21.11.2020 13:40Mokafli þegar veður leyfir
Vigri RE er að nálgast tíu þúsund tonna heildarafla á árinu. Slík afköst á frystiskipi standa og falla með afburða góðri áhöfn, að sögn skipstjóra.
„Við erum vestur í kanti vestan við Halann og hér hefur verið mokafli undanfarna þrjá sólarhringa. Nú er veður tekið að versna og það þarf að hafa fyrir hlutunum. Við erum komnir með um 920 tonna afla í túrnum en við eigum að vera komnir í höfn í Reykjavík nk. mánudag.” „Nú erum við á höttunum eftir ufa og aflinn hér í kantinum hefur verið stórufsi og vottur af ýsu með. Þegar aflabrögðin voru best stjórnaði vinnslugetan alveg ferðinni. Við vorum t.a.m. með rúmlega 70 tonna afla í gær og réðum ekki við meir,” segir Árni en hann segir að þorskurinn virðist halda sig austar en Vigri hafi fengið ágætan þorskafla á Þverálshorni og Strandagrunni á dögunum.Þetta segir Árni Gunnlaugsson, skipstjóri á frystitogaranumVigra RE, í viðtali við heimasíðu Brims en skipið fór í veiðiferðina 21. október. Afla var millilandað í Reykjavík 4. nóvember en síðan hefur skipið verið á sjó. Að sögn Árna er mikið líf á Vestfjarðamiðum. Víða hafi orðið var við loðnu og fiskurinn hafi nóg að éta. „Ég er mjög sáttur við árið. Heildaraflinn hjá okkur er að nálgast tíu þúsund tonn. Þetta hefði verið óhugsandi ef ekki kæmi til afburðagóð áhöfn,” segir Árni í viðtalinu.
Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 2521 Gestir í dag: 135 Flettingar í gær: 3321 Gestir í gær: 184 Samtals flettingar: 600039 Samtals gestir: 25056 Tölur uppfærðar: 20.4.2024 14:54:47 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is