Færslur: 2009 Maí

31.05.2009 15:57

Tveir með fullfermi

Í vetur þegar aflahrotan gekk yfir mið Sandgerðisbáta var þessi mynd tekin af Mugg KE 57 og Von GK 113 er þeir komu samtímis inn í Sandgerðishöfn með fullfermi.


              2733. Von GK 113 og 2771 Muggur KE 57 með fullfermi © mynd Emil Páll 2009

31.05.2009 15:53

Clinton og Draupnir

Axel E spurði fyrir stuttu síðan um Clinton GK og hér birtum við mynd af honum þar sem þeir standa tveir undir húsvegg í Sandgerði, Clinton og Draupnir


                       Clinton GK 46 og Draupnir GK 3 © mynd Emil Páll 2009

31.05.2009 12:05

Gamalt vaktskip


                  Gamalt Vaktskip i Færeyjum © Mynd Þorgeir Baldursson 2009
Rakst á þennan gamla varðbát i höfninni i Þórshöfn um daginn veit einhver eitthvað um hann

31.05.2009 00:04

2 Tappatogarar: Bjarnarey og Sigurður Bjarnason

Fyrir um hálfri öld voru smíðaðir 12 lítil togskip fyrir Íslendinga í Austur-Þýskalandi. Skip sem mældust 249 tonn að stærð og fengu fljótt gælunafnið "Tappatogari". Hér birtum við myndir frá Snorra Snorrasyni af tveimur þessara systurskipa.


                                                  198. Bjarnarey NS 7
Þetta skip varð fljótlega Sólrún ÍS 399 og síðan selt til Svíþjóðar í des. 1979.


                       181. Sigurður Bjarnason EA 450 © myndir Snorri Snorrason
Síðar Hafnarnes SI 77, Mánatindur SU 95 og Mánatindur GK 240. Talinn ónýtur og tekinn af skrá í okt. 1983.

30.05.2009 12:39

Eimskip í Færeyjum

Skip Eimskips hafa fasta viðkomu í Færeyjum og tók Þorgeir Baldursson þessar myndir af tveimur af skipum Eimskips í eyjunum í síðustu viku.


                                           Goðafoss með heimahöfn í ST. Johns

                             Selfoss © myndir Þorgeir Baldursson í maí 2009

30.05.2009 09:37

Liljan


                                6763. Liljan © mynd Emil Páll 2009

30.05.2009 09:34

Lárus


                                       7071. Lárus © mynd Þorgeir Baldursson 2009

30.05.2009 09:32

Jón Forseti


                       7276. Jón Forseti © mynd Þorgeir Baldursson 2009

30.05.2009 09:30

Hnoss


                                    6654. Hnoss © mynd Emil Páll 2009

30.05.2009 09:27

Glódís


                                      6863. Glódís © mynd Emil Páll 2009

29.05.2009 23:20

2411-Huginn VE 55


            Skipstjórarnir Gylfi Viðar og Guðmundur Huginn © mynd þorgeir Baldursson 2009

                      Skeifan i Huginn  ©mynd þorgeir Baldursson 2009

                   Svo var bakkað frá slippkantinum ©mynd þorgeir baldursson 2009

                  og skipinu snúið mynd þorgeir Baldursson 2009
Huginn VE 55 lét úr höfn á Akureyri um kl 22/10 i kvöld eftir aða hafa verið i slipp um 3 vikur
helstu breytingar voru i brú skipsins þar sem að nánast öllum túbuskjám var hennt i land og settir flatskjáir i staðinn ennfremur voru hefðbundin verk svo sem málingarvinna og það sem að flokka má undir eðlilegt viðhald

29.05.2009 21:58

Ögnin hans Svenna rakara






Gunnar Th. hefur verið iðinn við kolann, að færa okkur öðruvísi frásagnir úr heimi bátaútgerðar og hér bregst honum ekki bogalistin, frekar en áður og birtum við nú myndasyrpu og skemmtilega frásögn sem fylgdi með:

Svenna rakara langaði í bát, enda gamall sjómaður frá fyrri tíð og alla tíð í anda. Nokkrir bátar komu til greina, en enginn féll þó fullkomlega að hugmyndum Svenna.
Ég frétti af leitinni og fékk að taka þátt í henni. Vestur á Ísafirði vissi ég af Ögninni. Ögnin er einn af gömlu léttabátunum af síldinni, norsksmíðaður súðbyrðingur, brjóstamikill og sterkbyggður gaflbátur með hoggin bönd. Það eru ekki ýkja mörg ár síðan völundurinn Óli á Árbæ endurbyggði bátinn og breytti honum úr opnu leikfangi í fullbúinn fiskibát. Allt handbragð á bátnum var með merkjum Óla og bæði skrokkur og vélbúnaður í prýðis ásigkomulagi. Óli seldi bátinn þegar hann lauk endurbyggingu GUÐNA 'IS , frá Ingjaldssandi, og nú var Ögnin aftur föl fyrir skikkanlegan pening en staðsetningin var böggullinn sem fylgdi skammrifinu. Strandferðaskip heyra sögunni til og flutningur báts með venjulegum flutningabíl milli landshluta er illyfirstíganlegur venjulegu fólki vegna kostnaðar.
Svenna rakara leist hins vegar strax afskaplega vel á Ögnina þegar hann sá hana á mynd, og það leið ekki á löngu þar til kaup voru gerð. Þetta mun hafa verið uppúr síðustu áramótum og strax var farið að kanna mögulegar flutningsleiðir suður.
 
Ég var á ferð á Ísafirði undir lok febrúar og myndaði þá bátinn í bak og fyrir. Myndunum var svo komið til rakarans á tölvuformi. Þær yrðu svo að duga þar til flutningur fengist. Á rakarastofunni við Laugaveg 168 hefur mikið verið skrafað, skeggrætt og skipulagt þennan vetur.........
 
Nú fyrir skömmu gengu greiðviknir menn í verkið, og fóru vestur á stórum pallbíl með enn stærri kerru. Á hana var svo Ögninni snarað í vagninum og munaði lítið um. Ferðin suður gekk framar vonum, og nú stendur Ögnin í hlaðinu hjá Svenna rakara, sem notar hvern sólargeisla til að skrapa og mála. Sá sem þetta ritar fær þann heiður að leggja hönd á vélbúnaðinn, og 1. stýrimaður hefur verið ráðinn Sverrir Guðmundsson, fyrrum skipstjóri, útgerðarmaður, fiskverkandi og verslunarmaður. Ég get aðeins sagt fyrir sjálfan mig, en þykist þó vita að það sama eigi við um fleiri,  að það er bæði heiður og ánægja að fá að taka þátt í svona verkefni frá upphafi, og fylgjast með framvindunni.
 
Þrátt fyrir kreppu, mótbyr og dýrtíð ríkir allavega hamingja á einu heimili í Mosó.......
 
(myndir af sjósetningu koma síðar)
 
Kv. Gunnar Th.





 Ég gleymdi að nefna að Ögnin er aðeins 5.70 að lengd og því undir skráningarstærð. Óli á Árbæ skráði hana hins vegar sem fiskibát, með skipaskrárnúmerinu 9809, og ÍS 164. 
 
Kv. Gunnar Th.




        9809. Ögnin ÍS 164 © myndir Gunnar Th. 2009 (síðustu tvær myndirnar eru símamyndir í gegnum kapal en hinar eru ljósmyndir).

29.05.2009 09:22

Seldur til Reykjavíkur

2195. Helgi GK 404 sem verið hefur lengi á söluskrá hefur nú verið seldur til Reykjavíkur og er kaupandi hans Guðmundur Tryggvi Ásbergsson.


                                 2195. Helgi GK 404 © mynd Emil Páll 2009

29.05.2009 01:47

Plastbátar i Færeyjum


                              7474-Brimill SH 31 © MYND Alfons Finnsson 2008

                           Færeyskur trillukarl © mynd þorgeir Baldursson 2009

                         TN 1367 (EX Brimill SH ) © MYND ÞORGEIR BALDURSSON 2009
Þeir eru ófáir bátanir sem að hafa verið seldir frá Islandi til Færeyja undanfarna mánuði og hér að ofan má sjá einn þeirra við bryggju i þórshöfn i siðustu viku þegar siðuritari var þar á ferð á gráu pöllunum við hlið bátsins geta bátseigendur selt fisk og það nýtti sér þessi útgerðar maður sér til hinns ýtrasta bæði með sigin fisk og nýja þorsk ásamt öðru góðgæti úr hafinu

28.05.2009 22:58

Hólmavík seinni hluti

Um síðustu helgi birtum við hér myndir sem Gunnar Th. tók á Hólmavík á fimmtudag í síðustu viku. Þær myndir var aðeins fyrri hlutinn og nú birtum við seinni hlutann af pakkanum sem hann sendi okkur.


                                                     6973. Hulda


                                              6529. Steinunn


                               6341. Ólafur ST 52 - ósköp ljótur greyið


                                   Þessi er nafnlaus og því óþekktur

     2696. Hlökk ST 66 og 2571. Guðmundur Jónsson ST 17 © myndir Gunnar Th. í maí 2009
Um báða þessa báta hefur verið fjallað um áður hér á síðunni og þá sýndar af þeim stærri myndir, hvorum fyrir sig.

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 724
Gestir í dag: 109
Flettingar í gær: 546
Gestir í gær: 102
Samtals flettingar: 557456
Samtals gestir: 20952
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 12:39:32
www.mbl.is