19.10.2025 19:48Fyrsti túrinn hjá Valgarði með Gullver Ns 12Fyrsti túrinn í skipstjórastólnumValgarður Freyr Gestsson fór sinn fyrsta túr í skipstjórastólnum á Gullveri NS en hann hefur verið fyrsti stýrimaður um borð í tvö ár. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Ísfisktogarinn Gullver NS er að landa á Seyðisfirði í dag með nýjan skipstjóra í brúnni, að því er segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Valgarður Freyr Gestsson fór sinn fyrsta túr sem skipstjóri en hann hefur verið fyrsti stýrimaður Gullvers í ein tvö ár. Afli Gullvers að þessu sinni er 80 tonn, þar af eru 58 tonn þorskur og tæp 20 tonn af ýsu. Valgarður segir þennan fyrsta túr sinn hafa gengið ágætlega en ýsan hafi þó látið eltast við sig. Margir kvarti undan ýsufæð„Við byrjuðum á Tangaflaki og síðan var haldið á Gletting en ýsuveiðin var takmörkuð þar,“ segir Valgarður. „Þá var siglt norður á Digranesflak og þar tekin þrjú hol en aflinn var að mestu þorskur á þeim slóðum. Þá var haldið suður eftir í ýsuleit og byrjað á Gerpisflaki og endað á Gauraslóð með heldur litlum árangri.“ Hann segir jafnframt að áhöfn Gullvers sé ekki ein um að eltast svona við fiskinn því víða sé kvartað undan ýsufæð þessa dagana. Valgarður sestur í skipstjórastólinn á Gullveri NS. Ljósmynd/Síldarvinnslan Valgarður segist sérstaklega ánægður með áhöfnina. „Þetta var minn fyrsti túr sem skipstjóri og það er auðvelt að vera skipstjóri á skipi þar sem er samheldin og góð áhöfn,“ segir hann. „Á Gullveri er flottur mannskapur.“ Þegar löndun er lokið verður haldið til Neskaupstaðar til að sinna viðhaldi á skipinu. Aftur verður siglt á miðin á fimmtudagskvöld. Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 2184 Gestir í dag: 7 Flettingar í gær: 5499 Gestir í gær: 15 Samtals flettingar: 2182935 Samtals gestir: 68706 Tölur uppfærðar: 20.10.2025 08:29:48 |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is