28.12.2020 00:08Skipverjar láta gott af sér leiðaSkipverjar láta gott af sér leiða23.12.2020 Skipverjar á Björgu EA 7 skoruðu á áhafnir annarra skipa Samherja að styrkja Jólaaðstoðina í Eyjafirði mynd Samherji / þorgeir Baldursson Skipverjar á skipum Samherja hafa gefið vel á aðra milljón króna til góðra málefna fyrir þessi jól. Stærstur hluti fjárhæðarinnar rann til Jólaaðstoðarinnar sem styrkir 300 einstaklinga og fjölskyldur á Eyjafjarðarsvæðinu. Áhafnir skipa Samherja hafa mörg undanfarin ár tekið sig saman og látið fjármuni af hendi rakna til góðra málefna. Hafa mörgum góðgerðarfélögum því verið færðar myndarlegar peningagjafir á síðustu árum. Að þessu sinni var það áhöfnin á Björgu EA 7 sem átti frumkvæðið að því að hvetja aðrar áhafnir til að styrkja góð málefni fyrir jólin. „Margir skipverjanna á Björgu voru áður á Oddeyrinni og við höfum reglulega gefið fé í góð málefni fyrir hátíðarnar. Það kom hugmynd frá einum skipverja hvort það væri áhugi fyrir því að styrkja ákveðið verkefni. Í kjölfarið skoruðum við á áhafnir annarra skipa hjá Samherja. Það var bara gert í gegnum tölvupóst og það var alls staðar vel tekið í þessa hugmynd,” segir Árni Rúnar Jóhannesson, stýrimaður á Björgu EA 7.
Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald-1@simnet.isHeimilisfang: Móasiða 4f AkureyriStaðsetning: AkureyriHeimasími: 4626947Um: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1490 Gestir í dag: 257 Flettingar í gær: 2121 Gestir í gær: 419 Samtals flettingar: 10566265 Samtals gestir: 1469285 Tölur uppfærðar: 4.3.2021 21:50:37 |
© 2021 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is