Færslur: 2009 Júní

30.06.2009 14:55

Þórir SF 77 kominn heim

Hinn nýi Þórir SF 77 kom í dag til heimahafnar á Hornafirði eftir langa siglingu frá smíðastað. Við komu hans tók Andri Snær, þrátt fyrir þokuna, eftirfarandi myndir fyrir okkur, en á móti bátnum tóku aðrir bátar frá Skinney-Þinganesi hf


                 Frá hópsiglingunni inn til hafnar


                                 2731. Þórir SF 77 á leið til Heimahafnar á Hornafirði


   Skipafloti Skinneyjar-Þinganess hf við bryggju á Hornafirði, fánum prýddir. F.v. Skinney SF 20, systurskipið Þórir SF 77, Steinunn SF 10 og Hvanney SF 51 © myndir Andri Snær

30.06.2009 00:40

Fallegir færeyingar

Hér sjáum við fimm færeysk skip, sem eru smíðuð með gamla laginu, þó þau séu misjafnlega gömul. Tvö þeirra þekkjum við, en ekki hin fimm. Myndirnar eru allar teknar af Þorgeiri Baldurssyni í ferð hans til Færeyja í maí sl. Þá hefur komið svar við einu sem við þekktum ekki áður.


    Westward HO  TN 54. Þetta skipi er meira en aldar gamalt, smíðað í Grimsby 1884 og hét fyrstu árin eða til 1908 Víking en þá fékk það þetta nafn og hefur haldið því síðan.


  Sjóberið FD 115. Smíðað í Skála 1917 og hefur borið borið nöfnin: Líðarfossur, Sæurðardrangur, Kedron og Sjóberið.


   Það eina sem við vitum um þennan er að hann er frá Þórshöfn og hefur einkennisstafina TN 1353


                               Þessi er trúlega ekki gamall? en hann var í Þórhöfn


           Þessi fallegi bátur var einnig í Þórshöfn, en við vissum engin deili á honum
Samkvæmt svari hér fyrir neðan heitir þessi Thorshavn, var notaður hér áður fyrr til að flytja embætismenn á milli eyjana. Núna mest notaður í sjóstangveiði þegar merka gesti ber að garði. Miðað við þessar upplýsingar er hann smíðaður í Fredrikssund í Danmörku 1940 og hefur síðan þá borið þetta sama nafn.
                                 © myndir Þorgeir Baldursson í maí 2009

29.06.2009 23:35

Aðgerðarvél um borð i Sólbak EA 1


                                 Róbert Sverrisson mynd þorgeir Baldursson júni 2009
Þau eru ófá handtökin þegar kemur að þvi að raða ýsunni i aðgerðarvélina en þess má geta að um borð eru 2 stykki af þessum vélum sem að afkastavel i góðu fiskerii

29.06.2009 15:04

Glófaxi VE 300



Bátur þessi er smíðaður í Boizenburg í Austur-Þýskalandi 1965, yfirbyggður og lengdur í Danmörku 1977.
Hann hefur borið eftirtalin nöfn: Krossanes SU 320, Hilmir KE 7, Bjarni Ásmundar ÞH 197, aftur Hilmir KE 7, Begur II VE 144, Bergur VE 44, Arnþór EA 16 og núverandi nafn sem er Glófaxi VE 300.


                                968. Glófaxi VE 300 © myndir Emil Páll í júní 2009

29.06.2009 00:16

Endurspeglun


                    Endurspeglun sl. sunnudag © mynd Emil Páll í júní 2009

29.06.2009 00:02

Márítanía


  
                                               © mynd einn af velunnurum síðunnar

28.06.2009 10:27

Sjórinn heillar

Í góða veðrinu undanfarna daga hefur sjórinn heillað margan landkrappan, sem hefur notið sín í leikjum á haffletinum. Hér birtum við myndir sem teknar voru við slíka iðju í Hafnarfirði, Njarðvík og Sandgerði.


                                                       Hafnarfjörður


                                                               Njarðvík


                                    Sandgerði © myndir Emil Páll í júní 2009

28.06.2009 00:28

Miðvík


                                      7524. Miðvík © mynd Emil Páll í júní 2009

28.06.2009 00:24

Brendan FD 1258, í Skála í Færeyjum


     Skemmtibáturinn Brendan FD 1258 í Skála í Færeyjum © mynd Þorgeir Baldursson í maí 2009

28.06.2009 00:20

Regina Del Mar


                                Regina Del Mar © mynd Emil Páll 2009

28.06.2009 00:15

Óþekkt skúta frá Þórshöfn í Færeyjum


               Skúta frá Þórshöfn í Færeyjum © mynd Þorgeir Baldursson í maí 2009

27.06.2009 10:00

Finnbjörn ÍS 68


         1857. Finnbjörn ÍS 68 ex Von RE 3, nú með heimahöfn á Súðavík © mynd Emil Páll í júní 2009

27.06.2009 08:39

84 tímar í gúmíbáti

Nú stendur yfir svokallað bátamaraþon hjá Unglingadeildinni Kletti, sem er unglingadeild Björgunarsveitarinnar Suðurnes. Maraþonið hófst á fimmtudag og ætla unglingarnir að halda til í gúmmíbjörgunarbáti í höfninni í Njarðvík í 84 klukkustundir. Áður en ævintýrið hófst söfnuðu ungmennin áheitum og eru að safna fé fyrir starfsemi deildarinnar.


    Úr Njarðvíkurhöfn í gærkvöldi,  unglingarnir í gúmíbátnum framan við Örn KE 14 © mynd Emil Páll í júní 2009 

27.06.2009 00:29

Rán TG 753




    Rán TG 753 í Thorshavn Skipasmiðja í Færeyjum © myndir Þorgeir Baldursson í maí 2009
Togarinn Rán hefur borið þetta nafn síðan 2004 og er frá Vágur í Færeyjum, en skipið er smíðað í Álasundi í Noregi 1971 og hefur borið nöfnin: Sjúrðaberg, Enniberg, Antuut, Ljósafell og Rán. Núverandi eigandi er Rán Sp/f í Vágur.

27.06.2009 00:23

Kiel NC 105


                   Kiel NC 105 í Hafnarfirði sl. fimmtudag © mynd Emil Páll í júní 2009
Togari þessi er smíðaður í Hamborg í Þýskalandi 1973 og er í eigu  DEUTSCHE FISCHFANG UNION í  CUXHAVEN

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 694
Gestir í dag: 108
Flettingar í gær: 546
Gestir í gær: 102
Samtals flettingar: 557426
Samtals gestir: 20951
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 11:52:19
www.mbl.is