Færslur: 2010 Apríl

30.04.2010 12:55

2761-Rósin Nýr Hvalaskoðunnarbátur i Reykjavik


                                                       2761-Rósin © mynd Trefjar Högni Bergþórsson 2010

                                 Rósin á Faxaflóa ©mynd Trefjar Högni Bergþórsson

                                  Rósin á fullri ferð ©mynd Trefjar Högni Bergþórsson

Nýr Cleopatra 50 hvalaskoðarbátur afgreiddur í Reykjavík

 

Sérferðir ehf í Reykjavík fengu nú í vikunni afhentann nýjan Cleopatra bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði.

Framkvæmdastjóri Sérferða ehf er Friðfinnur Hjörtur Hinriksson.  Skipstjóri á bátnum verður Ingimar Finnbjörnsson.

 

Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Rósin og er 30brúttótonn. Rósin er af gerðinni Cleopatra 50.

Báturinn hefur leyfi til farþegaflutninga í lengri og skemmri ferðir fyrir allt að 75 farþega.

Farþegasalur er einnig útbúinn fyrir smærri veislur.  Fullbúinn eldunaraðstaða og veitingasala er um borð.  Sérferðir ehf hafa um nokkurra ára skeið sérfæft sig í fuglaskoðunarferðum og námsferðum fyrir grunnskólabörn á vegum Reykjavíkurborgar.  Með þessum nýja bát verður starfsemin víkkuð út og boðið upp á hvalaskoðunarferðir jafnhliða.

 

Vélbúnaður bátsins er af gerðinni Volvo Penta IPS800.

Vélbúnaðurinn saman stendur af tveimur Volvo Penta D11 vélum sem hvor um sig skilar 600hö.  Vélarnar eru tengdar drifum sem jafnframt eru stýrisbúnaður bátsins. 

Samhæfin drifanna gerir að verkum að hægt era ð stjórna bátnum með einkar einföldum og öruggum hætti.

Skrúfur bátsins vísa fram sem gerir að verkum að sjóflæði er óhindrað að þeim.

Hámarksganghraði bátsins er 32 hnútar.

 Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno og Maxsea frá Brimrún.

Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

  Hjörtur Hinriksson

Sími:  869 3150

 TREFJAR LTD

OSEYRARBRAUT 29

220 HAFNARFJORDUR

ICELAND

 


29.04.2010 23:14

688-Arnarborg KE 26


                             688- Arnarborg Ke 26  © Mynd Þorgeir Baldursson

                              688-  Arnarborgin i Dráttarbraut Keflavikur© mynd þorgeir Baldursson
Hvað geta menn sagt um þetta skip það var i eina tið i eigu Rafns H/F i Sandgerði og var gert út á net skipstjórinn hét Einar Öfeigur Magnússon og er nú skipstjóri á hvalaskoðunnar bátum frá Húsavik

28.04.2010 22:32

Fjórar þotur á Akureyrarflugvelli


                        Mikil traffik á Akureyrarflugvelli © Mynd Þorgeir Baldursson 2010
Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd vea mikil traffik á á flugvellinum þegar þar voru saman komnar
þrjár farþegaþotur og ein fragtvél allar voru vélarnar frá Icelandair ein fóru aftur i loftið uppúr miðnættinu en seinni vélin um kl 05 um morgunin þannig að mikið lif hefur verið á flugvellinum

27.04.2010 09:30

Sjávarútvegssýningin i Brussel opnaði i morgun


                       Kælisnigill frá 3X Tecnology © Mynd þorgeir Baldursson
kælisnigill fyrir utan höfuðstöðvar 3x á Isafirði en fyrirtækið hefur selt talsvert af þeim i skip reyndar i minni útgáfum þessi er i höfuðstöfum Brims H/F á Akureyri
Svo virðist sem augu útgerðarmanna séu að opnast fyrir því að gæði verða ekki tryggð nema rétt meðhöndlun eigi sér stað frá upphafi veiða. 3X Technology hefur hannað og sett upp blóðgunar- og kælibúnað í átta skipum þ.a. fjórum innlendum og fjórum erlendum á undanförnum árum þar sem notast er við svokallaða snigiltanka til að tryggja rétta meðhöndlun um borð. Þessi skip eru að öllum stærðum og gerðum og þarna er um að ræða línubáta, netabáta og togbáta sem eru gerð út til veiða á  ýmsum tegundum fiskjar, má þar nefna þorsk, ýsu, steinbít og hake ásamt meðafla af ýmsum tegundum. 
Það er samdóma álit þeirra er taka við hráefni af þessum skipum til vinnslu að þeir hafi ekki séð blæfallegri fisk og má þar vísa í greinar sem skrifaðar hafa verið undanfarið í blöð er fjalla um sjávarútvegsmál. Þeir sem vinna aflann eru einnig sammála um að blóðgunartíminn sem er stýrður í okkar kerfum og því alltaf sá sami, sé lykilatriði auk þess sem rétta kælingin og kælitími sem einnig er stýrt, sé einnig meginatriði en með réttri kælingu er hægt að stjórna ferli dauðastirðnunar og vinna aflann þegar hann er í bestu ástandi til þess sem tryggir minna los og betri nýtingu. 
Nú virðist loks sem framsýnir útgerðarmenn sem sjá virði í bættum gæðum alla leið séu að vakna til lífsins enda hefur reynsla og viðbrögð kaupenda af þessum kerfum verið með því móti að hún getur ekki farið fram hjá þeim sem fylgjast með umræðu um bætt gæði og aukið virði sjávarfangs.

26.04.2010 23:15

Útflutningur á Flugfiski að Norðan


                             Icelandair Cargo  ©Mynd þorgeir Baldursson 2010

                           Boeing þota Icelandair Cargo farin i loftið mynd Þorgeir Baldursson

Útflutningur á ferskum fiski er að komast í samt lag. Flug frá Akureyri um helgina bjargaði talsverðum verðmætum að því er fram kemur á vef RÚV.

Miklu munaði að hægt var að flytja ferskan fisk út frá Akureyrarflugvelli um helgina en ekki var flogið frá Keflavík vegna öskufalls. Nýfiskur í Sandgerði varð fyrir milljóna tjóni þá daga sem ekkert var flogið til Evrópu.Í morgun var gefið út að flug hæfist að nýju frá Keflavík. Verði hægt að fljúga þaðan næstu daga kemst útflutningur á ferskum fiski í samt lag.

Birgir Kristinsson, framkvæmdastjóri Nýfisks í Sandgerði, segir fyrirtækið hafi ekki geta flutt út ferskan fisk í fjóra daga vegna flugbannsins en tjónið sé takmarkað og viðskiptavinir fyrirtækisins hafi skilning á ástandinu.Ástandið lagaðist um helgina þegar hægt var að aka með fiskinn norður og fljúga með hann frá Akureyri til Belgíu.

Mikael Tal Grétarsson, sölustjóri hjá Icelandair Cargo, segir að allt að 120 tonn af ferskum fiski hafi komist úr landi um Akureyrarflugvöll. Ekki hafi þó verið hægt að flytja fragt með farþegafluginu til Glasgow, en flugið frá Akureyri hafi skipt miklu máli. og vonandi sjá flytjendur og framleiðendur
á ferksfiski þarna möguleika á aukinni sókn á erlenda markaði ef að hægt væri að afla galdeyris
fyrir þjóðarbúið þvi að verðmætasköpun i sjávarútvegi er það sem að getur bjargað landinu

26.04.2010 20:54

2691-Sæfari

  Grimseyjarferjan Sæfari ver tekin i slipp i siðustu viku eftir að skipið fékk á sig brot og við það tækifæri var skipið málað  blátt og i litum Samskipa sem að sjá um rekstur ferjunnar hún fór sina fyrstu ferð i morgun svona blá en kemur aftur i slippinn á morgun og þá verður klárað að gera við skemdirnar sem að urðu í brotinu um daginn

22.04.2010 12:50

Gráslebbutúr i Skjálfanda


           Gráslebbunetin dregin © mynd Þorgeir Baldursson 2010

                                      Greitt úr netunum © Mynd þorgeir Baldursson 2010

                                     Baujan Farin © Mynd Þorgeir Baldursson 2010
Skrapp i siðustu viku i gráslebbu veiðiferð með skipverjum á Aron þh 105 hérna má sjá nokkrar myndir og viðtal við skipstjóran Stefán Guðmundsson ásamt myndum  má lesa i Fiskifréttum www.skip.is sem að komu út i gær og einnig er myndaopna i héraðsfréttablaðinu Skarpi á Húsavik www.skarpur.is sem að einnig kom út i gær

21.04.2010 12:38

Leonid Nevaspasskiy M-0022.


                            Leonid Nevaspasskiy M-0022 © Mynd þorgeir Baldursson

                                    Rússneska Skjaldarmerkið © mynd þorgeir Baldursson
Þessi rússi kom til Akureyrar i morgun en hann hafði fengið flottrollið  i skrúfuna á karfamiðunum
útá Reykjaneshrygg i siðustu viku og var farin að leka með legu i skutpipu svo að eitthvað var ða gera til að þétta lekann spurning hvort að hann þarf að fara i kvinna














21.04.2010 11:51

2154-Mars RE 205


                             Klárir i Brottför ©Mynd Jón Páll Ásgeirsson

                                 Endunum sleppt © Mynd Jón Páll Ásgeirsson

                                2154-Mars RE 205 Mynd Jón Páll Ásgeirsson 2010
Mars RE lét úr höfn i Reykjavik um kl 16 i gær undir skipstjórn Jóhanns Gunnarssonar og voru þá
meðfylgjandi myndir teknar skipið er væntanlegt til hafnar i byrjun næstu viku

20.04.2010 22:56

Góður túr hjá Björgvin EA


                           1937- Björgvin EA 311© Mynd þorgeir Baldursson 2010
Björgvin ea kom til Akureyrar i morgun eftir 21 dag á veiðum aflaverðmætið um 80 milljónir hérna má sjá skipið á siglingu á Eyjafirðinum i morgun 

19.04.2010 22:16

Neptune EA 41


                                             2266-Neptune EA 41 Mynd þorgeir Baldursson
Rannsóknarskipið Neptune EA 41 hélt frá Akureyri seinnipartinn i dag áleiðis til verkefna erlendis  sem að útgerð skipsins hefur unnið að undafarið ár og hefur skipið verið uppundir nýju mánuði i einu i úthaldinu annað skip útgerðarinnar Póseidon EA 303 mun verða klárt um næstkomandi mánaðarmót og halda þá til verkefna erlendis eins og Neptune en mikill og flókin tækjabúnaður er i skipunum og hefur miklum fjámunum verið varið til þess að gera skipin sem best úr garði til að sinna þeim verkefnum sem að þeim hefur verið falin

19.04.2010 21:20

Sæfari fékk á sig brot


                                     2691- Sæfari Mynd þorgeir Baldursson 2010
Það óhapp varð um hádegsbilið i dag að Grimseyjaferjan Sæfari fékk á sig hnút þegar skipið átti
eftir um 10 milna siglingu til Grimeyjar við það brotnuðu rúður i farþegasal skipsins og sjór flæddi inn en tveir farþegar sem að  um borð voru sakaði ekki þvi að þeir voru i koju skipið kom til Akureyrar nú seinnipartinn og var tekið upp hjá slippnum um kl 18/30 og verða skemmdir skoðaðar á morgun svo verður skipið málað auk hefbundinna slippverka

18.04.2010 10:50

Húni 2 og vatnaflugvél


                            Húni og Vatnaflugvél © mynd þórður Jónsson 2009

17.04.2010 22:26

Meiri fréttir af Rússunum


                                  Flottrollið tekið um borð © mynd Magnús Jónsson

                                     flottroll á leið um borð © Mynd Magnús Jónsson

                              Tromman og billinn © Mynd Magnús Jónsson

                        Stykkin sem að fóru i skrúfuna © Mynd Magnús Jónsson

                         Ekki litur þetta nú vel út © Mynd magnús Jónsson

                         Leonid Nevaspasskiy M-0022.© Mynd Magnús Jónsson


Hérna koma svo smá upplýsingar um skipið sem að Óskar Franz fann fyrir mig

kann ég honum sem og Magnúsi ljósmyndara bestu þakkir fyrir þessar upplýsingar


smíðaður 1981. hjá Stocznia Gdanska í Gdansk í Póllandi og hafði sm.no.408/15.

lengd 93.90 m. og breidd 15.90 m. og mælist 2932 t.

en trollið skemmdist, það var notað en búið að setja nýtt í það og það fór í skrúfuna sem var framalega í trollinu og það lekur með stýrislegunum og verið að reyna að laga það á floti. Komst sjálfur í land. Stykkin sem eru á bryggjuni voru í skrúfunni.





             

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 641
Gestir í dag: 99
Flettingar í gær: 546
Gestir í gær: 102
Samtals flettingar: 557373
Samtals gestir: 20942
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 11:09:30
www.mbl.is