Færslur: 2008 Júní

30.06.2008 00:08

Aðalbjörg RE 5


                           1755. Aðalbjörg  RE 5  © mynd Emil Páll 2008

30.06.2008 00:04

Alli Vill GK 700


                                 2084. Alli Vill GK 700 © mynd Emil Páll 2008

30.06.2008 00:01

Ingólfur KE 160


                    1821. Ingólfur KE 160 © mynd Emil Páll 1992

29.06.2008 08:50

Keilir seldur til Danmerkur

Fréttablaðið, 29. jún. 2008 06:30

Ekkert olíuskip lengur í eigu þjóðarinnar

mynd
Síðasta olíuflutningaskip Íslendinga er nú komið til Dana. Ekkert olíuflutningaskip kemst því til fjölmargra dreifingaraðila á landsbyggðinni eins og staðan er í dag.

Olíuflutningaskipið Keilir, sem var eina slíka skipið í eigu Íslendinga, var í sinni síðustu ferð umhverfis landið í liðinni viku og er komið til Danmerkur þar sem nýir eigendur hafa tekið við því. ,,Þar með lauk þeim hluta í íslenskri skipasögu," segir Hörður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Olíudreifingar sem átti skipið, sem var selt fyrir um mánuði. ,,Það er mjög erfitt að vera að gera út eitt skip og þurfa að reyna að afla vinnu fyrir það 200 daga á ári þar sem verkefnin hérlendis taka ekki nema 110 til 120 daga á ári," segir hann. ,,Einnig hefur dregið úr verkefnum síðan olíuverð fór að hækka og hafa sífellt fleiri útgerðarfyrirtæki byrjað að nota svartolíu en við fluttum lítið af svartolíu með Keili."  Keilir hefur bæði flutt olíu til fjölmargra staða á landsbyggðinni en einnig flutt olíu hingað til lands frá Noregi og Svíþjóð. Þau erlendu skip sem flytja olíu hingað eru of stór til að koma til hafnar á fjölda þessara staða á landsbyggðinni svo ekkert skip fer með olíu þangað eins og staðan er nú. ,,Við munum hugsanlega leigja skip í staðinn fyrir Keili. Við munum taka ákvörðun um það á næstu tíu dögum," segir Hörður. ,,Þetta er dapurlegt," segir Kristján Möller samgönguráðherra. Hann lýsti því yfir fyrir nokkrum árum að honum væri umhugað um að koma strandflutningum á þar sem þeir séu þjóðhagslega hagkvæmir. ,,Ég er ennþá áhugamaður um strandsiglingar en helst hefði ég viljað að þær gengju á markaðslegum forsendum en ef svo er ekki verður að skoða aðrar leiðir," segir hann. Kristján segir að ekki sé að vænta útboðs á ríkisstyrktum strandflutningum.  ,,Það var gerð tilraun í fyrra til að koma hér á alþjóðlegri skipaskrá og að koma til móts við skipafélög með skattaafslætti og slíku en það var ekki hljómgrunnur fyrir því hjá fyrirtækjunum þar sem þetta gengi of skammt og kæmi of seint. Mér er hins vegar spurn hvort vandi strandsiglinga hérlendis sé sá að sömu aðilarnir skuli flytja vöruna til og frá landinu og eiga jafnframt tvö stærstu landsflutningafyrirtækin." Þar á hann við Samskip og Eimskip.

- Meira um skipasöluna og núverandi nafn skipsins í skoðunum (álitum) hér undir.


 

29.06.2008 00:09

Dalaröst GK 150


                  1639. Dalaröst GK 150 © mynd Emil Páll 2008

29.06.2008 00:03

Karlsey


                        1400. Karlsey © myndir Smári Steinarsson 2008

28.06.2008 21:57

Komu við í Færeyjum á leið í pottinn

            Óðinn Magnason sendi okkur þetta, sem birtist í færeyskum fjölmiðli og þökkum við honum kærlega fyrir.
2 íslensk skip, sum eru ávegis til upphøggingar, settu inn á Miðvág
Leygarkvøldið kom íslenski trolarin STRAUKUR við JÓN STEINGRÍMSSON uppá sleip inn á Miðvág. Íslensku skipini skulu til upphøggingar, skipini fara helst av Miðvági aftur í dag ella í morgin.

28.06.2008 21:39

Meðal starfsaldur skipverja er 14 ár

Eftirfarandi má lesa á vefnum 245.is

27.6.2008 22:07:57
Meðal starfsaldur áhafnarmeðlima á Njáli RE 275 er 14 ár

Allir í áhöfn eru búsettir í Sandgerði


Njáll RE 275 siglir hér inn í Sandgerðishöfn © Veigar Þór Gissurarson / www. lifid@245.is

Rétt undir hádegi í dag kom Njáll RE 275 til hafnar í Sandgerði eftir viku yfirhalningu í slippnum í Njarðvík.  Njáll er gerður út af Sjóla ehf. í Reykjavík en allir í áhöfn eru búsettir í Sandgerði.   Skipstjórinn og vélstjórinn hafa verið í áhöfninni í rúmlega 20 ár, stýrimaðurinn í 19 ár, netamaðurinn í 7 ár og kokkurinn í 2 og hálft ár.

Áhöfn Njálar:

  • Hjörtur Jóhannson, Skipstjóri
  • Gissur Þór Grétarson, vélstjóri
  • Helgi Sigurbjörsson, stýrimaður
  • Þóroddur Svævar Guðlaugsson, netamaður
  • Rúnar Gissurarson, kokkur

 

28.06.2008 00:06

Páll Jónsson GK 7


                   1030. Páll Jónsson GK 7 © mynd Emil Páll 2008

28.06.2008 00:00

Baldur


Hér koma tvær myndir teknar í Stykkishólmi af ferjunni Baldri, en ljósmyndari er Smári Steinarsson og þökkum við honum kærlega fyrir myndirnar.

                                     2727. Baldur © myndir Smári Steinarsson 2008

27.06.2008 23:03

Dröfn RE á Drangsnesi

Árni Þór Baldursson á Drangsnesi sendi okkur þessa mynd sem sýnir Dröfn RE 35 við bryggju á Drangsnesi. Sendum við honum bestu þakkir fyrir.
                             1574. Dröfn RE 35 © mynd Árni Þór Baldursson 2008

27.06.2008 21:02

Bjarni Þór kominn til Grindavíkur

Bjarni Þór kominn til Grindavíkur
Bjarni Þór kemur til Grindavíkur í dag, mynd af grindavik.is

  Hinn nýi hafnsögubátur Grindvíkinga kom til hafnar kl 09:00 í morgun. Í föruneyti sigldu gamli hafnsögubáturinn Villi og hafnarstarfsmenn ásamt Oddi V Gíslasyni og Árna í Tungu og björgunarsveitarmenn frá Grindavík. Hið nýja skip er smíðað i Vigo á Spáni og er hið glæsilegasta í alla staði, þeir Sverrir Vilbergsson hafnarstjóri og Sæmundur Halldórsson sigldu bátnum 1740 sjólmílna leið. Um 50 manns tóku á móti skipinu á bryggjunni og bauð varaformaður hafnarstjórnar Guðbjörg Eyjólfsdóttir, skipsverja velkomna eftir langa siglingu og óskaði Grindvíkingum til hamingju með fleyið. Séra Elínborg Gísladóttir sóknarprestur Grindavíkur blessaði skip og áhöfn og flutti bæn. Að því loknu var boðið til kaffisamsætis í Saltfisksetri Íslands. Texti og mynd af grindavík.is

 
 

27.06.2008 05:55

Hver er hann þessi?

Já hvaða bátur er þetta?  og hvar er myndin tekin?

                                          © mynd Jón Páll Ásgeirsson 2007
Hér er um að ræða dæmigerðan bát sem byggður var hérlendis og gerður út fyrir norðan, vestan, sunnan og víðar í um þrjátíu ára skeið eða þar til hann var dæmdur ónýtur. Honum var síðan rennt á land í einni af ferðamannaperlu okkar, þar sem nota átti efni úr honum í girðingaefni o.fl. En hvar er hann og um hvaða bát erum við að ræða. Jóni Páli sendum við kærar þakkir fyrir afnotin af myndinni.

 

27.06.2008 00:29

Siglunes SH 36


       1146. Siglunes SH 22 sem nú hefur verið skráður SH 36 © mynd Emil Páll 2008

26.06.2008 00:22

Gamlir bátar


              1283. Jón Finnsson GK 506, mynd úr blaðinu Skiphóli
Nú birtum við þrjár myndir sem teknar eru í svart/hvítu, enda sumar hverjar komnar til ára sinna. Þó engin myndanna sé merkt ljósmyndara, teljum við nokkuð víst hverjir þeir eru og birtum þau nöfn svona til vonar og vara, eða hvaðan myndirnar eru komnar. Ef þið vitið betur væri gaman að fá þá vitneskju.

        500. Gunnar Hámundarson GK 357, spurning hvort Heimir Stígs eða Snorri Snorrason hafi tekið mynd þessa.

    Lára EA 107, mynd þessa sendi Þorsteinn Pétursson á Akureyri okkur, en gaman væri að vita eitthvað um þennan bát, þar sem við finnum ekkert yfir hann. Þorsteini þökkum við kærlega fyrir sendinguna.


Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 341
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 546
Gestir í gær: 102
Samtals flettingar: 557073
Samtals gestir: 20875
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 05:15:56
www.mbl.is