Færslur: 2017 Maí

30.05.2017 08:20

Sjómenn mótmæla i Færeyjum

Allt er nú á suðupúnti i Færeyjum eftir að Högni Heydal gaf það út i vikunni að 

hann vildi taka allann kvótann af færeyskum skipum og setja á uppboð

það hugnast útgerðarmönnum og sjómennum ekki enda fjölmörg störf 

sjómanna i hættu ef að svo fer enda hafa mörg skipanna veitt i lögsögu 

annara rikja meðal annas Enniberg sem að hefur stundað veiðar i Barentshafi 

i mörg ár 

                 Skipafloti Færeyinga i höfn mynd Jónas Sigmarsson 2017

                             Mynd Jónas Sigmarsson 2017

                 Flotinn i höfn mynd Jónas Sigmarsson 2017

                Hafnarsvæðið i Þórhöfn i gær mynd Jónas Sigmarsson 2017

                Hafnarsvæðið i Þórshöfn Mynd Jónas Sigmarsson 2017

29.05.2017 22:48

Með fullfermi i fyrsta túr á Barða NK 120

Ísfisktogarinn Barði NK kom til Neskaupstaðar í nótt. Skipið var kjaftfullt, með 112 tonn, og var uppistaða aflans stór og fallegur þorskur. Skipstjóri í veiðiferðinni var Bjarni Már Hafsteinsson og var þetta fyrsta veiðiferð hans í skipstjórastólnum á Barða. Í samtali við heimasíðuna sagði Bjarni að nú væri loksins genginn stór fiskur á hefðbundin austfirsk togaramið en að undanförnu hefur þar einungis fengist smár fiskur. Þá sagði Bjarni að í veiðiferðinni hefði orðið vart við makríl á Fætinum. „Þessi veiðiferð gekk ágætlega rétt eins og fyrsta veiðiferðin mín sem skipstjóri á Bjarti NK á sínum tíma og það er alltaf gott að byrja vel. Við hófum veiðar á Lónsbugtinni og vorum þar í ýsu en afli var heldur tregur. Þá var haldið á Lúlla og Lovísu og reyndar þaðan upp undir Borgarstjórann og var aflinn þar sæmilegur. Næst lá leiðin á Undirbyrðarhrygg og þaðan út á Þórsbanka í karfa og ufsa. Síðan veiddum við í Vonarbrekku og norður undir Herðablað og þar fékkst stór og góður þorskur. Í reyndinni var þar aðgæsluveiði,“ sagði Bjarni.

      1976 Barði Nk 120 á veiðum Mynd Þorgeir Baldursson 2017

 

28.05.2017 08:09

Svifnökkvi á Eyjafirði

 Morgunblaðið /Skapti Hallgrimsson 

Myndir .Þorgeir Baldursson 

Nýjasta nýtt í ferðaþjónustu á Akureyri er forláta svifnökkvi sem brunar um Pollinn. Þar er á ferð Arinbjörn Kúld, sem fékk gripinn fyrir nokkrum dögum og er þegar byrjaður að þeysa um með farþega. Hefur prófað að stoppa og taka mynd á sandeyrum sem koma í ljós á fjöru og segir að auðveldlega megi skoða hvali með þessum hætti.

Aðeins verður farið með einn farþega í hverri ferð þótt þeir megi vera tveir; a.m.k. tveir „léttir“ einsog hann orðar það. Og nökkvarnir verða fleiri. Arinbjörn flytur þá inn sjálfur, bæði til eigin nota og til sölu. Hann segir ýmsa ólma í að eignast svona farartæki, meðal annars björgunarsveitir og ýmis fyrirtæki.

Arinbjörn segir nökkvann komast á staði þar sem önnur farartæki lendi í vandræðum eða komist alls ekki; nefnir mýrlendi og eyrar. „Þeir svífa hvar sem er yfir sjó og land, geta til dæmis farið yfir viðkvæm svæði þar sem utanvegaakstur er bannaður. Loftpúðinn undir nökkvanum gerir það að verkum að aðeins sést lítil rák eftir þá í stutta stund.“

Arinbjörn gerir út frá lítilli sandvík við Leiruveginn, sunnan við athafnasvæði siglingaklúbbsins Nökkva. „Mér fannst vanta afþreyingu. Þessi er geggjuð; stutt en spennan mikil meðan á ferðinni stendur,“ segir hann.

       Arinbjörn Kúld Mynd þorgeir Baldursson 2017

      Svifnökkvinn og Arnbjörn á Pollinum Mynd þorgeir Baldursson 2017

           Svifnökkvinn heldur af stað mynd þorgeir Baldursson 2017

            Stjórntæki Svifnökkvans Mynd þorgeir Baldursson 2017

 

27.05.2017 08:35

2250 Sleipnir á Eyjafirði

    2250 Hafnsögubáturinn Sleipnir Mynd þorgeir Baldursson 2017

26.05.2017 23:06

Færnafnið Björg eins og manmma

 

 

 

                                  2893 Björg EA10  Af vef N4 2017

Nýr ísfiskstogari Samherja verður sjósettur á morgun laugardaginn 26.maí í Tyrklandi.

 

Skipið mun fá nafnið Björg EA 10, heimahöfn þess verður á Akureyri og verður skipið afhent á haustdögum.

Skipið fær nafn sitt frá móður Þorsteins Más Baldvinssonar, Björgu Finnbogadóttur.

Fjögur systurskip hafa verið í smíðum hjá Cemre skipasmíðastöðinni í Tyrklandi fyrir íslensk sjávarútvegsfyrirtæki.

Um er að ræða ísfisktogara með nokkuð nýstárlegu útliti. Kaldbakur EA 1 kom til heimahafnar á Akureyri í mars,

en Kaldbakur bætist við flota Útgerðarfélags Akureyrar.

  Björgúlfur EA 312, nýtt skip Samherja, er að sigla heim frá Tyrklandi og er nú staddur vestur af Portúgal

en hann mun skila sér til heimahafnar á Dalvík undir vikulokin. Drangey SK2 er nýtt skip Fisk Seafood á Sauðárkróki,

skipið er væntanlegt heim í lok sumars og kemur hann til með að leysa af hólmi Klakk SK5.

Síðasta skipið af þessum fjórum systurskipum verður sjósett á morgun laugardaginn 26.maí.

Skipið fær nafnið Björg með skráningar númerið EA 10 og verður heimahöfnin á Akureyri.

Skipið verður afhent á haustdögum. Skipið fær nafn móður Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, Bjargar Finnbogadóttur. 

Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, segist sérstaklega spenntur fyrir því að hefja rekstur á þessum nýju skipum, enda

hafi endurnýjun á flotanum verið orðin löngu tímabær.

                  2892 Björgúlfur EA312 mynd af Vef N42017

  2891 Kaldbakur EA 1 á Eyjafirði þann 4mars mynd þorgeirBaldursson 2017

   

26.05.2017 22:34

1274 Páll Pálsson is seldur til Vinnslustövarinnar i Vestmannaeyjum

 

AF vef Bæjarinsbesta 

Innan skamms lýkur 45 ára sögu togarans Páls Pálssonar ÍS í útgerðarsögu Hnífsdals og Ísafjarðar. Nýr Páll er væntanlegur á allra næstu misserum. „Skipið hefur verið til sölu í tvö ár. Við erum ekki alveg búnir að ganga frá sölu en við vonumst til að það skýrist mjög fljótlega,“ segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins – Gunnvarar hf. Hann vill á þessu stigi ekki greina frá væntanlegum kaupanda skipsins. Fyrirtækið hefur fundað með áhöfn Páls og henni kynnt áformin. Einar Valur segir að gangi salan eftir, fari Páll til nýs eiganda um mánaðamótin júní júlí.

Samkvæmt heimildum BB verður Páll seldur til Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum. Vinnslustöðin er með Breka VE, systurskip nýja Páls, í smíðum í Kína.

                      1274 Páll Pálsson Is 102 Mynd þorgeir Baldursson 

 

 

26.05.2017 09:33

Tveir Góðir

  Stefán Geir Jónsson OG Hjalti Hálfdánarsson Mynd þorgeir Baldursson 2017

Þessir tveir höfðingjar sem að ég var lengi með til sjós hafa nú báðir látið af störfum 

á Herði Björnssyni ÞH 260 annar þeirra mun starfa sem vaktmaður hjá Hafnafjarðarhöfn 

 

 

24.05.2017 23:51

2917 Sólberg ÓF 1

Það var mikil gleði i Fjallabyggð um siðustu helgi þegar nýtt skip Ramma HF kom til landsins 

eftir um 2 vikna siglingu frá Tyrklandi þar sem að það var smiðað fjöldi fólks fylgdist með 

þegar skipið sigldi inná Ólafsfjörð uppundir bryggju og þandi skipsflautuna  siðan hélt það 

til Siglufjarðar þar sem að skipið var tollafgreitt en á laugardaginn var móttökuathöfn 

þar sem að skipinu var formlega gefið nafn og blessað Skipstjórar Sólbergs ÓF 1 

eru Sigþór Kjartansson og Trausti Kristinsson og Yfirvélstjóri Þórður Þórðarsson

 meira um þetta i nýjustu Fiskifréttum sem að komu út i dag 

                  2917 Sólberg ÓF 1 á Ólafsfirði Mynd þorgeir Baldursson 

    2917 Sólberg ÓF1 á siglingu fyrir utan Siglufjörð Mynd Þorgeir Baldursson

                               2917 Sólberg ÓF mynd þorgeir Baldursson 2017

            Innilega til hamingju með skipið Mynd þorgeir Baldursson 2017

       ólafur Marteinsson Fræmkvæmdast Ramma tekur á moti Sprignum 

         ólafur ,Svavar, Gunnar, og Ragnar Mynd þorgeir Baldurssson 2017

     Ólafur H Marteinsson Setti Samkomuna mynd þorgeir Baldursson 2017

Þorgerður Katrin Gunnarsdóttir Sjávarútvegsráðherra mynd þorgeir Baldursson 

                    Björn ,sigþór og Trausti mynd þorgeir Baldursson 2017

 Ólafur H Marteinsson og Þorgerður Katrin Gunnarsdóttir mynd þorgeir 2017

                  Fjöldi gesta Skoðaði skipið mynd þorgeir Baldursson 2017

       Jens Garðar Heiðrún Lind og Sigurþór Skipstjóri Mynd þorgeir 2017

              Mikil Traffik við Landganginn Mynd þorgeir Baldursson 2017

           Likan af skipinu kom með heim Mynd þorgeir Baldursson 2017

  Talsverð traffik að skoða skipið Mynd þorgeir Baldursson 2017

 

 

22.05.2017 23:31

2842 Óli Á Stað Gk 99 i fyrsta Róður frá Siglufirði

Hinn nýji Óli Á Stað Gk 99 fór i sinn fyrsta róður að kveldi 20 Mai og það var heppilegt að 

á bryggjunni þegar báturinn var að fara var sjávarútvegsráðherra Þorgerður katrin Gunnarsdóttir 

sem að brást vel við og sleppti springnum þegar haldið var til veiða aflinn i veiðiferðinni var 

um 10 tonn og var uppistaðan þorskur þessu var svo fagnað á bryggjunni með 

tertum og Guðaveigum sem að runnu ljúft ofan i mannskapinn 

Gestur ólafsson einn eigenda Stakkavikur sendi mér nokkrar myndir til birtingar 

og kann ég honum bestu þakkir fyrir afnotin 

        2842 Óli á Stað Gk 99 á útleið i fyrsta róður Mynd þorgeir Baldursson 

                Landað úr Óla Á Stað GK  Mynd Gestur ólafsson 2017

          Óðinn Arnberg  Skipst á Krananum Mynd Gestur Ólafsson 2017

                          Löndun Á siglufirði Mynd Gestur Ólafsson 2017

                Raðað i sig veitingum Mynd Gestur Ólafssson 2017

      Óðinn Arnberg Fær væna tertusneið Mynd Gestur Ólafsson 2017

                             Veisla á bryggjunni Mynd Gestur Ólafsson 2017

22.05.2017 22:45

Hvalaskoðun á Eyjafirði i morgun

Fór  i skemmtilega ferð i morgun Með Hólmasól nýrri tvibytnu Eldingar ekki þurfti að fara langt 

til að sjá fyrsta hvalinn rétt norðan við smábátahöfnina á Akureyri þar sem að tveir 

hnúfubakar léku listir sinar og var ekki annað að heyra á farþegum að þér væru mjög

ánægðir með að sjá hval svona stutt frá bænum siðan var haldið útundir Hjalteyri 

þar sem að sáust nokkrir Hnúfubakar ásamt Hnýsum  sem að léku listir sýnar fyrir Farþegana 

en látum myndirna tala sýnu máli 

                         2912 Hólmasól Mynd þorgeir Baldursson 2017

         Hvalaskoðun við bæjarmörkin mynd þorgeir Baldursson 2017

                    Hnúfubakur i Návigi Mynd þorgeir Baldursson 2017

    Farþegarnir allveg i skýjunum mynd þorgeir Baldursson 2017

                     Sporður á Hnúfubak mynd þorgeir Baldursson 2017

      Litill Skemmtibátur i Hvalaskoðunnn i morgun Mynd þorgeir Baldursson 

 Heitavatns fossinn úr Valaheiðargöngunum skoðaður mynd þorgeir Bald 2017

22.05.2017 21:58

233 Erling KE birjaður á Grálúðunetum

    Skipverjar á Erling Ke 140 gera klárt fyrir Gráluðuveiðar mynd þorgeir 2017

      Netin steinuð niður i körin i bliðunni mynd þorgeir Baldursson 2017

                   233 Erling KE 140 mynd þorgeir Baldursson 2017

 

 

21.05.2017 21:43

1530 Sigurbjörg ÓF 4 á landleið með fullfermi

  1530 Sigurbjörg ÓF 4 á landleið með fullfermi mynd þorgeir Baldursson 2017

21.05.2017 13:59

Beitir NK 123 i flotkvinni á Akureyri

         Beitir Nk 123 i Flotkvinni á Akureyri i gærkveldi Mynd þorgeir Baldursson 

21.05.2017 00:46

233 Erling Ke 140 gerir klárt til grálúðuveiða

 i Gær kom Erling KE 140 til hafnar á Akureyri mér sýndist hann vera að taka netin

um borð svo að væntanlega birjar hann fljótlega á veiðum 

         233 Erling KE140 ex óli Á Stað GK 4 mynd þorgeir Baldursson 2017

19.05.2017 16:09

2917 Sólberg ÓF 1 kemur til hafnar á Siglufirði i morgun

   2917 Sólberg ÓF 1 kemur til Siglufjarðar i morgun mynd þorgeir Baldursson 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 409
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 546
Gestir í gær: 102
Samtals flettingar: 557141
Samtals gestir: 20899
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 06:32:12
www.mbl.is