04.07.2025 00:12

Kleifarberg RE 70 á leið i Pottinn

Mikið aflaskip verður rifið

                                                   Mars tilbúinn í dráttinn til Noregs. FF MYND/JÓN PÁLL

                                             1360.  Kleifarberg  RE 70 mynd þorgeir Baldursson 2018

Deila

Undirbúningur hefur staðið að undanförnu að því að draga Mars RE, áður Kleifaberg RE og þar áður Engey RE 1, til Noregs þar sem þetta 51 árs gamla fræga aflaskip verður rifið niður í frumeindir.

Skipið var smíðað fyrir Ísfell hf. í Póllandi árið 1974. Það var gert út í 24 ár sem Engey RE en selt árið 1998 til Ólafsfjarðar og fékk þar nafnið Kleifaberg ÓF. Síðar komst það í eigu Útgerðarfélags Reykjavíkur og kom úr sinni síðustu veiðiferð árið 2020. Þetta mun vera siðasti svokallaðra pólverjar 

Man einhver hvað þau voru mörg og hvað þau hétu ?

Fyrstu tvo áratugi þessarar aldar nam afli Kleifabergs RE um 168.000 tonnum. Skipaþjónustan keypti skipið 2021.

Bragi Már Ævarsson sem rekur Skipaþjónustu Íslands ásamt bróður sínum, Ægi Erni, segir mikinn tíma hafa farið í samskipti við „kerfið“ til að undirbúa dráttinn á skipinu til Noregs. Árið 2019 keypti fyrirtækið dráttarbátinn Herkúles sem hefur verið við bryggju síðan þá. Hann verður nýttur til að draga Mars til Noregs en Mars hefur að undanförnu verið í Akraneshöfn.

 

Herkúles. FF MYND/JÓN PÁLL

                                                             Herkúles. FF MYND/JÓN PÁLL

 

„Við erum að bíða eftir síðustu pappírunum. Eftirlitsiðnaðurinn lætur ekki að sér hæða,“ segir Bragi. Mars verður dreginn til Noregs þar sem hann verður rifinn hjá Green Yard í Fedafirði ekki langt frá Flekkefirði. Bragi segir að verð á brotajárni hafi hækkað en það þurfi að hafa mikið fyrir hlutunum til þess að hafa eitthvað upp úr þessu. Herkúles er einn þriggja öflugra dráttarbáta sem fyrirtækið átti. Einn þeirra var seldur en annar er í leiguverkefnum við Kanaríeyjar.

„Við gerum bátana út erlendis því það er engin verkefni að hafa hér. Hér er þjónusta af þessu tagi rekin af ríki og sveitarfélögum.“

Aðstoða við þáttagerð BBC

Þegar Herkúles hefur dregið Mars til Noregs verður hann eftir og fer í leiguverkefni. Skipaþjónustan á einnig Argus, 68 metra langt skip í ísklassa A1 super, sem notað var til að þjónusta starfsmenn námuvinnslufyrirtækis á Grænlandi. Mars var einnig í þeim verkefnum. Að undanförnu hefur Argus verið í verkefnum við Suðurskautslandið, meðal annars við hvalatalningu og þjónustu við tökulið frá breska ríkissjónvarpinu, BBC, sem er að gera nýja þáttaröð, Planet Earth með Richard Attenborough. Argus er núna í slipp í Portúgal og heldur svo aftur til Suðurskautslandsins.

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 985
Gestir í dag: 44
Flettingar í gær: 1756
Gestir í gær: 46
Samtals flettingar: 1625277
Samtals gestir: 61283
Tölur uppfærðar: 4.7.2025 08:44:31
www.mbl.is