Færslur: 2011 Mars

31.03.2011 18:06

7447- Hafaldan SI 7


                                       7447-Hafaldan SI 7 © Mynd þorgeir Baldursson 2011

                           Hafaldan  SI 7 © Mynd þorgeir Baldursson 2011
Hún er glæsileg Hafaldan SI 7 eftir breytingarnar hjá Baldri á Hliðarenda og sonum hans  Báturinn var dekkaður luningar hækkaðar upp og ásamt þvi að Báturinn var almálaður allar þessar breytingar munu  auka til muna  alla vinnuaðstöðu á dekkinu

30.03.2011 22:48

Kolbeinsey EA 352


                                    2499- Kolbeisey ÞH 352 © Mynd þorgeir Baldursson 2011
Guðlaugur Óli Þorláksson útgerðarmaður á Kolbeinsey EA og Hafborgu EA var að fara
úti Grimsey i morgun með viðkomu á Dalvik og Fékk ég hann til að taka smá hring fyrir mig
sem að var mjög auðsótt mál báturinn mun væntanlega veiða úr strandveiðikvóta landsmanna
þegar þær veiðar hefjast

30.03.2011 20:13

Rósa i Brún ÞH 50


                             6347-Rósa i Brún ÞH 50 © Mynd Þorgeir Baldursson 2011
Strákarnir á Rósu i Brún þh 50 þeir Aðalsteinn Tryggvasson og Viðir Egilsson héldu út frá Akureyri i morgun til að leggja Gráslebbunetin og um borð voru um eitthundrað net ásamt viðeigandi búnaði
það er fyrst nú sem að gefið hefur vegna til að leggja vegna þrálátra bræla sem að sjómenn eru að verða búnir að fá sig fullsadda af

29.03.2011 16:51

Nýr bátur sjósettur á Patreksfirði


                                    Fönix Ba 123 ©mynd Magnús Ó Hansson 2011
                         Gert klárt fyrir sjósetningu © mynd Magnús Ó Hansson 2011

                            Séð Frameftir Fönix © mynd Magnús Ó Hansson 2011

                        2811- Fönix Ba 123 kominn á flot © mynd Magnús Ó Hansson 2011

Nýr bátur var sjósettur á Patreksfirði á sunnudaginn var. Báturinn heitir Fönix BA - 123 og er 15  brúttótonn.  Skelin var keypt hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði en smíði hans var fullkláruð á Patreksfirði í vetur. Eigandi bátsins er Hafþór Jónsson útgerðarmaður á Patreksfirði. Hafþór reiknar með að báturinn fari sína fyrstu veiðiferð á grásleppuna núna um komandi vertíð. Ætlunin er í framhaldinu að gera hann út á línuveiðar.

28.03.2011 20:10

Aukning aflaheimilda er hraðvirkasta hagvaxtartækið sem landsmenn hafa í höndunum


          Stefán Guðmundsson © mynd þorgeir Baldursson 2010
Hérna heldur Stefán Guðmundsson skipstjóri á Aron ÞH 105 á vænum þorski Ca 25 kiló

Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður Samfylkingarinnar segir að líklega sé meirihluti fyrir því á Alþingi að bæta við aflaheimildum í nokkrum helstu botnfisktegundunum, einkanlega þó þorski. Hann sé enda farinn að vaxa úr sér svo horfir til vandræða í fiskverkun víða um land.
 

Þetta kemur fram pistli Sigmundar á vefsíðu sinni og þar segir ennfremur: "Ég hef talað fyrir því að auka aflaheimildir við þær aðstæður sem nú ríkja í hafi og efnahag. Sjómenn og fiskverkendur, sem ég er í ágætu samtali við, eru einhuga um að aldrei hafi fiskgengd verið jafn mikil það sem af er þessari öld - og pundið aldrei verið þyngra. Við þessar aðstæður er ekki ónýtt að spyta sosum eins og 20 milljörðum inn í hagkerfið með yfir 20 þúsund tonna aukningu heimilda - og binda þau jafnvel við landvinnslu sem skilaði yfir 1000 störfum á stundinni. Aukning aflaheimilda er hraðvirkasta hagvaxtartækið sem landsmenn hafa í höndunum. Og þörfin er skýr; aukinn hagvöxtur eða aukinn niðurskurður. Við eigum að taka tillit til reynslu og vísinda í auðlindamálum okkar. 25 þúsund tonna aukning aflaheimilda, jafnvel næstu 3 árin, eru innan áhættumarka - og viðheldur vexti stofnsins. Ég hyggst spyrja hæstvirtan sjávarútvegsráðherra á Alþingi í dag hvað tefji för í þessu efni," segir Sigmundur.  



28.03.2011 15:09

Ásta B i Tromsö


                       Ásta B og Bjarni Sigurðsson i Tromsö © Mynd Þorgeir Baldursson 2011

                           Ásta B við bryggju i Tromsö © mynd þorgeir Baldursson  2011
Hérna má sjá aflaskipið Ástu B i höfn i Tromsö  fyri stuttu siðan og hér má sjá nánari upplýsingar um fyrirtækið sem að gerir út bátinn  www.eskoy.no

27.03.2011 12:44

Mark Liubovsk 2 M-0347


                     Mark Liubovsk 2 M-0347 (ex Fengur HF 89) © Mynd þorgeir Baldursson 2011
Þetta skip er nú loksins komið i fulla drift og er i eigu Rússneskra aðila var að landa i Tromsö
um daginn ekki veit ég um afla hjá þeim nokkur fleiri rússnesk skip voru þarna að veiðum og munu
bitast myndir af þeim innan skamms hér á siðunni

27.03.2011 12:27

Kapitan Naumov brælusyrpa


                                        Kapitan Naumov ©mynd þorgeir 2011

                                         Stungið sér i gegn ©Mynd þorgeir 2011

                                    Stefnið i Gegn um skaflinn © Mynd þorgeir 2011

26.03.2011 22:10

Kapitan Naumov


                                           Kaptein Naumov © mynd þorgeir Baldursson 2011
Þessi Rússneski togari var á siglingu i Norsku Landhelgnni i siðustu viku
 Hann er 60 metra langur og 11 metra breiður Hvaða systurskip á hann og hvar er hann smiðaður

24.03.2011 16:21

Erlendur togai i brælu

                                 Mtr Harvester PD 98 Peterhead  ©Ljósmyndari Óþekktur
Þessi mynd er fengin af fiskerii og sjófart og sýni vel hversu hættlegt er að stunda sjómennsku við erfiðar aðstæður enda getur Ægir skvett hraustlega úr sér ef að honum þykir þess þurfa

22.03.2011 02:24

Tveir Grænlenskir


                          Sisimiut GR 6-500 (Ex Arnar HU 1 ) mynd Þorgeir Baldursson 2011

                             Polar Princess GR 14-49 Mynd þorgeir Baldursson 2011
Mikill fjöldi erlendra togara hefur verið að veiðum i Norskri landhelgi undanfarið  og hefur mátt sjá
þar bæði Grænlenska Rússneska Þýska Islenska ásamt ef til vill einhverjum fleiri þvi að mikil skipa umferð er við strendur Noregs bæði fiski tank og flutningaskipa af öllum stærðum og gerðum  mun ég á næstu dögum setja inn efni frá þessum tveimur túrum sem að við höfum farið þangað ásamt
mannlifsmyndum af sjómönnum i leik og starfi

18.03.2011 14:32

Svipmyndir úr Norsku lögsögunni


                                          Þór HF 4 ©  Mynd Þorgeir Baldursson 2011                                        Venus HF 519 © Mynd Þorgeir Baldursson 2011

                                    Málmey SK 1 © Mynd þorgeir Baldursson 2011

                           Norskur Lundi i heimsókn © mynd þorgeir Baldursson 2011

                        Svo var farið að bæta trollið © mynd þorgeir Baldursson 2011

                          OG dagurinn endaði i spilavist © mynd þorgeir Baldursson 2011
Hérna koma nokkra myndir sem að ég tók i siðasta túr hérna og er ekki best að myndirnar tali sýnu máli hvað finnst ykkur lesendur Góðir

18.03.2011 13:16

Ný Cleopatra 31 til Hólmavíkur


                                     2806- Herja ST 166 © Mynd Högni Bergþórsson

Ný Cleopatra 31 til Hólmavíkur

 

Útgerðarfélagið Hlökk ehf á Hólmavík fékk núna á dögunum afhentann nýjan bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði.

Að útgerðinni stenda Ingvar Pétursson og Bryndís Sigurðardóttir.

 Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Herja ST-166.  Báturinn er af gerðinni Cleopatra 31 í nýrri útgáfu.  Fyrir á útgerðin anna bát Hlökk ST-66 af gerðinni Cleopatra 38.

Nýji báturinn er 8.5brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu.  Báturinn er einnig útbúinn til grásleppu og handfæraveiða.  Línuspil er frá Beiti og netabúnaður frá Rapp.  Báturinn mun byrja á grásleppuveiðum núna fram eftir vori.

Í bátnum er vökvakerfi tilbúið til línuveiða. 

 Aðalvél bátsins er af gerðinni Isuzu 6HE1TCX 370hp tengd ZF gír.

Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno frá Brimrún.

Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

 Rými er fyrir 12-14stk 380lítra kör í lest.  Svefnpláss er fyrir 2-3 í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél og örbylgjuofni. Setkrókur er í lúkar og stólar fyrir skipstjóra og háseta í brú.Heimild www.trefjar.is

 


17.03.2011 01:45

Sigurbjörg ÓF 1 i brælu


                                    1530  Sigurbjörg ÓF 1 © Mynd þorgeir Baldursson 2011

                                       Sigurbjörg ÓF 1 © Mynd Þorgeir Baldursson 2011

                              Sibbann i meira pusi© Mynd þorgeir Baldursson 2011

                               djúpir öldudalir i Norsku lögsögunni ©mynd þorgeir Baldursson
Sigurbjörg ÓF 1 sem að er i eigu Ramma á siglufirði hélt af stað heimleiðis seinnipartinn i gær en þá var skipið búið að fylla sig alls um 11000 kassa sem að gera um 600 tonn uppúr sjó aflaverðmætið er um 150 milljónir þetta er annar túrinn sem að skipið fer i norsku lögsöguna á þessu ári auk Sigurbjargar Óf 1 eru Sólbakur EA 1 á veiðum lika en hann fiskar i is i rússnesku lögsögunni var Gnúpur GK að klára sinn kvóta og hélt hann heimleiðis i dag veðráttan á veiðislóðinni
er allveg sérkapituli fyrir sig einkennist að mikilli brælu og þungum sjó sem að gerir alla vinnu mun erfiðari en ella og virðist litið lát á hver lægðin á eftir annari svo að ekki sér högg á

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 641
Gestir í dag: 99
Flettingar í gær: 546
Gestir í gær: 102
Samtals flettingar: 557373
Samtals gestir: 20942
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 11:09:30
www.mbl.is