19.10.2024 00:06

Gullver Ns i bræluskit á Austfjarðamiðum

                           1661 Gullver Ns 12 i bræluskit á Austfjarðamiðum mynd þorgeir Baldursson 

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til löndunar á Seyðisfirði á þrijudaginn. Afli skipsins var 115 tonn, mest þorskur og ýsa.

Þórhallur Jónsson skipstjóri segir að túrinn hafi byrjað illa en endað vel. “Við reyndum ýmislegt í þessari veiðiferð með misjöfnum árangri.

Við byrjuðum á að fara suður á Stokksnesgrunn að leita að ufsa og karfa en þar var hreint út sagt ekkert að hafa.

Síðan var farið á Lónsbugt og Lónsdýpi og einnig á Papagrunn og það var nánast sama sagan. Þetta leiddi til þess að fyrsti eini og hálfi sólarhringurinn skilaði afskaplega litlu.

Þá tókum við hol á Örvæntingarhorni og þar fékkst þorskur en hann var ekki góður og því var ekki lengur verið þar.

Að þessu loknu var haldið á Skrúðsgrunn og þar fengum við ýsu. Leiðin lá síðan á Tangaflakið þar sem stutt var stoppað áður en farið var í Héraðsflóann og á Glettinganesflakið.

Þar var síðan restað í ýsu og þorski. Það var kaldafýla allan túrinn en engin ástæða til að kvarta mikið yfir veðrinu.

Eins og sést á framansögðu var ýmislegt reynt í þessum túr og þegar upp var staðið var hann bara ásættanlegur og við komum með fullt skip að landi,” segir Þórhallur.

                                     Strákarnir á Gullver  Ns 12  taka trollið mynd þorgeir Baldursson 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 300
Gestir í dag: 50
Flettingar í gær: 3663
Gestir í gær: 58
Samtals flettingar: 934759
Samtals gestir: 46543
Tölur uppfærðar: 22.10.2024 03:47:30
www.mbl.is