd Þórhildur  Eir Sigurgeirsdóttir 2013
Börkur Nk hélt i siðustu viku til kolmunnaveiða suður af Færeyjum eftir að skipið hafði verið i slipp á Akureyri þar sem að skipið var meðal annas málað i einkennislitum Sildarvinnslunnar 


  • 1

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 375
Gestir í dag: 42
Flettingar í gær: 546
Gestir í gær: 102
Samtals flettingar: 557107
Samtals gestir: 20885
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 05:40:17
www.mbl.is